Mynd: Kristinn Magnússon

Öryggis­menningu okkar er ógnað

Páll Matthíasson, forstjóri Land­spítalans, stendur frammi fyrir fjár­skorti, faraó-maurum, myglu­sveppum, músagangi, atgervis­flótta, pláss­leysi og ákæru á starfs­mann fyrir manndráp af gáleysi. Þegar við töpum heilsunni verðum við hans verkefni. Vinnu­staður Páls glímir við líf og dauða á hverjum degi. Hann vill að við hegðum okkur skyn­samlega, en trúir því að við eigum stundum erfitt með að ráða við okkur.

Hvers vegna tókstu að þér þessa stöðu?
Ég hóf störf nokkuð óvænt en þurfti ekki að hugsa mig lengi um. Ég hef mikinn metnað fyrir hönd íslenskrar heilbrigðis­þjónustu og Land­spítali er þar fremstur í stafni. Við erum að móta spítala­þjónustu fram­tíðarinnar einmitt þessi misserin og ég tel að tækifæri sem þessi komi ekki oft á ævinni.

Hvað viltu segja við lækna sem hafa flutt úr landi til að fá betri laun og vinnu­aðstöðu? Hvers vegna ættu þeir að koma aftur og fá lægri laun fyrir lengri vinnutíma?
Lærið og njótið verunnar. Ef þið viljið taka þátt í uppbyggingar­starfi íslenskrar heilbrigðis­þjónustu og setja þannig mark ykkar á fram­tíðina höfum við svo sannarlega not fyrir þekkingu ykkar og krafta.

Hversu margir læknar hafa tilkynnt að þeir séu hættir við uppsögn eftir að lækna­verkfallinu lauk?
Tíu sögðu formlega upp og hafa 8 þeirra dregið uppsagnir sínar til baka.
Sjötíu eldri borgarar eru nú fastir á Land­spítalanum og bíða eftir að komast á hjúkrunar­heimili. Komum við, sem samfélag, nógu vel fram við gamla fólkið?
Rúmlega 40 af þessum 70 dveljast á Vífils­stöðum við ágætan aðbúnað, á meðan beðið er varanlegs hjúkrunar­rýmis. Um hina gildir það hins vegar að Land­spítali er ekki góður staður fyrir fólk sem ekki þarf á þjónustu hans að halda. Það á sérstak­lega við um eldra fólk og eins og rann­sóknir sýna getur slík dvöl beinlínis verið skaðleg. Það er ekki sómi af stöðunni eins og hún er í dag.

Hvers vegna eru bílar skyldaðir í árlega ástands­skoðun eftir ákveðinn aldur en ekki fólk?
Væntanlega af því að fólk lýtur eigin vilja en bílar ekki.

Mætti minnka heilbrigðis­vanda þjóðarinnar með því að haga borgar­skipulagi öðruvísi en við gerum í dag?
Allt sem stuðlar að því að auðvelda fólki heilbrigða lifnaðar­hætti skiptir máli fyrir heil­brigði þjóðarinnar. Ef borgar­skipulag stuðlar að útivist og hreyfingu er það afar jákvætt, að sjálfsögðu.

Telurðu að skatta­lækkun ríkis­stjórnarinnar á sykruðum matvælum og gosdrykkjum, ásamt hækkun annarra matvæla, muni hafa einhver áhrif á heil­brigði þjóðarinnar?
Út frá lýðheilsu­markmiðum hefði annars konar breyting á skatt­kerfinu verið heppilegri. Áhrif þessara breytinga munu koma fram á lengri tíma og erfitt að spá fyrir um þau.

Hvort ertu hlynntari því að leggja 61,5 milljarða króna í byggingu nýs Land­spítala eða í rekstur og tækjakaup?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár