Mynd: Heiða Helgadóttir

Fólk á betra skilið

Jóhanna Sigurðar­dóttir hefur setið þögul hjá og fylgst með. Hún leiddi endur­reisn Íslands upp úr hruninu, en endaði þann feril á því að eftir­maður hennar og samflokks­maður fór í uppgjör við hana. Hún hefur verið hyllt erlendis sem hetja, en hér heima horfir hún upp á að völdin eru í höndum þeirra sem henni þykir síst eiga að fara með þau. „Við erum enn að upplifa leyndar­hyggju og óheiðarleika í pólitík, spillingu,“ segir Jóhanna.

Þegar Jóhanna Sigurðar­dóttir steig til hliðar sem forsætis­ráðherra og endaði feril sinn í stjórn­málum ákvað hún þaðan í frá að halda sig til hlés í umræðunni og fylgjast með úr fjarlægð.

Það fyrsta sem hún hafði heyrt, eftir að hún vék úr formanns­stóli í Samfylkingunni, var þakkar­ræða eftir­manns hennar, sem notaði hana til að fara í uppgjör við stefnu hennar og boða sættir við pólitíska andstæðinga.

Hún hafði barist alla sína tíð fyrir jöfnuði og velferð þeirra verst stöddu, en yfirgaf forsætis­ráðuneytið eftir að hafa séð tvo unga auðmenn mynda ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks. 

„Mér leið satt að segja ekki vel. Og ég spurði, hvað er eiginlega að ske í þjóð­félaginu?“ segir Jóhanna.

Hún þurfti að afhenda Sigmundi Davíð Gunnlaugs­syni, formanni Framsóknar­flokksins, sem hafði háð „heiftúðuga“ og „grimma“ stjórnar­andstöðu ásamt sjálfstæðis­mönnum, lyklana að forsætis­ráðuneytinu. Þetta var nokkrum mánuðum eftir að hinn formaðurinn sem tók við taumunum, Bjarni Benediktsson, hafði beint því til hennar „að skila lyklunum“.

„Ég tók því nú bara sem hverju öðru gríni,“ segir Jóhanna um yfir­lýsingu Bjarna. Hún var orðin þessu vön frá þeim tveimur, þótt hún hefði verið undrandi yfir hörkunni í fyrstu, þar sem hún bjóst við meiri hógværð hjá meðlimum flokksins sem bar mesta pólitíska ábyrgð á þeim aðstæðum sem orsökuðu efnahags­hrunið kjör­tímabilið áður. 

„Þetta var mjög heiftúðug stjórnar­andstaða, mjög óbilgjörn. Bæði Bjarni og svo Sigmundur Davíð,“ segir hún. „Þeir voru að stoppa öll mál og stunduðu algjört eyði­leggingar­starf á Alþingi. Ég hef aldrei séð annað eins, hvorki fyrr né seinna, hvernig þeir létu.“

 

Heift og hótanir

Fjögurra ára kjör­tímabilið, sem Jóhanna fékk til að leiða endur­reisnina, einkenndist af óvissu og erfiði. Þau þurftu að finna leiðir til að skera niður og breyta sköttum. Mikil vanstilling var í samfélaginu. Andstaðan var mikil, og fyrir utan stjórnar­andstöðu Bjarna og Sigmundar var skrifað um Jóhönnu í Morgun­blaðið undir ritstjórn fyrr­verandi formanns Sjálfstæðis­flokksins, og Evrópu­þjóðir, Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn og Evrópu­sambandið vildu fullvissu um endur­greiðslur á Icesave. Á sama tíma lifði margt fólk í von og ótta um afkomu sína og velferð. 

Einn karlmaður gekk upp að Jóhönnu og sagði: „Þú ert réttdræp.“ „Þetta var eitt af mörgum svona tilvikum,“ segir Jóhanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár