Líst illa á það sem stjórnvöld ætla sér 1. maí

Mið­stjórn ASÍ varar við fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um til­slak­anir á landa­mærum og segir hætt við því að ferða­þjón­ustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opn­unin verði til þess að grípa þurfi til harð­ari sótt­varn­ar­að­gerða inn­an­lands.

Miðstjórn ASÍ segir hætt við því að ferðaþjónustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opnunin verði til þess að grípa þurfi til harðari sóttvarnaraðgerða innanlands.
Mið­stjórn ASÍ segir hætt við því að ferða­þjón­ustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opn­unin verði til þess að grípa þurfi til harð­ari sótt­varn­ar­að­gerða inn­an­lands. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands varar við áformum um opn­ari landa­mæri á meðan bólu­setn­ingar hafi ekki náð þeim mark­miðum sem stefnt er að. Í ályktun mið­stjórnar segir að ávinn­ing­ur­inn af þeim áformum sé óljós.

Rík­is­stjórnin hefur boðað að frá og með 1. maí verði tekið upp lita­kóð­un­ar­kerfi á landa­mærum Íslands, sem bygg­ist á því að mis­strangar reglur gildi um komu­far­þega eftir því hver staða far­ald­urs­ins er í því ríki sem þeir koma frá.

Einungis vottorð um neikvætt próf og ein landamæraskimun fyrir suma

Áætlun rík­is­stjórn­ar­innar um breytt fyr­ir­komu­lag sótt­varna á landa­mærum eftir 1. maí var kynnt 15. jan­úar og hefur verið sögð ætluð til þess að gefa ferða­þjón­ust­unni hér á landi fyr­ir­sjá­an­leika inn í sum­arið.

Samkvæmt áætl­unum sem stjórn­völd settu fram munu þeir sem koma til lands­ins frá „grænum“ eða „app­el­sínu­gulum“ ríkjum þar sem 14 daga nýgengi smita er allt að 50 til 150 smit á hverja 100 þús­und íbúa geta sleppt bæði sótt­kví og síð­ari skimun hér á landi, ef þeir koma með nei­kvætt COVID-19 próf og fram­vísa á landa­mær­unum.

Það hvort miðað er við nýgengi smita upp á 50 eða 150 á hverja 100 þús­und íbúa fer eftir því hvort yfir eða undir 4 pró­sent allra COVID-19 prófa sem tekin hafa verið í land­inu sem ferða­mað­ur­inn kemur frá hafa reynst jákvæð und­an­farna viku.

Í íslensku sam­hengi þýðir 14 daga nýgengi smita upp á 150 á hverja 100 þús­und íbúa að hér á landi hefðu greinst 39,2 smit að með­al­tali á hverjum degi á 14 daga tíma­bili.

Til mikils að vinna að fólk sé frjálst innanlands

Mið­stjórn ASÍ geldur sem áður segir var­hug við fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda og segir hætt við því að ferða­þjón­ustan og tengdar greinar geti borið meiri skaða af en ella ef opn­unin verði til þess að grípa þurfi til harð­ari sótt­varn­ar­að­gerða inn­an­lands.

[adspot]

„Horfa ber til þess að smit eru enn afar útbreidd í fjöl­mörgum löndum heims og þar á meðal eru nýrri afbrigði af veirunni sem enn er tak­mörkuð þekk­ing á. Það er til mik­ils að vinna fyrir sam­fé­lagið á Íslandi að fólk sé frjálst ferða sinna inn­an­lands í sumar og geti notið sum­ar­leyfa og sam­vista án hertra aðgerða,“ segir í ályktun mið­stjórn­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár