Tvö tilvik þar sem lögreglumenn þurftu að fara í sóttkví en fengu ekki greitt

BSRB telur með öllu óásætt­an­legt að fram­línu­fólki eins og lög­reglu­mönnum sé ekki bættur sá frí­tími sem þeir neyð­ast til að eyða í sótt­kví vegna þess að þeir hafa orðið útsettir fyrir smiti af lífs­hættu­legum sjúk­dómi í störfum sínum.

BSRB hefur sent öllum lög­reglu­stjórum á land­inu bréf þar sem farið er fram á að lög­reglu­menn sem þurfa að fara í sótt­kví vegna gruns um COVID-19 smit verði greitt fyrir þann tíma sem þeir þurfa að vera í sótt­kví og vakta­frí frest­ist þar til þeir eru lausir úr henni.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá BSRB í dag.

Samkvæmt banda­lag­inu hafa komið upp tvö til­vik þar sem lög­reglu­menn þurftu að fara í sótt­kví vegna afskipta af ein­stak­lingum sem grunur lék á að væru með COVID-19 smit. Í báðum til­vikum hafi það verið afstaða yfir­manna þeirra að þeir ættu ekki rétt til greiðslna á meðan þeir dvöldu í sótt­kví, fjarri heim­ili og fjöl­skyldum, né fengu þeir auk­inn frí­töku­rétt vegna vakta­frí­daga sem þeir áttu að fá á meðan þeir voru í sótt­kvínni.

„Lög­reglu­menn eru fram­línu­fólk í öllum skiln­ingi þess orðs. Þeir mæta almennt fyrstir á vett­vang og hafa ekki val um það hvort þeir sinni útkalli þegar eftir þjón­ustu þeirra er leitað. Þeir eru oftar en ekki ómeð­vit­aðir um það hvað bíður þeirra og eru ber­skjald­aðir gagn­vart utan­að­kom­andi ógn eins og smit­sjúk­dómum,“ segir meðal ann­ars í bréfi BSRB til lög­reglu­stjór­anna.

Banda­lagið telur með öllu óásætt­an­legt að fram­línu­fólki eins og lög­reglu­mönnum sé ekki bættur sá frí­tími sem þeir neyð­ast til að eyða í sótt­kví vegna þess að þeir hafa orðið útsettir fyrir smiti af lífs­hættu­legum sjúk­dómi í störfum sínum.

BSRB gerir þá kröfu að lög­reglu­menn fái greiddar yfir­vinnu­stundir fyrir þann tíma sem þeir verja í sótt­kví utan skil­greindra vakta. Það sé eðli­legt end­ur­gjald fyrir þá áhættu sem þeir taka í sínum störfum og þá stað­reynd að þeir glata dýr­mætum frí­tíma af þeim sökum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár