Víðtækur stuðningur á þingi við að leyfa fjölskyldunum að vera hér áfram

Búast má við átökum á þingi í dag, vegna þeirrar ráð­stöf­unar að senda feðgin úr landi, þar á meðal ell­efu ára stúlku, sem vilja vera hér áfram.

Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.
Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alþing­is­menn, bæði úr stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum og stjórn­ar­flokk­unum, hafa sagst vilja fresta því að senda feðginin stúlk­urnar Haniye og Mary, ásamt fjöl­skyldum þeirra, úr landi. Þá er víð­tækur stuðn­ingur við frum­varp Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, um veita þeim rík­is­borg­ara­rétt.

Þing­flokkur Vinstri grænna er hlynntur mál­inu, í það minnsta stærstur hluti þing­flokks Pírata og þá eru þing­menn í liði Við­reisnar einnig hlynntir því feðginin fái að vera áfram í land­inu.

Björt fram­tíð vill end­ur­skoða lög um útlend­inga, en innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur Sigríður Andersen, dóms­málra­ráð­herra, traust og stuðn­ing þing­flokks­ins, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Þingmenn úr röðum Fram­sókn­ar­flokks­ins ætla ekki form­lega að vera með í flutn­ingi frum­varps­ins, miðað við stöðu mála eins og hún var í gær, en innan flokks­ins er, líkt og í flestum hinum flokk­unum að Sjálf­stæð­is­flokknum und­an­skildum, áhugi á því að grípa inn í þá atburða­rás að vísa stúlk­unum og fjöl­skyldum þeirra úr landi.

Frestun

Til stendur að senda feðginin Abrahim og Haniye Maleki úr landi á fimmtu­dag, en eins og greint var frá vef Kjarnans í gær, þá vill Rík­is­lög­reglu­stjóri láta fresta aðgerð­inni, en Útlend­inga­stofnun þarf þó að taka efn­is­lega afstöðu til þeirra beiðni. Ástæða þess að mögu­leiki er á frestun er sú að Rík­is­lög­reglu­stjóri telur form­galla hafa verið á birt­ing­ar­vott­orði gagn­vart Abra­him og Haniye.

Líkt og greint var frá í gær, á vef Kjarnans, hefur Logi sent bréf til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins, Útlend­inga­stofn­un­ar, kæru­nefndar útlend­inga­mála og alþjóða­deildar Rík­is­lög­reglu­stjóra þar sem hann óskar eftir því að ákvörðun um að vísa Haniye Maleki og Abra­him Maleki úr landi verði ekki fram­kvæmd á fimmtu­dag líkt og stendur til.

Ástæðan er sú að hann, og aðrir þing­menn, ætla að leggja fram frum­varp um að veita þeim feðginum rík­is­borg­ara­rétt um leið og Alþingi verður sett í dag.

Mannúð að leiðarljósi

Logi segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að það sé „eðli­legt og mann­úð­legt að þau verði ekki flutt úr landi fyrr en alþingi, sem hefur heim­ild að lögum til veit­ingu rík­is­borg­ara­rétt­ar, hefur fjallað um mál­ið. Þá væri með brott­vísun þeirra nú brotið gegn með­al­hófi. Nefna má að for­dæmi er fyrir því að Alþingi veiti rík­is­borg­ara­rétt með skjótum hætti, t.d. þegar Bobby Fischer fékk rík­is­borg­ara­rétt árið 2005. Þá afgreiddi Alþingi málið á innan við sól­ar­hring,“ sagði Logi.

Sig­ríður And­er­sen dóms­mála­ráð­herra sagði um helg­ina að ákvörðun um brott­vísun stúlkn­anna yrði ekki end­ur­skoð­uð. Það kæmi ekki til greina. Í sam­tali við RÚV sagði hún: „Nei, það kemur ekki til greina að end­ur­skoða mál sem dúkka hérna til­vilj­ana­kennt upp í umræð­unni. Það kemur ekki til greina af minni hálfu sem ráð­herra að taka fram fyrir hend­urnar á sjálf­stæðri stjórn­sýslu­stofnun eins og kæru­nefnd í málum sem hafa fengið tvö­falda máls­með­ferð hér á land­i.“

Í við­tali við Morg­un­blaðið í dag segir hún, að henni hugn­ist ekki laga­setn­ing vegna þessa máls og segir það ekki rétt­ar­rík­inu til fram­dráttar að standa þannig að málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár