Vilja koma böndum á óhóflega sykurneyslu landsmanna

Skipaður hefur starfs­hópur til að inn­leiða aðgerða­á­ætlun Embættis land­læknis til að draga úr syk­ur­neyslu lands­manna. Land­læknir telur að vöru­gjöld og skatt­lagn­ing á sykruð mat­væli sé sú aðgerð sem beri hvað mestan árangur þegar draga á úr syk­ur­neyslu.

Mataræði er einn af veiga­mestu áhrifa­þátt­unum þegar kemur heilsu lands­manna ásamt því að vera megin áhættu­þáttur fyrir sjúk­dóms­byrði hér á landi. Íslend­ingar neyta mest af sykruðum gos­drykkjum og syk­ur­ríkum vörum af Norð­ur­landa­þjóð­unum en rúm­lega þriðj­ungur af við­bættum sykri í fæðu lands­manna kemur úr gos­drykkjum. Því leggur Embætti land­læknis áherslu á að stjórn­völd hækki skatta og vöru­gjöld á gos­drykkjum sem og sæl­gæti svo að verð á þessum vörum hækki um að minnsta kosti 20 pró­sent í nýrri aðgerða­á­ætlun emb­ætt­is­ins um minni syk­ur­neyslu.

Skattlagning ætti að vera ein af forgangsaðgerðum stjórnvalda

Heil­brigð­is­ráðu­neytið faldi Embætti land­læknis að gera aðgerða­á­ætlun til að draga úr syk­ur­neyslu lands­manna í jan­úar síð­ast­liðnum en í stjórn­ar­sátt­mála núver­andi rík­is­stjórnar kemur fram að skoða eigi beit­ingu efna­hags­legra hvata til efl­ingar lýð­heilsu. Embættið skil­aði ráð­herra aðgerða­á­ætl­un­inni í maí og á rík­is­stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku var ákveðið að skipa starfs­hóp sem falið verður að inn­leiða aðgerða­á­ætl­un­ina.

Aðgerða­á­ætl­unin er í 14 liðum og lúta aðgerð­irnar meðal ann­ars að heilsu­efl­andi sam­fé­lögum, skólum og vinnu­stöðum og tak­mörkun á mark­aðs­setn­ingu á óhollum mat­vörum beint að börnum. Í áætl­un­inni er þó finna for­gangs­að­gerð sem er skatt­lagn­ing á sykruð mat­væli en sam­kvæmt emb­ætt­inu er ljóst að álögur á sykruð mat­væli sé sú aðgerð sem beri hvað mestan árangur þegar draga á úr syk­ur­neyslu.

27 prósent Íslendinga of feitir

Á Íslandi er matar­æði einn af megin áhættu­þáttum fyrir sjúk­dóms­byrði, sam­kvæmt Global Burden of Disease profile um Ísland. Hér á landi er syk­ur­neysla mikil en sam­kvæmt tölum frá árunum 2010 til 2012 var syk­ur­neysla hjá ungu fólki og sex ára börnum yfir ráð­lagðri hámarks­neyslu.

Enn fremur kemur fram í nið­ur­stöðum landskönn­unar, á árunum 2010 til 2011, að gos­drykkir vega þyngst í syk­ur­neyslu full­orð­inna en um þriðj­ungur, 34 pró­sent, við­bætts syk­urs kom úr sykruðum gos- og svala­drykkjum. Þá neyttu 20 pró­sent full­orð­inna Íslend­inga gos­drykkja, sykraða eða syk­ur­lausa, dag­lega eða oftar, sam­kvæmt heil­brigð­is­vöktun árið 2018. [adspot]

Þá var neysla full­orð­inna á syk­ur­ríkum vörum, sykruðum gos­drykkjum, sæl­gæti og kökum, mest á Íslandi af Norð­ur­lönd­unum, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nor­rænnar vökt­unar á matar­æði frá árinu 2014. Í sömu könnun kom fram að hlut­fall of feitra var sömu­leiðis hæst hér á landi en hlut­fall of feitra hér landi er 26,6 pró­sent.

Rann­sóknir hafa sýnt að neysla á syk­ur­ríkum vörum eykur líkur á offitu og tann­skemmdum og mikil neysla sykraðra gos- og svala­drykkja getur auk þess aukið líkur á syk­ur­sýki af teg­und tvö. Í áætl­un­inni segir að því sé til mik­ils að vinna að draga úr neyslu á syk­ur­ríkum vörum, þar með talið gos- og svala­drykkjum.

20 prósent skattur getur minnkað neyslu um 20 prósent

Í skýrslu frá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni frá 2016 sem og í nýlegri skýrslu frá World Cancer Research Fund frá 2018 kemur fram að skipu­lagðir skattar á mat­væli, ásamt fleiri aðgerðum, geti verið áhrifa­rík leið til að bæta neyslu­venjur. Þá er mestur ávinn­ingur af skatti á sykraða drykki en hann þarf að vera áþreif­an­legur og skatt­ur­inn þarf að hækka verð um að minnsta kosti 20 pró­sent, sam­kvæmt skýrsl­unni. Í nið­ur­stöðum skýrsl­unnar kemur jafn­framt fram að 20 pró­sent skattur geti minnkað neyslu um 20 pró­sent.

Sífellt fleiri lönd eða land­svæði hafa bæst í hóp þeirra sem skatt­leggja sér­stak­lega drykki og eða aðrar sykraðar vörur. Í Berkeley í Kali­forníu voru lögð á vöru­gjöld á drykki með við­bættum sykri í mars 2015. Í kjöl­farið dróst neysla á sykruðum gos­drykkjum saman um 26 pró­sent en vatns­drykkja jókst umtals­vert. Í Mexíkó voru vöru­gjöld lögð á sykraða drykki í byrjun árs 2014, sem sam­svör­uðu um 10 pró­sent hækkun. Þar í landi minnk­aði neysla um 12 pró­sent eftir að vöru­gjöldin voru lögð á. Á meðal tekju­lágra var minnkunin um 17 pró­sent.

Enn fremur kemur fram í skýrslu Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unar að 10 til 30 pró­sent lækkun á sköttum á hollum vörum líkt og ávöxtum og græn­meti geti verið áhrifa­rík leið til að auka neyslu á þessum hollu fæðu­teg­undum. Nið­ur­stöður rann­sókna hafa sýnt að slík verð­hækkun geti haft áhrif þar sem þörfin er brýn­ust, þar að segja hjá börnum og ung­mennum og öðrum þeim sem drekka mest af gos­drykkjum.

Hærri skattar og gjöld á óholl­ustu, lægri skattar á holl­ustu

Í aðgerða­á­ætlun land­læknis segir að skatt­lagn­ing ætti því að vera ein af for­gangs­að­gerðum stjórn­valda til að fyr­ir­byggja lang­vinna sjúk­dóma og stuðla að betri heilsu og vellíðan. Eftir að hafa farið yfir sögu skatt­lagn­ingar á mat­vælum hér á landi og reynslu ann­arra þjóða í þessum efnum leggur Embætti land­læknis til að hækka verð á sykruðum og syk­ur­lausum gos- og svala­drykkjum og sæl­gæti um að minnsta kosti 20 pró­sent. Þar með talið eru orku­drykkir en ekki kol­sýrt vatn án sítrónu­sýru.

Samkvæmt emb­ætt­inu er hægt að fram­kvæma þetta strax með því að færa þessar vöru úr neðri þrepi virð­is­auka­skatts, 11 pró­sent, í hærra þrep virð­is­auka­skatts 24 pró­sent, auk þess að leggja sam­hliða því vöru­gjöld á þessar vörur þannig að verð­hækk­unin nemi að minnsta kosti 20 pró­sent í heild­ina. 

Þá segir að hægt sé að nýta þá fjár­muni sem komi inn með skatt­lagn­ing­unni til að lækka verð á græn­meti og ávöxtum, til dæmis með því að afnema virð­is­auka­skatt af þeim vörum en slíkar und­an­þágur eru nú þegar til í lögum um virð­is­auka­skatt fyrir ýmsa starf­semi. Í áætl­un­inni segir að þannig mætti stuðla að auknu aðgengi að þessum holl­ustu­vörum óháð efna­hag og auka þannig jöfnuð til heilsu. Auk þess segir að einnig mætti nýta hluta af fjár­munum sem koma inn fyrir starf á sviði heilsu­efl­ingar og rann­sókna.

Í raun aldrei verið sett álög á sykruð matvæli

Í sam­an­tekt land­læknis um þróun virð­is­auka­skatts og vöru­gjalda á gos­drykkjum, sæl­gæti og öðrum mat­vælum á síð­ustu árum kemur fram að árið 2007 lækk­aði virð­is­auka­skattur á mat­vöru niður í 7 pró­sent, þar á meðal virð­is­auka­skattur á gos­drykki og sæl­gæti úr 24,5 pró­sentum í 7 pró­sent. Sú breyt­ing hélst til árs­ins 2015 þegar virð­is­auka­skattur var hækk­aður upp í 11 pró­sent á mat­vörur, þar á meðal gos­drykki og sæl­gæti.

Jafn­framt voru gos­drykkir og sykraðir svala­drykkir ekki und­an­skildir nið­ur­fell­ingu vöru­gjalds árið 2007, líkt og annað sæl­gæti. Nið­ur­staðan var því sú að þessir drykkir voru meðal þeirra mat­vara sem lækk­uðu hlut­falls­lega mest þegar bæði kom til lækk­unar á virð­is­auka­skatti úr 24,5 pró­sent í 7 pró­sent pró­sent ásamt nið­ur­fell­ingar á vöru­gjaldi. Afnám vöru­gjalda leiddi því í raun til raun­lækk­unar á gos­drykkjum og sæt­indum og hækk­unar á hollum vörum líkt og ávöxtum og fiski.

Árið 2013 var síðan gerð til­raun til að leggja á svo­kall­aðn syk­ur­skatt hér á landi og átti sú aðgerð að vera lýð­heilsu­að­gerð en sam­kvæmt land­lækni var ekki tekið til­lit til lýð­heilsu­sjón­ar­miða við þá fram­kvæmd. Sykraðir gos­drykkir hækk­uðu um ein­ungis um 5 krónur á lítra og súkkulaði lækk­aði í verði þar sem vöru­gjöld sem fyrir voru á súkkulaði voru hærri en þau vöru­gjöld sem lögð voru á eftir syk­ur­inni­haldi.

Í aðgerða­á­ætl­un­inni bendir land­læknir á að þessi aðgerð sé ekki lík­leg til árang­urs og frekar þurfi áþreif­an­lega hækkun á verði gos­drykkja og sæl­gætis. Hún segir að það hafi því í raun aldrei verið sett álög á sykruð mat­væli á Íslandi út frá lýð­heilsu­sjón­ar­miðum.

Syk­ur­skatt­ur­inn svo­kall­aður var síðan afnum­inn í stjórn­ar­tíð Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks árið 2015. Þá var virð­is­auka­skattur á mat­vælum hækk­aður úr 7 pró­sent í 11 pró­sent og vöru­gjöld, þar með talin þau sem lögð­ust á sykruð mat­væli, afnumin. Afleið­ing þess­ara aðgerða var að gos­drykkir lækk­uðu í verði og ávextir og græn­meti hækk­uðu. Við þessar aðgerðir lækk­aði verð á tveggja lítra kók­flösku um tæp­lega 14 pró­sent, sam­kvæmt vef Hag­stof­unnar.

Takmarka markaðssetningu og auka fræðslu

Í áætl­un­inni segir að til draga úr syk­ur­neyslu sé nauð­syn­legt að hrinda í fram­kvæmd fjölda sam­stilltra aðgerða með aðkomu margra aðila. Því er einnig lagðar til 13 aðgerðir til við­bótar við álög á sykraða drykki og sæl­gæti. Þar á meðal er lagt til að fylgst verður með og metið hvaða áhrif skatt­lagn­ing hefur á neyslu­venjur. Embætti land­læknis segir að það verði að fram­kvæma landskönnun á matar­æði reglu­lega, bæði meðal barna og full­orðna.

Jafn­framt er mælt með aðgerðum sem breyta umhverfi fólks þannig að holla valið verði auð­velda valið þar sem fólk býr, starfar og ver frí­tíma sínum. Þar á meðal er lagt til að sett verði í lög að matar­æði á leik­skólum sé í sam­ræmi við ráð­legg­ingar Embættis land­læknis um matar­æði líkt og kveðið er á um í lögum um grunn­skóla og fram­halds­skóla.

Önnur aðgerð er að sveit­ar­fé­lög fylgist með og stuðli að holl­ara mat­ar­fram­boði í íþrótta­mann­virkjum í sam­ræmi við ráð­legg­ingar Embættis land­læknis. Þar á meðal að draga úr óholl­ustu með því að hafa ekki til sölu gos­drykki eða sæl­gæti í þeim mann­virkjum.

Auk þess segir í áætl­un­inni að draga þurfi úr mark­aðs­setn­ingu á óhollum mat­vælum sem beint er að börnum, hvort sem er í sjón­varpi, á net­inu, í smá­forritum en einnig í tengslum við íþrótta­við­burði og kostun á þeim.

Holla valið verði auðvelda valið

Enn fremur eru versl­anir hvattar til að selja ekki sæl­gæti í svoköll­uðum nammi­börum og að versl­anir verði hvattar til að hætta með til­boð á óholl­ustu, til dæmis afslætti á sæl­gæti, og bjóða ekki gos­drykki frítt eða á lægra verði með skyndi­bita­til­boðum.

Auk þess telur land­læknir að það þurfi að efla sam­nor­ræna mat­væla­merkið Skrá­argatið þannig að það verði ein­falt að velja holl­ari mat­vöru. Embættið segir að setja þurfi fjár­magn í að kynna merkið betur fyrir neyt­endum og fram­leið­endum þannig að vörum sem bera merkið fjölgi á mark­aði. Auk þess er lagt til að mat­væla­fram­leið­endur verði hvattir til að fram­leiða vörur sem upp­fylla skil­yrði fyrir Skrá­argatið og að merkja þær með því.

FA gagnrýnir áform um nýjan sykurskatt

Ekki eru allir sam­mála um kosti þess að leggja á nýjan syk­ur­skatt en Félag atvinnu­rek­anda gagn­rýnir áformin í frétta­til­kynn­ingu á vef sínum í dag. Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri FA, segir að und­an­farin ár hefði náðst veru­legur árangur í að ein­falda kerfi neyslu­skatta, afleggja vöru­gjöld og skatt­leggja alla mat­vöru í sama þrepi virð­is­auka­skatts. Að mati FA ætti að stefna að einu, lágu virð­is­auka­skatt­þrepi fyrir allar vörur og þjón­ustu. Ólafur segir að til­lögur land­læknis gangi þvert gegn þessu og myndu flækja skatt­kerfið á ný með til­heyr­andi flækju­stigi, óhag­ræði og umstangi fyrir fyr­ir­tæki og hættu á und­an­skotum frá skatti.

Jafnframt segir Ólafur að samkvæmt rannsókn á áhrifum sykurskattsins sem lagður var á árin 2014 til 2015 hafi sykurskatturinn ekki haft nein áhrif á neyslu sykraðra vara og skilaði eingöngu auknum tekjum í ríkissjóð.

Auk þessa segir Ólafur að reynslan af sykurskatti í öðrum ríkjum sé mjög misvísandi. Hann segir að á gosdrykkjamarkaði hafi þróunin undanfarin ár verið sú að hlutfall neyslu sykraðra drykkja hafi minnkað hratt, á sama tíma og hlutfall vatnsdrykkja hækkaði ört. Hann telur að þessi breyting hafi orðið til vegna breyttra neysluhátta neytenda og breytinga fyrirtækja á vöruframboði sínu til að mæta kröfum neytenda, alveg án afskipta ríkisins.

„Það er bara svo óskaplega erfitt þegar stjórnvöld eru farin að ákveða fyrir okkur hvað er hollt og hvað er óhollt og breyta verðinu á hlutum til að stýra neyslunni. Hvar endar það? Ef við ætlum að leggja á skatta eftir þessu, af hverju eru þá ekki háir skattar á sjónvörpum? Af hverju eru ekki lágir skattar á hlaupaskóm og reiðhjólum, og svo framvegis? Þetta er röksemdafærsla sem endar bara strax úti í skurði,“ segir Ólafur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár