Stofnandi Blackwater á leynilegum fundi með Rússum

Rannsókn á tengslum bak­lands Trumps við Rússa er í fullum gangi, og ný púsl bætt­ust við í gær.

Erik Prince, stofnandi Blackwater.
Erik Prince, stofn­andi Blackwater. Mynd: EPA

Erik Prince, stofn­andi einka­hers­ins umdeilda Blackwater, sat fund með trún­að­ar­mönnum Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seta, hinn 11. jan­úar síð­ast­lið­inn, og var mark­miðið með fund­inum að koma upp sam­skipta­leið á milli Rússa og hóps valda­manna í Banda­ríkj­unum, sem styður aukin sam­skipti við Rússland, einkum á sviði varn­ar­mála og við­skipta. Boston Globe greindi frá þessu í gær.

Fundað í Indlandshafi

Fund­ur­inn fór fram á Seychelles eyjum í Ind­lands­hafi, níu dögum áður en Trump tók form­lega við sem for­seti Banda­ríkj­anna, og var yfir honum mikil leynd, að því er fram kom í Boston Globe.

Umfjöllun blaðs­ins byggir á við­tölum við emb­ætt­is­menn í Banda­ríkj­unum, Evrópu og Sam­ein­uðu arab­ísku fur­st­dæm­unum, en þeir eru allir sagðir búa yfir upp­lýs­ingum um fund­inn, og þær upp­lýs­ingar er nú til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Banda­ríkj­unum. Áður en fund­ur­inn fór fram hitt­ust aðilar, sem komu fund­inum á, í New York og lögðu á ráðin.

Alrík­is­lög­reglan FBI er sögð vera að rann­saka til­efni fund­ar­ins og tengsl hans við aðra atburði þar sem tengslin milli Rússa og ein­stak­linga í bak­landi Donalds Trumps, Banda­ríkja­for­seta, einkum í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum í fyrra, eru í brennid­epli.

Á meðal þess sem er til rann­sóknar er hvort sam­skipti við Rússa frá Banda­ríkj­unum hafi leitt til þess að gerðar voru tölvu­árásir á Banda­ríkin, þar á meðal fram­boð Hillary Clinton, fram­bjóð­anda Demókrata í for­seta­kosn­ing­unum.

Prince er einn af helstu stuðn­ings­mönnum Donalds Trumps og hefur opin­ber­lega lýst því yfir að hann styðji stefnu hans í varn­ar­málum.

Rússarannsókn

Eins og fram hefur komið eru fundir Sergey Kislyak, sendi­herra Rúss­lands í Banda­ríkj­unum, með áhrifa­mönnum í Banda­ríkj­unum á meðal þeirra atburða sem eru sér­stak­lega til rann­sóknar.

Hann fund­aði í nokkur skipti með Jeff Sessions, sem nú er dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Michael Flynn, sem gengdi stöðu þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafa frá 20. jan­úar til 13. febr­úar, þegar hann var lát­inn taka pok­ann sinn. Ástæðan var sú að Flynn ræddi við­skipta­þving­anir Banda­ríkj­anna gegn Rússum við sendi­herr­ann, en hann hafði áður upp­lýst vara­for­set­ann, Mike Pence, um að það hefði ekki borið á góma í sam­tölum þeirra.

Engin friðhelgi?

Flynn hefur nú komið þeim skila­boðum til yfir­valda í Banda­ríkj­unum að hann sé til­bú­inn að tala og veita upp­lýs­ingar, gegn því að fá frið­helgi þannig að ekki sé hægt að sækja hann til saka. FBI, CIA og Banda­ríkja­þing hafa hins vegar ekki orðið við þessu og ekki liggur fyrir ennþá, hvernig Sessions gekk hins vegar svo langt að neita því eið­svar­inn frammi fyrir þing­nefnd Banda­ríkja­þings, að hann hefði ekki átt í neinum sam­skiptum við Rússa í aðdrag­anda kosn­ing­anna 8. nóv­em­ber.

FBI bjó hins vegar yfir gögnum um fundi Sessions og Kislyak og stað­festi Sessions síðar að fund­irnir hefðu farið fram. Hann sagði síð­ann að hann hefði mis­skilið spurn­ing­una um þetta í þing­inu, og því hefði hann sagt að hann hefði ekki verið í neinum sam­skiptum við Rússa.

Blackwater eitt púslið

Blackwater einka­her­inn komst í kast­ljósið í Íraks­stríð­inu, þar sem hann fékk stór hlut­verk í ýmsum aðgerðum, í sam­starfi við Banda­ríkja­her. Þá hefur Blackwater einnig starfað mikið fyrir olíu­iðn­að­inn í Banda­ríkj­unum og sinnt örygg­is­gæslu víða um heim­inn fyrir hann.

Blackwater komst meðal ann­ars í frétt­irnar fyrir að bera ábyrgð á pynt­ingum og morðum í Írak. Tveir liðs­menn þessa einka­hers voru sak­felldir fyrir að myrða óbreytta borg­ara.

Prince sagði í opin­berri yfir­lýs­ingu í gær að þessi fundur hefði ekk­ert tengst fram­boði Trumps, og þaðan af síður verið mik­il­vægur fyrir ein­hvers konar teng­ingu milli ríkj­anna. Hann skýrði hins vegar ekki nákvæm­lega hvað hefði verið rætt, en gaf í skyn að leyni­þjón­ustu­stofn­anir Banda­ríkj­anna ættu að eyða tíma sínum í eitt­hvað annað en að fylgj­ast með fundum eins og þessum.

For­svars­menn FBI og CIA hafa sagt, að sá tími verði tek­inn í rann­sókn­ina á þessum hlutum sem þarf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár