Samlegð innanlands- og millilandaflugs til bóta fyrir alla þjóðina

Þeir sem von­uð­ust eftir því að skýrsla stýri­hóps rík­is­ins, Reykja­vík­ur­borgar og Icelandair Group myndi verða ein­hvers­konar enda­hnútur á hið enda­lausa rifr­ildi um veru Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni urðu ugg­laust fyrir von­brigðum. Skýrslan tekur hvorki afger­andi afstöðu gagn­vart veru flug­vall­ar­ins á þeim stað sem hann er nú og hóp­ur­inn, sem dags dag­lega er nefndur Rögnu­nefndin eftir Rögnu Árna­dóttur for­manni hóps­ins, né var það á verk­sviði hans að kanna mögu­legan flutn­ing á inn­an­lands­flugi til Kefla­víkur, þar sem milli­landa­flug­völlur lands­ins er fyrir.

Þess í stað býður skýrslan upp á hag­kvæm­ustu lausn­ina á upp­bygg­ingu nýs flug­vallar fyrir inn­an­lands- og milli­landa­flug, að teknu til­liti til þeirrar þró­unar sem þurfi að eiga sér stað í flug­vall­ar­málum í nán­ustu fram­tíð. Og sú lausn er upp­bygg­ing nýs flug­vallar í Hvassa­hrauni, skammt frá álver­inu í Straums­vík. Samkvæmt stýri­hópnum yrði sam­legð inn­an­lands- og milli­landa­flugs til bóta fyrir alla þjóð­ina.

Rúmlega fjórföldun ferðamanna framundan


Í skýrslu stýri­hóps­ins kemur fram að ákveðin tíma­mót séu framundan vegna mik­illar fjölg­unar á far­þegum í milli­landa­flugi. Sú mikla aukn­ing kallar á að Kefla­vík­ur­flug­völlur þurfi að óbreyttu að tvö­fald­ast að innviðum fram til árs­ins 2040. Isavia, sem á og rekur flug­völl­inn, áætlar að kostn­að­ur­inn við upp­bygg­ingu flug­vall­ar­ins muni kosta á annað hund­rað millj­arða króna á þessu tíma­bili. Á meðal þess sem þarf að gera er að rífa niður og/eða end­ur­nýja mik­inn hluta þeirra bygg­inga sem nú eru til staðar á Kefla­vík­ur­flug­velli og bæta við þriðju flug­braut­inni. Milli­landa­flugið skapar hins vegar miklar tekjur sem standa vel undir þeim fram­kvæmdum sem þarf að ráð­ast í til að hámarka þær. Og skýrslan tekur ekki á því hversu hag­kvæmt það yrði að ráð­ast í þá upp­bygg­ingu í Keflavík.

Fjölgun ferða­manna á Íslandi hefur verið gríð­ar­leg á und­an­förnum árum. Samhliða hefur einnig auk­ist sá fjöldi sem fer um Kefla­vík­ur­flug­völl á leið sinni á aðra áfanga­staði. Árið 2008 fóru tæp­lega tvær millj­ónir manna um völl­inn. Í fyrra er áætlað að 3,9 millj­ónir manna hafi farið um hann. Sú tvö­földun hefur gert það að verkum að stans­laust þarf að vera að stækka mann­virkin við Kefla­vík­ur­flug­völl, sem er í reynd sprungin.

Isavia gerir hins vegar ráð fyrir því að far­þegar verði sjö millj­ónir ári 2020 og að á bil­inu 12 til 15 millj­ónir far­þega fari um milli­landa­flug­völl á Íslandi árið 2040. Fjöldin mun því mögu­lega tæp­lega fjór­fald­ast á næstu 25 árum. Og við þvi þarf að bregð­ast.

[caption id="attachment_25573" align="alignnone" width="834"] REykja­vík­ur­flug­völlur í Vatns­mýr­inni.[/caption]

Fækkun í innanlandsflugi en þörf á fjárfestingu


Farþegar í inn­an­lands­flugi sem fóru um Reykja­vík­ur­flug­völl voru 328 þús­und árið 2014. Þeim hefur fækkað nokkuð und­an­farin ár þrátt fyrir þá miklu aukn­ingu sem hefur orðið í ferða­þjón­ustu, en árið 2012 var fjöldi far­þega sem fór um Reykja­vík­ur­flug­völl um 363 þús­und.

REykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýrinni.
REykja­vík­ur­flug­völlur í Vatns­mýr­inni.

Ólíkt milli­landa­flug­inu er inn­an­lands­flugið að stórum hluta rekið með aðkomu rík­is­ins og fjár­fest­ingum í því hefur verið haldið í lág­marki. Fjár­fest­inga­þörf fyrir inn­an­lands­flug fer hins vegar vax­andi og stýri­hóp­ur­inn telur ljóst að þeir inn­viðir sem séu til staðar nægi ekki til fram­tíðar.

Með öðrum orðum þarf að fjár­festa í inn­an­lands­flugi. Staðan eins og hún er í dag gengur ekki og það þýðir einnig að flug­völl­ur­inn í Vatns­mýr­inni í því formi sem hann er í dag dugir ekki. Annað hvort þarf að fjár­festa í honum og byggja þjón­ust­una upp, eða færa mið­stöð inn­an­lands­flugs annað. Og það var það sem stýri­hóp­ur­inn var að kanna.

Besta lausnin Hvassahraun


Stýri­hóp­ur­inn metur stöð­una þannig að nú sé tæki­færi, og fullt til­efni, til að skoða milli­landa- og inn­an­lands­flug til lengri tíma í sam­hengi við far­þeg­a­spár og nauð­syn­lega upp­bygg­ingu.

Nið­ur­staða stýri­hóps­ins hefur vart farið fram­hjá neinum. Hann telur að nýr flug­völlur í Hvassa­hrauni, rétt hjá álver­inu í Straums­vík, hafi „mesta þró­un­ar­mögu­leika til fram­tíðar, borið saman við aðra flug­valla­kosti“. Not­hæfn­is­stuð­ull flug­vallar á því svæði var hæstur allra auk þess sem áætl­aður stofn­kost­aður flug­vallar og bygg­inga sem tækju við alir starf­semi Reykja­vík­ur­flug­vallar væri 22 millj­arðar króna, sem var ódýr­asti kost­ur­inn sem stýri­hóp­ur­inn skoð­aði.

Þar sem stýri­hóp­ur­inn metur að það þurfi að fara í nauð­syn­lega upp­bygg­ingu vegna milli­landa- og inn­an­lands­flugs þá dugar Reykja­vík­ur­flug­völlur eins og hann er í Vatns­mýr­inni ekki til fram­tíðar. Annað hvort þarf að flytja hann eða bæta við hann. Í skýrslu stýri­hóps­ins segir að það yrði mjög dýrt. Breyttar útfærslur í Vatns­mýr­inni myndu hafa mikil áhrif á umhverfi flug­vall­ar­ins auk þess sem þær væru kostn­að­ar­samar og myndu jafn­gilda því að byggja nýjan flug­völl.

Ábatasamt fyrir landsbyggðina


Nið­ur­staða skýrsl­unnar er sú að ábati flug­far­þega, bæði inn­an­lands- og milli­landa­far­þega, vegna breyttrar stað­setn­ingar sé á bil­inu 29 til 50 millj­arðar króna. Heild­ar­tap inn­an­lands­far­þega af flutn­ingi flug­vallar er metið á tvo til sjö millj­arða króna þar sem flutn­ingur leiðir til aukn­inga á ferða­kostn­aði þeirra. Íbúar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu tapa meira en íbúar á lands­byggð­inni, en tap þeirra er reiknað 850 millj­ón­irk róna. Það sam­an­tendur af tapi þeirra sem fljúga ein­göngu inn­an­lands (5,3 millj­arðar króna) og ábata þess hluta inn­an­lands­far­þega sem nota inn­an­lands­flugið á leið sinni til útlanda (4,4 millj­arðar króna). Það séu því tölu­verð sam­legð­ar­á­hrif til staðar fyrir inn­an­lands- og milli­landa­flug.

Þegar bara er horft til milli­landa­far­þega er það nið­ur­staða skýrsl­unnar að flutn­ingur milli­landa­flugs í Hvassa­hraun sé til mik­illa bóta. Ábati þeirra er met­inn á bil­inu 36 til 51 millj­arður króna. Ábati íbúa höfðu­borg­ar­svæð­is­ins og jað­ar­byggða þess í milli­landa­flugi er mestur, eða 34 til 48 millj­arðar króna. Íbúar lands­byggð­in­ar­innar hagn­ast hins vegar einnig á þess­ari leið, sam­kvæmt skýrsl­unni. Þar segir að íbúar lands­byggðar í milli­landa­flugi – þeir sem nota ekki inn­an­lands­flug á leið sinni til Reykja­víkur – hljóti tveggja til þriggja millj­arða króna ábata af sam­ein­ingu inn­an­lands- og milli­landa­flug­vallar. „Allur ábati lands­byggðar af sam­ein­ingu inn­an­lands- og milli­landa­flugs vegur því rúm­lega upp tap íbúa lands­byggðar vegna flutn­ings inn­an­lands­flug­vallar. Ráð­stöf­unin er því ábata­söm fyrir íbúa lands­byggðar. Sam­legð­ar­á­hrif inn­an­lands- og milli­landa­flugs eru til bóta fyrir íslenska flug­far­þega sam­kvæmt þeim mæli­kvörðum sem lagt er upp með,“ segir í skýrsl­unni.

Til bóta fyrir þjóðina


Hvassa­hrauns­flug­völlur má því vera 82 til 123 millj­örðum krónum dýr­ari en allur kostn­aður vegna Kefla­víkur- og Reykja­vík­ur­flug­vallar áður en að bygg­ing hans verður þjóð­hags­lega óhag­kvæm fjár­fest­ing, sam­kvæmt nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar. Þar er reyndar gegnið út frá því að allt inn­an­lands- og milli­landa­flug verði sam­einað á vell­inum og kostn­aður við hina tvo vell­ina sparist þá á móti. Afar lík­legt verður að telj­ast að það muni ekki ger­ast þegj­andi og hljóða­laust að loka Kefla­vík­ur­flug­velli og byggja upp nýjan alþjóða­flug­völl í Hvassa­hrauni, jafn­vel þótt að fyrir liggi að end­ur­nýja þurfi nán­ast öll mann­virki á honum á næstu árum. Atvinnu­á­standið er einna verst á Suð­ur­nesjum af öllum lands­svæðum og flug­völl­ur­inn er langstærsti vinnu­staður svæð­is­ins.

[caption id="attachment_26580" align="alignnone" width="640"] Milli­lands­flug­völlur þjóð­ar­innar er í dag í Keflavík.[/caption]

Millilandsflugvöllur þjóðarinnar er í dag í Keflavík.
Milli­lands­flug­völlur þjóð­ar­innar er í dag í Keflavík.

Í skýrslu stýri­hóps­ins segir að til að fá botn í það hvort flug­völl­ur­inn í Hvassa­hrauni sé hag­kvæmur kostur þurfi þó að ákvarða fjár­fest­ing­ar­þörf á Kefla­vík­ur­flug­velli, stofn- og rekstr­ar­kostnað Hvassa­hrauns­flug­vallar og nauð­syn­legra inn­viða og áætla hvernig vell­irnir tveir myndu vinna saman. „Nið­ur­staðan sýnir þó að sam­legð­ar­á­hrif inn­an­lands- og milli­landa­flugs yrðu til bóta fyrir þjóð­ina að gefnum for­sendum þ.e. að Íslend­ingar myndu hagn­ast af því að hafa aðgang að inn­an­lands- og milli­landa­flugi á sama stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Ekki lagt mat á að viðhalda Reykjavíkurflugvelli í núverandi mynd


Mjög til­finn­inga­heitar deilur hafa staðið um veru Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni. Sett var af stað und­ir­skrifta­stöfnun um að halda flug­vell­inum þar. Þegar Jóni Gnarr, þáver­andi borg­ar­stjóra Reykja­víkur, voru afhentar und­ir­skrift­irnar höfðu 69.802 manns skrifað undir. Sú und­ir­skrifta­söfnun, sem fer fram undir nafn­inu „Hjartað í Vatns­mýr­inni“, er sú fjöl­menn­asta sem ráð­ist hefur verið í á Íslandi.

Auk þess varð til sér­staks fram­boð fyrir síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar sem hafði það sem sitt helsta stefnu­mál, að minnsta kosti framan af kosn­inga­bar­átt­unni, að halda flug­vell­inum í Vatns­mýr­inni. Í fram­boð­inu blönd­uð­ust saman Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og eld­heitir áhuga­menn um áfram­hald­andi veru Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni undir nafn­inu Framsókn og flug­vall­ar­vinir. Greini­leg eft­ir­spurn var eftir mál­flutn­ingi fram­boðs­ins, þar sem það hlaut 10,7 pró­sent atkvæða og tvo kjörna borg­ar­full­trúa. Það verður reyndar að fylgja sög­unni að fylgi Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina fór fyrst á flug eftir að Svein­björg Birna Svein­bjarn­ar­dóttir, tjáði sig um and­stöðu sína við bygg­ingu mosku í Reykja­vík.

Í skýrslu stýri­hóps­ins er ekki lagt mat á hag­kvæmni þess að halda Reykja­vík­ur­flug­velli í núver­andi mynd, enda skoðun nefnd­ar­innar að fjár­fest­ingar sé þörf í inn­an­lands­flugi. Í frétta­til­kynn­ingu frá Framsókn og flug­vall­ar­vinum, sem send var út skömmu eftir að skýrslan var opin­beruð, kom fram að nið­ur­staðan breytti ekki afstöðu fram­boðs­ins. Það vill enn að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði óbréyttum í Vatns­mýr­inni.

Fylgj­endur Vatns­mýr­ar­flug­vall­ar­ins geta einnig tengt við þá skýru nið­ur­stöðu stýri­hóps­ins að tryggja þurfi rekstr­ar­ör­yggi Reykja­vík­ur­flug­vallar í Vatns­mýr­inni á meðan að und­ir­bún­ingur fyrir fram­tíð­ar­skipan flug­mála, og eftir atvikum fram­kvæmdir, fara fram. Flug­völl­ur­inn í Vatns­mýr­inni er því ekki að fara þaðan í bráð, þótt hann verði ekki þar um aldur og ævi.

Sjúkraflutningstími lengist lítillega


Stór partur af umræð­unni um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar hefur ætið snú­ist um nálægð hans við Lands­spít­al­ann til að tryggja öryggi sjúk­linga sem flogið er með til höf­uð­borg­ar­innar með sjúkra­flugi. Stýri­hop­ur­inn lét kanna hvaða áhrif flutn­ingur á mið­stöð sjúkra­flugs á flug­völl í Hvassa­hrauni myndi hafa á sjúkra­flutn­inga.

Þar kemur fram að ferða­tími með sjúkra­bíl frá flug­velli á Lands­spít­al­ann muni aukast um 7,5 til 11,5 mín­útur ef flug­völlur verður byggður í Hvassa­hrauni fremur en í Vatns­mýr­inni. Vert er að taka fram að sjúkra­flutn­ingur í for­gangi tók 157 til 158 mín­útur að með­al­tali á árunum 2012 til 2014, að með­töldum flutn­ingi af flug­velli. For­gangs­flutn­ingur er þó ein­ungis 3-4 pró­sent af sjúkra­flutn­ingum. Í skýrsl­unni segir: „Um er að ræða tíma frá því að beiðni um sjúkrafl ug berst og þar til sjúk­lingur er kom­inn á LSH. Sá tími sem líður frá atviki þar til við­bragðs­að­ili óskar eftir sjúkrafl ugi er þá ótal­inn. Að öðrum þáttum sjúkra­flutn­inga óbreyttum má búast við að tími sjúkra­flutn­ings með sjúkra­flugi leng­ist um 8,5-12,5 mín­útur vegna lengri flug- og akst­urs­tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár