Mynd: Pexels

Starfsfólk Landsbankans má ekki taka þátt í útboðum sem bankinn annast

Fjár­mála­eft­ir­litið rann­sakar mögu­lega hags­muna­á­rekstra sem áttu sér stað þegar starfs­menn sölu­ráð­gjafa eða umsjón­ar­að­ila lok­aðs útboðs í Íslands­banka tóku sjálfir þátt í útboð­inu.

Enginn starfs­maður Lands­bank­ans, sem var á meðal sölu­ráð­gjafa í sölu á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars, óskaði eftir heim­ild til að taka sjálfur þátt í útboð­inu og eng­inn starfs­maður bank­ans fékk slíkt leyfi. Starfs­fólki Lands­bank­ans er óheim­ilt að taka þátt í almennum útboðum á fjár­mála­gern­ingum sem bank­inn gefur út og í almennum útboðum sem bank­inn ann­ast, nema því aðeins að í útboði sé óskað eftir til­boðum í hluta­bréf á föstu gengi en ekki verð­til­boðum í hluta­bréf, gengi eða vaxta­kjör og að þeir gangi ekki fyrir sem fyrstir skrá sig.

Þetta kemur fram í svari Rúnars Pálma­sonar, upp­lýs­inga­full­trúa bank­ans, við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvaða reglur gilda um þátt­töku starfs­manna Lands­bank­ans í útboðum sem hann sér um eða kemur að. Lands­bank­inn var einn fimm inn­lendra sölu­ráð­gjafa sem komu að lok­uðu útboði á hlut rík­is­ins í Íslands­banka í mars.

Rúnar segir enn fremur að í útboðs­lýs­ingu vegna almennra útboða sem bank­inn ann­ist eigi að greina frá því hvort starfs­fólki sé heim­ilt að taka þátt í útboði og sam­kvæmt hvaða skil­málum og skulu til­boð starfs­manna ber­ast við upp­haf fyrsta til­boðs­dags.

Þetta er hluti af reglu­verki sem Lands­bank­inn hefur sett sér um við­skipti starfs­fólks með fjár­mála­gern­inga og gjald­eyri. Í svar­inu segir að mark­mið regln­anna sé að forð­ast hags­muna­á­rekstra og draga úr hættu á við­skiptum sem geta gefið til­efni til gagn­rýni á stjórn­ar­hætti, stjórn­endur og starfs­fólk eða stofna hags­munum við­skipta­vina í hættu. „Starfs­fólk skal afla sam­þykkis reglu­vörslu til við­skipta með fjár­mála­gern­inga fyr­ir­fram, þ.m.t. óskráða fjár­mála­gern­inga. Reglu­varsla metur hvort að til staðar séu hags­muna­á­rekstrar sam­kvæmt reglum bank­ans.

Reglu­varsla kann að setja frek­ari skorður við þátt­töku starfs­fólks ef hætta er talin á hags­muna­á­rekstrum. Þannig hafa verið settar skorður á þátt­töku starfs­fólk sem ann­ast fram­kvæmd útboða eða kunna að hafa frek­ari upp­lýs­ingar um fram­kvæmd­ina sem ekki eru opin­berar.“

Starfs­fólk Lands­bank­ans sem vegna starfa sinna telst fag­legir ráð­gjafar útgef­anda fjár­mála­gern­ings, er auk þess óheim­ilt að eiga við­skipti með fjár­mála­gern­ing við­kom­andi útgef­enda frá því að verk­efni hefst og næstu þrjá mán­uði eftir að því lýkur, nema því aðeins að verk­efni ljúki fyrr með opin­berri útgáfu á upp­lýs­ingum.

Tíðkast ekki erlendis

Tilefni fyr­ir­spurnar Kjarnans var þátt­taka átta starfs­manna Íslands­banka, eða aðila tengdum starfs­mönnum, í lok­uðu útboði á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í bank­anum 22. mars síð­ast­lið­inn, en fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf og verð­bréfa­miðlun Íslands­­­banka voru á meðal umsjón­­ar­að­ila útboðs­ins.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, hringir inn fyrstu viðskipti með bréf bankans í fyrrasumar.
Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, hringir inn fyrstu við­skipti með bréf bank­ans í fyrra­sumar.

Fjár­­­mála­eft­ir­lit Seðla­­banka Íslands er að rann­saka hátt­­semi ein­hverra þeirra fimm inn­­­lendu sölu­að­ila sem Banka­­sýslan valdi til að vinna að útboð­inu. Heim­ildir Kjarn­ans herma að þar sé verið að skoða mög­u­­lega hags­muna­á­­rekstra, meðal ann­­ars vegna þess að starfs­­menn sumra sölu­ráð­gjafa hafi sjálfir tekið þátt í útboð­in­u. Þar sé að minnsta kosti verið að horfa á þátt­töku áður­nefndra átta starfs­manna eða tengdra aðila innan Íslands­banka og kaup stærsta eig­anda Íslenskra Verð­bréfa, sem er einnig eig­in­­kona for­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, keypti auk þess hlut.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið frá Íslands­banki sagði að stjórn­endur hans hlusti á þá gagn­rýni sem fram hefur komið um þátt­töku starfs­fólks bank­ans í útboð­inu og að reglur um þátt­töku starfs­manna yrðu rýndar í kjöl­far þessa. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands vegna birt­ingu á upp­gjöri bank­ans fyrir fyrstu þrjá mán­uði árs­ins, sem birt var á fimmtu­dag, var haft eftir Birnu Ein­ars­dóttur, banka­stjóra Íslands­banka, að vinna „við breyt­ingar á reglum bank­ans varð­andi verð­bréfa­við­skipti starfs­manna“ standi yfir.

Á fundi fjár­­laga­­nefndar í apríl sagði Jón Gunnar Jóns­son, for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, að allir fimm inn­­­lendu sölu­ráð­gjaf­­arnir hefðu fengið fyr­ir­­spurnir frá Fjár­­­mála­eft­ir­liti Seðla­­banka Íslands vegna rann­­sóknar þess, en að það lægi ekki fyrir að grunur væri um mög­u­­leg brot á reglum eða lögum gagn­vart þeim öll­u­m.

Lárus Blöndal, stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins, og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri hennar, sátu fyrir svörum á opnum fundi fjárlaganefndar fyrir skemmstu.
Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, og Jón Gunnar Jónsson, for­stjóri hennar, sátu fyrir svörum á opnum fundi fjár­laga­nefndar fyrir skemmstu.

Hann hafi rekið augun í nafn starfs­manns Íslands­banka á væntum kaup­enda­lista þegar verið var að safna áskriftum og spurt bank­ann út í það, en fengið þau svör að reglu­vörður hefði sam­þykkt þetta. Jón Gunnar sagði að erlendis hefði það aldrei tíðkast að starfs­menn sölu­ráð­gjafa tækju þátt í útboði og að það hefði verið litið horn­auga.

Starfsmenn fá ekki almenna heimild til að kaupa í tilboðssölu

Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­inga­full­trúi Arion banka, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að bank­inn hafi sett sér sér­stakar reglu um verð­bréfa­við­skipti starfs­fólks. „Samkvæmt þeim er starfs­mönnum, og nátengdum aðilum, óheim­ilt að eiga við­skipti með verð­bréf búi þeir yfir trún­að­ar­upp­lýs­ingum sem tengj­ast við­kom­andi við­skiptum. Ætíð er horft til þess að verð­bréfa­við­skipti starfs­fólks séu hafin yfir gagn­rýni og skapi hvorki hættu á hags­muna­á­rekstrum né orð­sporðs­á­hættu.“

Þegar Arion banki hafi verið sölu­að­ili í almennum frumút­boðum, sem standi almenn­ingi til boða, hafi reglan verið sú að heim­ila starfs­fólki þátt­töku án þess að óska eftir áliti reglu­vörslu fyrir að hámarki tíu millj­ónir króna. Þátttaka umfram það kalli á sam­þykki reglu­vörslu. „Þessi fram­kvæmd skýrist af því að lýs­ing hefur verið gefin út og því eiga engar inn­herj­a­upp­lýs­ingar að vera til staðar. Starfs­mönnum sem halda utan um til­boðs­bók er þó óheim­ilt að taka þátt, til að fyr­ir­byggja að unnt sé að lesa út úr upp­lýs­ingum um þátt­töku eftir að útboðið er byrjað. Í ákveðnum til­vikum hefur einnig verið sett sú tak­mörkun að starfs­mönnum er ein­göngu heim­ilt að taka þátt fyrsta dag útboðs. Það er líka regla í frumút­boðum að tekið er sam­tal við útgef­anda varð­andi mögu­lega frek­ari úti­lokun ein­hverra hópa starfs­manna.“

Í til­boðs­sölu gildi þó í öllum aðal­at­riðum sömu reglur nema hvað starfs­menn fái ekki almenna heim­ild til þátt­töku. „Þeirra þátt­taka er háð rík­ari tak­mörk­unum og heim­ild frá reglu­vörslu,“ segir Haraldur. Arion banki var ekki á meðal þeirra fjár­mála­fyr­ir­tækja sem veittu sölu­ráð­gjöf þegar hlutir í Íslands­banka voru seldir í mars.

Regluvörður hefur heimilað starfsmönnum að kaupa

Það var Kvika banki ekki heldur. Í svari Ernu Heiðrúnar Jóns­dóttur, reglu­varðar Kviku banka, við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvaða reglur gildi um útboð sem bank­inn kemur að segir að hann hafi sett sér umfangs­miklar og ítar­legar innri reglur um eigið við­skipti starfs­manna með fjár­mála­gern­inga, þar sem þeim séu settar veru­legar skorður. „Reglur þessar ná til þátt­töku starfs­manna í útboðum. Þátttaka er alltaf háð sam­þykki reglu­varðar. Í regl­unum er sér­stakt ákvæði sem kveður á um að starfs­mönnum sé óheim­ilt að taka þátt í útboðum sem bank­inn ann­ast (þ.e. er umsjón­ar­að­ili að), nema að upp­fylltum ákveðnum ströngum skil­yrðum. Áður en kemur að útboð­inu sjálfu er mögu­leg þátt­taka starfs­manna rædd milli reglu­varðar og stjórn­enda, þ.e. hvort við­eig­andi sé að starfs­menn taki þátt og ef svo er hvort og hvernig umrædd skil­yrði séu upp­fyllt. Bankinn hefur áður bannað þátt­töku starfs­manna undir þessum kring­um­stæðum.“

Efn­is­at­riði regln­anna og breyt­ingar þar á séu ræddar í fram­kvæmda­stjórn bank­ans að við­stöddum reglu­verði og svo teknar fyrir og sam­þykktar af stjórn. Reglu­vörður og stjórn­endur ræða þátt­töku starfs­manna í útboðum sem bank­inn hefur umsjón með eða kemur að áður en til útboðs kemur. Í sam­ræmi við þessar reglur og verk­lag hafi reglu­vörður bank­ans heim­ilað starfs­mönnum að kaupa í útboðum sem bank­inn hafi séð um eða kom að.

Sé Kvika ekki umsjón­ar­að­ili en hugs­an­lega ráð­gef­andi í útboðs­ferli eða komi að ferl­inu með öðrum hætti gilda reglur um eigin við­skipti starfs­manna með sama hætti og um önnur við­skipti starfs­manna með fjár­mála­gern­inga. „Fram­an­greind sér­skil­yrði eiga þá ekki við með beinum eða jafn ströngum hætti. Þátttaka er heimil ef innri reglur koma ekki í veg fyrir það af ein­hverjum ástæðum, t.a.m. hags­muna­á­rekstrum/orð­spors­á­hættu o.s.frv. Undir þessum kring­um­stæðum er einnig alla jafna farið almennt yfir hugs­an­lega þátt­töku starfs­manna áður en til útboðs kemur af reglu­verði og stjórn­endum. Starfs­menn eru alla jafna háðir 90 daga lág­marks eign­ar­halds­tíma frá kaup­degi fjár­mála­gern­ings. Sú krafa gildir um fjár­mála­gern­inga sem starfs­menn eign­ast við þátt­töku í útboðum og mið­ast upp­hafs­dagur þá við þann dag sem bréfin eru tekin til við­skipta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár