Lögregla þekkti til árásarmanns sem var yfirbugaður í lest í gær

Þung­vopn­aður maður, sem var yfir­bug­aður í lest á leið frá Amster­dam til Parísar í gær­kvöldi, er 26 ára gam­all og frá Marokkó. Hann hefur tengsl við rót­tæka ísla­mista, hefur ferð­ast til Sýrlands og lög­regla þekkti til hans.

Bernard Cazeneuve, inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, greindi frá því í dag að árás­armað­ur­inn hefði þessi tengsl. Hann sagði þó að ekki væri búið að bera end­an­lega kennsl á árás­armann­inn, en að nafnið sem hann hefur gefið upp væri nafn manns sem spænsk yfir­völd hefðu varað frönsk yfir­völd við fyrir rúmu ári síðan, í febr­úar 2014.

Franskir og spænskir fjöl­miðlar hafa nafn­greint mann­inn og sagt hann heita Ayoub El-Kahzzani. Hann er sagður hafa búið í Frakk­landi, á Spáni og í Belgíu.

Maðurinn hóf skot­hríð um borð í lest­inni en var fljótt yfir­bug­aður af öðrum far­þegum, þar á meðal tveimur banda­rískum her­mönnum sem voru í fríi. Þeir hafa hlotið mikið lof fyrir hug­rekkið sem þeir þykja hafa sýnt. Bæði for­setar Frakk­lands og Banda­ríkj­anna hafa lofað her­menn­ina, sem og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hér að neðan má sjá mynd­band úr lest­inni, en það var banda­ríska sjón­varps­stöðin CNN sem sýndi það fyrst.

Maðurinn var sem fyrr segir þung­vopn­aður. Hann var með Kalas­hnikov riffil, sjálf­virka skamm­byssu og hníf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár