Biskup Íslands: Afleitt að læknar fái ekki betri laun

Agnes ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni á leið í Dómkirkjuna við þingsetningu Alþingis.
Agnes ásamt Ólafi Ragnari Gríms­syni á leið í Dóm­kirkj­una við þing­setn­ingu Alþingis. Mynd: Birgir Þór

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, telur afleitt að læknar fái ekki laun í sam­ræmi við menntun sína og starf. Þetta segir hún í sam­tali sínu við Gretti Gautason í þætt­inum Grettistaki sem birt­ist í Hlað­varpi Kjarnans á morgun. „Það er bara ekki nógu gott,“ segir hún en bætir við að það sé ekki hægt að gera upp á milli starf­stétta og segja að ein starf­stétt sé mik­il­væg­ari en önnur.

Grettir spyr hvað henni finnst um að prestar fái jafnan hærri laun en læknar. Agnes seg­ist ekki vera sam­mála því að menntun og starf presta sé minna virði en starf lækna. Hún telur alla vera jafn mik­il­væga. „Erum við bara ekki öll jafn mik­il­væg? Við erum bara í ákveðnum hlut­verkum í líf­inu. Við höfum öll ákveðna köllun í líf­inu og við þurfum öll á hvort öðru að halda."

„Stundum þurfum við á lækni að halda, stundum þurfum við á pípara að halda, stundum þurfum við á kenn­ara að halda og stundum þurfum við á presti að halda. Ég sé ekki að eitt­hvað starf eða þjón­usta sé minna virði en eitt­hvað annað. Við þurfum allt þetta […] og miklu meira til.“

Hún segir það hins vegar afleitt að þegar fólk er búið að leggja mikla vinnu í að mennta sig að það fái ekki laun sem hæfa menntun sinni. „Það er nátt­úr­lega alveg afleitt þegar fólk er búið að leggja á sig mikla vinnu, og eyða miklum tíma, og leggja sig fram til þess að mennta sig í fagi eins og lækn­is­fræði að það skuli ekki fá almenni­leg laun. Það er bara ekki nógu gott“

Grettistak er á dag­skrá Hlað­varps Kjarnans annan hvern sunnu­dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár