Sigríður: Deildi upplýsingum í fullum rétti

Dóms­mála­ráð­herra segir hún hafi ekk­ert trún­að­ar­brort framið með því að deila upp­lýs­ingum um með­mæli um upp­reist æru barn­a­níð­ings með for­sæt­is­ráð­herra.

Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, seg­ist hafa haft fullan rétt til að deila upp­lýs­ingum með for­sæt­is­ráð­herra, um það að faðir hans væri meðal með­mæl­enda við upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar.

Í ítar­legri grein í Morg­un­blað­inu í dag, rekur hún atburða­rás sem teng­ist upp­reist æru ein­stak­linga sem verið hefur í brennid­epli að und­an­förnu, og var und­ir­rót þess að upp úr rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu slitn­aði.

Ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar er frjálst að kynna sér efni trún­að­ar­skjala vegna ákvörð­unar um upp­reist æru, þ.m.t. for­sæt­is­ráð­herra, segir í grein Sigríðar.

Að sögn Sigríðar fer ákvörðun um upp­reist æru frá ráðu­neyti, inn á borð rík­is­stjórnar og þaðan til for­seta. Allir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar geti kynnt sér þau skjöl sem þar búi að baki. „Þegar af þeirri ástæðu getur það aldrei verið trún­að­ar­brot að ræða slík mál við for­sæt­is­ráð­herr­ann sem hafði heim­ild til að kynna sér öll þau gögn á sínum tíma. Þar fyrir utan verða fagráð­herrar að geta rætt við for­sæt­is­ráð­herra í trún­aði og án tak­mark­ana. Annað væri fásinna. For­sæt­is­ráð- herra er þá bund­inn sama trún­aði og fagráð­herr­ann í mál­inu. Allur áburður um trún­að­ar­brot af minni hálfu stenst ekki skoðun,“ segir Sigríður í grein­inni.

[adspot]

Hún segir hug sinn hvíla hjá aðstand­endum og brota­þolum. Jafn­framt seg­ist hún hugsi yfir fjöl­miðlaum­fjöllun um þessi mál, þar sem þau geti valdið brota­þolum í málum, aðstand­endum og því fólki sem lagði nafn sitt við umsóknir um upp­reista æru miklum óþæg­indum. Málin séu erfið, og hugsun þeirra sem mæli með upp­reist æru fyrir ein­stak­linga sé í flestum til­vikum sú að leggja gott eitt til, og hjálpa fólki að kom­ast á ról í líf­inu á nýjan leik.

Engin ábyrgð eða ein­hvers konar blessun yfir brot­inu sé fyrir hendi í þessum málum, þó skrifað sé undir með­mæli, og álykt­anir um annað séu úr lausu lofti gripnar.

Sigríður ítrekar síðan að hafin sé vinna við end­ur­skoðun laga um veit­ingu upp­reist æru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórnarkreppa

Mest lesið undanfarið ár