Ásta biðst afsökunar á ummælum um að hafa ekki efni á íbúð

Þing­maður Pírata segir að ummæli hennar í Silfrinu síð­ast­lið­inn sunnu­dag hafi verið sett fram í hugs­un­ar­leysi. Hún geri sér grein fyrir að aðstæður hennar séu ekki sam­bæri­legar við aðstæður fólks almennt.

Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­maður Pírata, hefur beðist afsök­unar á því að hafa sagst ekki geta keypt sér íbúð á þeim launum sem hún hefur sem þing­maður. Ummælin lét hún falla í Silfrinu á RÚV á sunnu­dag. Útborguð laun Ástu eftir skatta og gjöld eru um 800 þús­und krónur á mán­uði.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook í dag biðst Ásta afsök­unar á þessum orðum. „Þetta var sagt í hugs­un­ar­leysi og það var aldrei ætlun mín á nokkurn hátt að setja mínar fjár­hags­legu aðstæður að jöfnu við aðstæður ann­ars ungs fólks á Íslandi. Ég geri mér auð­vitað grein fyrir því að aðstæður mínar eru ekki sam­bæri­legar við aðstæður fólks almennt á Íslandi og ég skil vel hvernig þessi ummæli þóttu óvið­eig­andi og jafn­vel sær­andi. Það sem ég vildi koma á fram­færi í Silfrinu síð­ast­lið­inn sunnu­dag en týnd­ist í umræðu um mína eigin stöðu er að hækk­anir á hús­næði hafa verið langt fram úr því sem ég bjóst við og ég vildi beina kast­ljós­inu á stöðu ungs fólks, sem er jafn­vel nýkomið úr námi og vinnu­markað, og hvernig í ósköp­unum það á að geta fetað sig á leigu og hús­næð­is­mark­aði við þessar aðstæður. Aðstæður sem ég upp­lifði fyrir ekki svo löngu síðan og tengi ennþá mikið við.

Eitt af erindum mínum í stjórn­málum er að berj­ast fyrir bættum hag ungs fólks á Íslandi og ég vona að ég geti unnið til baka traust þessa hóps og haldið áfram að vinna að þeirra stóru hags­muna­málum. Ég læri af mis­tökum og geri betur næst. Því get ég lofað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár