Útskrifast frekar ef foreldrar eru háskólamenntaðir

Nemendur sem eiga háskóla­mennt­aða for­eldra eru mun lík­legri til að ljúka fram­halds­skóla innan fjög­urra ára. Um 74 pró­sent þeirra útskrif­uð­ust árið 2023, sam­an­borið við rúm­lega 41 pró­sent þar sem hvor­ugt for­eldrið hafði lokið fram­halds­skóla.

Dimmitera
Dimmitera Mennt­skæl­ingar fagna áfang­anum að útskrif­ast gjarnan með því að dimmitera. Mynd: Golli

Nemendur sem eiga háskóla­mennt­aða for­eldra eru mun lík­legri til að ljúka fram­halds­skóla innan fjög­urra ára en þeir sem eiga minna mennt­aða for­eldra.

Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að um 74 pró­sent nýnema árið 2019, sem áttu að minnsta kosti annað for­eldrið með háskóla­menntun, höfðu braut­skráðst árið 2023.

Til sam­an­burðar voru það aðeins rúm­lega 41 pró­sent þeirra nem­enda sem áttu for­eldra sem höfðu ekki lokið fram­halds­skóla­stigi.

Í heild­ina höfðu rúm 64 pró­sent nýnema á fram­halds­skóla­stigi árið 2019 lokið námi fjórum árum síðar. Það er sam­bæri­legt hlut­falli nýnema árið áður. Tæp 15 pró­sent voru enn í námi árið 2023 án þess að hafa útskrif­ast og tæp­lega 21 pró­sent höfðu hætt námi.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár