Mesta losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands vegna vegasamgangna

Til þess að tryggja nauð­syn­legan sam­drátt í losun frá vega­sam­göngum er mik­il­vægt að styðja virka- og lofts­lagsvænni ferða­máta bæði hjá Íslend­ingum en ekki síður meðal erlendra ferða­manna.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda dróst saman um 6,5 pró­sent milli áranna 2019 til 2020 þegar litið er til los­unar sem er á beinni ábyrgð Íslands.

Þetta kemur fram í bráða­birgða­út­reikn­ingum Umhverf­is­stofn­unar sem birt­ust í vik­unni en sam­kvæmt stofn­un­inni gefa nið­ur­stöður vís­bend­ingu um að áhrif kór­óna­veiru­far­ald­urs­ins hafi verið afger­andi varð­andi minni losun árið 2020.

Það ár voru stærstu ein­stöku los­un­ar­þættir sem falla undir beina ábyrgð Íslands vega­sam­göngur, eða 31 pró­sent, fiski­skip, 19 pró­sent og iðra­gerjun búfjár, eða 11 pró­sent.

Umfang vega­sam­gangna í losun Íslands, sem og bráða­birgða­grein­ingar á elds­neytis­kaupum leiða í ljós að sam­dráttur í losun frá vega­sam­göngum helg­að­ist fyrst og fremst af fækkun ferða­manna milli 2019 og 2020. Tölurnar sýna að til þess að tryggja nauð­syn­legan sam­drátt í losun frá vega­sam­göngum er mik­il­vægt að styðja virka- og lofts­lagsvænni ferða­máta bæði hjá Íslend­ingum en ekki síður meðal erlendra ferða­manna, að því er fram kemur hjá Umhverf­is­stofnun.

Fram kemur hjá stofn­un­inni að með Par­ís­ar­sátt­mál­anum hafi Ísland áður skuld­bundið sig til að ná 29 pró­sent sam­drætti í losun á beinni ábyrgð Íslands árið 2030, miðað við losun árs­ins 2005.

„Þess ber að geta að mark­mið um 29 pró­sent sam­drátt sem fellur undir beina ábyrgð Íslands er til­komið vegna sam­eig­in­legs mark­miðs Íslands, Noregs og ESB um að ná 40 pró­sent sam­drætti í losun fyrir árið 2030 miðað við 1990, en það mark­mið hefur verið hækkað í 55 pró­sent sem krefst end­ur­skoð­unar mark­miða ein­stakra hlut­að­eig­andi ríkja, sem ekki liggur fyrir. Samkvæmt bráða­birgða­nið­ur­stöð­unum er losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á beinni ábyrgð Íslands árið 2020 14 pró­sent minni en hún var árið 2005,“ segir á vef Umhverf­is­stofn­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár