Sárþjáð samfélag sem heimsbyggðin hefur brugðist

Samfélagið á eynni Lesbos er undirlagt sorg, ótta og eymd. Það sem mætir flótta­fólki sem taldi sig vera að komast í skjól frá stríði er annar vígvöllur. Umheimurinn hefur brugðist fólki sem flýr stríð og það er geðþótta­ákvörðun að hundsa hjálpar­kall fólks í neyð. Þau ríki sem senda fólk aftur til Grikk­lands eru ábyrg fyrir því þegar slæmt ástand verður enn verra. Þetta er meðal þess sem viðmælendur Stundarinnar sem starfa fyrir hjálpar- og mannúðar­samtök segja um ástandið í Grikk­landi þessa dagana.

Hólpin, en aðeins í skamma stund
Hólpin, en aðeins í skamma stund Sýr­lenskir flótta­menn lenda frá Tyrk­landi á grísku eyj­unni Lesbos. Mynd: Páll Stefánsson

„Fólki er refsað fyrir að flýja stríðs­átök og reyna að koma sér og ástvinum sínum í skjól. Skila­boðin til þeirra frá umheiminum eru skýr: það er ekki pláss fyrir ykkur í „okkar“ heimi!“ segir kanadískur læknir sem hefur starfað í Moria-flóttamanna­búðunum í Lesbos. 

Hinn 27. febrúar síðastliðinn tilkynntu tyrknesk stjórn­völd að þau ætluðu ekki lengur að hefta för flótta­fólks sem vill komast til Evrópu en landa­mærin hafa verið lokuð í fjögur ár. Um þrjár og hálf milljón flótta­manna frá Sýrlandi eru í Tyrklandi. Sama dag og landa­mærin voru opnuð þyrptist flótta­fólk í þúsunda­tali að landa­mærunum til að reyna að komast yfir til Grikk­lands. Stefnan er tekin á Evrópu þar sem flest fólkið vill komast í skjól eftir áralanga nauðungar­vist í óhrjálegum búðum í Tyrklandi. En í Grikk­landi hefur þeim verið mætt af mikilli hörku síðustu vikur. Þung­vopnaðir grískir landamæra­verðir hafa sprautað táragasi yfir fólk og hafa svarað grjót­kasti flótta­fólks …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár