Ekkert ákveðið um þinglok

Þrátt fyrir að þingi eigi að ljúka í næstu viku eru fjölda­mörg stór mál rík­is­stjórn­ar­innar inni í nefndum og lítið að ger­ast í þingsalnum. Félags­mála­ráð­herra ætlar að koma með tvö stór frum­vörp til við­bótar inn í þingið.

Mikil umræða skap­að­ist um nauð­syn þess að Alþingi kæmi saman til funda nú í ágúst til þess að afgreiða mik­il­væg og stór mál fyrir kosn­ingar. Talað var um að stjórn­ar­and­staðan mætti ekki „þvæl­ast fyrir“ þessum stóru málum. En nú er óhætt að segja að mikil ládeyða sé yfir þing­stör­f­unum, að minnsta kosti þeim sem sjást almenn­ingi úr þing­sal.

Aðeins fjögur mál eru á dag­skrá þing­fund­ar­ins í dag. Störf þings­ins, sem er reglu­bund­inn dag­skrár­liður á þriðju­dags- og mið­viku­dags­fundum Alþingis, og svo atkvæða­greiðslur um þrjú frum­vörp rík­is­stjórn­ar­innar: frum­varp um lýð­heilsu­sjóð, EES-frum­varp um fjár­mála­fyr­ir­tæki og frum­varp um þjóðar­ör­ygg­is­ráð. Þegar búið er að ganga frá þessum þremur frum­vörpum munu aðeins tvö til við­bótar bíða eftir síð­ustu umræðu á þing­inu. Öll önnur mál rík­is­stjórn­ar­innar eru til umfjöll­unar í þing­nefndum, utan örfárra sem ekki eru komin á dag­skrá og tveggja frum­varpa frá félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra sem enn eru ekki komin inn í þingið.

Í gær komust sex þing­manna­mál á dag­skrá þings­ins, en það er oft mæli­kvarði á skort á málum frá rík­is­stjórn­inni þegar mörg slík mál kom­ast á dag­skrá.

Á að ljúka í næstu viku

Samkvæmt starfs­á­ætlun þings­ins á störfum þess að ljúka í lok næstu viku, og Eld­hús­dags­um­ræður eig að vera eftir slétta viku. Val­gerður Bjarna­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vakti athygli á því í gær að þrátt fyrir að starfs­á­ætlun þings­ins geri ráð fyrir þing­frestun þann 2. sept­em­ber, á föstu­dag í næstu viku, þá er veittur frestur til að gefa umsagnir um nokkur stór mál rík­is­stjórn­ar­innar til 1. sept­em­ber. Þegar umsagnir hafa borist fara þing­nefndir yfir þær og afgreiða mál til ann­arrar umræðu í þing­sal. Það er því ljóst að væg­ast sagt lít­ill tími er til stefnu ef ljúka á þingi á föstu­dag.

Einar K. Guð­fins­son, for­seti Alþingis, segir í sam­tali við Kjarnann að engar við­ræður séu hafnar um það hvernig og hvenær ljúka eigi þing­störfum. Hann segir að málin muni lík­lega skýr­ast seinni hluta þess­arar viku og það verði ekki fyrr en í kjöl­far þess sem fundað verði um fram­haldið. Hann ætli ekki að gefa neitt út fyrr en hann hafi fundað með þing­flokks­for­mönnum og mögu­lega muni for­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar funda með stjórn­ar­and­stöð­unni. Hann segir einnig að jafn­vel þó að umsagn­ar­frestur sé til fyrsta sept­em­ber í stórum málum rík­is­stjórn­ar­innar þá séu þing­nefnd­irnar byrj­aðar að fjalla um málin og búa sér þannig í hag­inn.

Munu ekki öll fara í gegn

Sem fyrr segir eru mörg stór mál inni í þing­nefndum, og má nefna búvöru­samn­inga, losun fjár­magns­hafta, breyt­ingar á náms­lána­kerf­inu, stuðn­ingur til kaupa á fyrstu íbúð og breyt­ingar á lögum um verð­trygg­ingu. Þá eru ekki talin með tvö stór mál sem Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, er með í vinnslu í sínu ráðu­neyti. Það eru breyt­ingar á almanna­trygg­inga­kerf­inu og breyt­ingar á fæð­ing­ar­or­lofi. Matthías Imsland, aðstoð­ar­maður Eyglóar, segir í sam­tali við Kjarnann að Eygló ætli sér að leggja bæði frum­vörpin fram á þingi. Málin séu til með­ferðar hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og það ráð­ist af þeirri vinnu hvenær hægt verði að leggja þau fram fyrir rík­is­stjórn og svo þingið.

Það getur haft veru­leg áhrif á fram­gang mála Eyglóar að hún sat í síð­ustu viku hjá við afgreiðslu á fjár­mála­stefnu og fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði í kjöl­far þess að Eygló gæti ekki gert miklar kröfur um að fá fram­gang ann­arra mála á meðan hún styður ekki það sem aðrir ráð­herrar geri.

Rík­is­stjórnin fundar venju­lega tvisvar í viku og það þýðir að þrír fundir eru eftir þangað til þingi á að vera lokið. Jafnvel þótt Eygló nái að leggja málin fram þar þá ættu þau eftir að fara í gegnum þingið.

Ekki mjög mikið svigrúm til frestunar

Búið er að boða að þing­kosn­ingar verði 29. októ­ber næst­kom­andi. Það sést í þing­sal að þing­menn eru komnir með hug­ann við kosn­ingar. Eitt skýrasta dæmið var kannski þegar verið var að ræða til­lögu Bjartrar fram­tíðar um það að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið í gær. Einhvern tím­ann hefði verið mikil og eld­fim umræða um slík mál, en í gær tóku þrír þing­menn til máls í umræð­unni.

Jafnvel þótt eitt­hvað svig­rúm sé til að halda þing­störfum áfram eftir lok næstu viku er ljóst að það er ekki mikið ef halda á kosn­ingar 29. októ­ber. Og þrátt fyrir að Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son hafi sagt að stefnt verði að kosn­ingum en ef þing­störf gangi ekki vel geti það breyst, þá er það ekki svo í raun og veru. Und­ir­bún­ingur fyrir kosn­ingar krefst þess ein­fald­lega að dag­ur­inn haldi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár