Jafngott að enginn lofaði að éta hattinn

"Jafngott að eng­inn lof­aði að éta hatt­inn sinn." Þessi orð lét Lars Løkke Rasmus­sen for­maður Venstre flokks­ins í Danmörku falla í við­tali við blaða­mann Ekstra Blaðsins í gær. Þar vís­aði Lars Løkke til þess að hans eigin flokkur og hinir flokk­arnir sem hann hefur rætt við um stjórn­ar­myndun geti engan veg­inn staðið við kosn­inga­lof­orðin ef takast á að mynda sam­steypu­stjórn undir for­ystu Venstre.

Hún er óneit­an­lega ein­kenni­leg og snúin staðan í dönskum stjórn­málum eftir kosn­ing­arnar í síð­ustu viku. Lars Løkke Rasmus­sen, for­maður flokks­ins sem tap­aði flestum þing­mönnum (13) og auk þess óvin­sæl­asti flokks­for­maður lands­ins, hefur í tvígang fengið umboð til stjórn­ar­mynd­unar. Fyrst fékk hann umboð Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar til mynd­unar meiri­hluta­stjórnar. Í slíkri meiri­hluta­stjórn bláu blokk­ar­innar svo­nefndu hefðu átt sæti Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn (Dansk Fol­ke­parti) Frjáls­ræð­is­banda­lagið (Liberal Alliance) og Íhalds­flokk­ur­inn (Det Konservative Fol­ke­parti) auk Venstre flokks­ins sjálfs.

Það tók ekki langan tíma fyrir Lars Løkke að finna út að myndun slíkrar stjórnar tæk­ist ekki. Til þess voru stefnu­mál og kosn­inga­lof­orð flokk­anna allt of ólík og Íhalds­flokk­ur­inn, sem er minnsti flokk­ur­inn á þing­inu (með sex þing­menn, tap­aði tveimur) treysti sér ekki til þátt­töku í rík­is­stjórn.

Opna umboðið


Þegar þetta lá fyrir fékk Lars Løkke nýtt umboð. Það er svo­kallað opið umboð sem ekki er bundið við myndun meiri­hluta­stjórnar, en í Danmörku er löng hefð fyrir minni­hluta­stjórnum. Fyrsta verk Lars Løkke í þess­ari annarri umferð var að ræða við Kristian Thulesen Dahl for­mann Danska Þjóð­ar­flokks­ins sem var ótví­ræður sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna, bætti við sig 15 þing­mönnum og er nú næst stærsti flokk­ur­inn á þingi með 37 full­trúa, þremur fleiri en Venstre. Saman hafa flokk­arnir tveir 71 þing­mann, vantar því 19 til að ná meiri­hluta.

For­ystu­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins lýstu því reyndar margoft yfir í aðdrag­anda kosn­ing­anna að flokk­ur­inn ætl­aði sér ekki í rík­is­stjórn. For­menn­irnir tveir, Lars Løkke og Kristian Thulesen rædd­ust lengi við í gær, þriðju­dag, þótt heita ætti að hlé væri á stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Þær við­ræður halda áfram í dag en full­trúar Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins og Íhalds­flokks­ins munu einnig hitta Lars Løkke.

Möguleikarnir


Lars Løkke hefur nokkra mögu­leika í stöð­unni. Í fyrsta lagi stjórn Venstre án beinnar þátt­töku ann­arra flokka. Í ljósi þess að Venstre hefur aðeins 34 þing­menn yrði sú stjórn algjör­lega að reiða sig á stuðn­ing ann­arra flokka til að koma málum í gegnum þingið. Áður en slík stjórn tæki við völdum yrði Lars Løkke að vera búinn að ganga frá ítar­legu sam­komu­lagi við aðra flokka í bláu blokk­inni. Vitað er að þeir flokkar selja sig dýrt.

Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn er, sökum þing­styrks síns, í sterkri aðstöðu til að gera kröfur. Stefna hans er um margt mjög ólík stefnu Venstre, það á við um afstöð­una og sam­starfið innan Evr­ópu­sam­bands­ins, landamæra­eft­ir­lit og vöxt í opin­bera geir­anum. Á þessum þremur sviðum er afstaða flokk­anna tveggja mjög ólík og ljóst að mjög erfitt getur orði að ná sam­komu­lagi sem báðir gætu sætt sig við. Þeir þing­menn Ventre sem styðja hug­mynd­ina um eins flokks stjórn flokks­ins hafa efa­semdir um að Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn sé í raun til­bú­inn til stjórn­ar­setu, ekki síst með til­liti til yfir­lýs­inga Kristian Thulesen Dahl og ann­arra í flokks­for­yst­unni fyrir kosn­ingar.

[caption id="attachment_31941" align="alignnone" width="746"] Formaður Danska þjóð­ar­flokks­ins, Kristian Thulesen Dahl, nýtur mik­illa per­sónu­legra vin­sælda og það er talið hafa vegið þungt í útkomu flokks­ins.[/caption]

Venstre og Dansk Folkeparti


Slík stjórn hefði 71 þing­mann og stæði þannig langtum traust­ari fótum en hrein Venstre stjórn. Lars Løkke hefur síð­ustu daga talað mikið um að virða vilja kjós­enda. Margir túlka þau orð sem svo að hann sé til­bú­inn að semja við Danska Þjóð­ar­flokk­inn um mörg mál. En líka hefur verið bent á að með þessum orðum sé hann að viðra mögu­leika á sam­starfi yfir miðj­una eins og það er kallað. það er að segja sam­starf um til­tekna mála­flokka við Jafn­að­ar­manna­flokk­inn (Socialdemokraterne) sem eru stærsti flokkur lands­ins með 47 þing­menn. Slíkt sam­starf væri lík­lega mun auð­veld­ara með Danska Þjóð­ar­flokk­inn innan stjórnar.

Venstre og Frjálsræðisbandalagið


Mögu­leik­arnar á myndun slíkrar stjórnar eru ekki taldir miklir en þó ekki algjör­lega úti­lok­aðir. Slík stjórn hefði sam­tals 47 þing­menn og yrði því að reiða sig á stuðn­ing ann­arra flokka í hverju máli. Helstu bar­áttu­mál Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins fyrir kosn­ingar voru minni umsvif hins opin­bera og skatta­lækk­anir. Flokks­for­ystan hefur sagt að þetta tvennt sé lyk­il­at­riði og ófrá­víkj­an­leg krafa.

Formaður Danska þjóðarflokksins, Kristian Thulesen Dahl, nýtur mikilla persónulegra vinsælda og það er talið vega þungt í útkomu flokksins.
Formaður Danska þjóð­ar­flokks­ins, Kristian Thulesen Dahl, nýtur mik­illa per­sónu­legra vin­sælda og það er talið vega þungt í útkomu flokks­ins.

Margir tóku hins­vegar eftir því að Anders Samu­el­sen for­maður flokks­ins sagði í sjón­varps­um­ræðum eftir kosn­ingar að það væri ekki síður mik­il­vægt hvað feng­ist fyrir pen­ing­ana í opin­berum rekstri. "Ef meira fæst fyrir pen­ing­ana er það auð­vitað skatta­lækkun í sjálfu sér" sagði for­mað­ur­inn. Þetta töldu stjórn­mála­skýrendur til marks um ákveð­inn samn­inga­vilja.

Venstre, Danski Þjóðarflokkurinn og Frjálsræðisbandalagið


Stjórn þess­ara þriggja flokka verður að telj­ast fremur ólík­leg. Hún hefði 84 þing­menn og væri því á papp­írnum sterk­ari en önnur stjórn­ar­mynstur sem Lars Løkke hefur mögu­leika á. Stefnumið Danska Þjóð­ar­flokks­ins og Frjáls­ræð­is­banda­lags­ins eru hins­vegar mjög ólík og því yrðu báðir að slá veru­lega af ætti slík stjórn að verða að veru­leika.

Framhaldið


Ljóst er að Lars Løkke leggur höf­uð­á­herslu á sam­starf við Danska Þjóð­ar­flokk­inn. Þeir Kristian Thulesen Dahl halda við­ræðum síum áfram en sá síð­ar­nefndi er undir miklum þrýst­ingi frá kjós­endum Danska Þjóð­ar­flokks­ins sem vilja flokk­inn í stjórn. Yfir­lýs­ingar flokks­for­yst­unnar, fyrir kosn­ingar, um að flokk­ur­inn hafi meiri áhrif utan stjórnar en innan breyta engu þar um. Stjórn­mála­skýrendur telja að stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður geti tekið marga daga og kannski vikur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár