Áreitni sögð hafi þrifist vel í eitraðri vinnustaðamenningu á skrifstofu ríkisstjórans

Ný skýrsla sak­sókn­ara segir Andrew Cuomo hafa áreitt ell­efu konur en fyrstu ásk­an­irnar á hendur honum litu dags­ins ljós í des­em­ber. Stuðn­ingur sam­flokks­manna hans fer þverr­andi og Banda­ríkja­for­seti er á þeirri skoðun að hann eigi að stíga til hliðar.

Andrew Cuomo hyggst ekki segja af sér sem ríkisstjóri New York ríkis í kjölfar skýrslu saksóknara sem fjallar um áreitni ríkisstjórans í garð kvenna.
Andrew Cuomo hyggst ekki segja af sér sem rík­is­stjóri New York ríkis í kjöl­far skýrslu sak­sókn­ara sem fjallar um áreitni rík­is­stjór­ans í garð kvenna. Mynd: EPA

Andrew Cuomo rík­is­stjóri New York í Banda­ríkj­unum áreitti fjölda kvenna kyn­ferð­is­lega og braut með því bæði lög New York ríkis sem og alrík­is­ins sam­kvæmt skýrslu sem sak­sókn­ari New York ríkis, Letitia James, sendi frá sér í gær. Í skýrsl­unni, sem er 165 síðna löng, er Cuomo sagður hafa brotið gegn ell­efu konum, hann hafi ítrekað snert og þuklað konur án þeirra sam­þykkis og við­haft óvið­eig­andi orð­bragð. Þar kemur einnig fram að á skrif­stofu rík­is­stjór­ans hafi vinnu­staða­menn­ingin verið eitruð og að starfs­fólk hafi ótt­ast um vinnu sína. Það hafi svo stuðlað að því að áreitni hafi fengið að við­gang­ast.

Haft er eftir sak­sókn­ar­anum Letitia James í ítar­legri umfjöllun New York Times um málið að Cuomo hafi áreitt opin­bera starfs­menn, bæði núver­andi og fyrr­ver­andi, og hafi með hegðun sinni farið á svig við lögin. „Nið­ur­staða óháðrar rann­sóknar leiðir það í ljós að Cuomo rík­is­stjóri áreitti fjölda kvenna, þar af voru margar mjög ungar, með því að hafa án þeirra vilja káfað á þeim, kysst þær og faðmað og með því að láta frá sér óvið­eig­andi athuga­semdir,“ segir sak­sókn­ar­inn. Cuomo er nú til rann­sóknar og svo gæti farið að hann verði ákærður.

Cuomo svar­aði þessum ásök­unum með mynd­bandsávarpi sem hann birti á Twitter-síðu sinni. Þar sagði hann meðal ann­ars að hann hefði aldrei snert neinn á óvið­eig­andi hátt. „Svona er ég ekki. Svona hef ég aldrei verið,“ sagði Cuomo meðal ann­ars um ásak­an­irnar á hendur honum.

Stuðningur bandamanna á bak og burt

Cuomo hefur verið rík­is­stjóri í New York ríki í rúm 10 ár en hann tók við emb­ætt­inu í upp­hafi árs 2011. Hann hefur í áraraðir verið áhrifa­maður meðal Demókrata, klifið met­orða­stig­ann innan flokks­ins svo eftir var tekið og ekki skemmir ætt­ar­nafnið fyrir – pabbi hans, Mario Cuomo, var rík­is­stjóri í ell­efu ár á níunda og tíunda ára­tug síð­ustu aldar. En nú hefur hver banda­mað­ur­inn á fætur öðrum sagt það opin­ber­lega að Cuomo sé ekki stætt í emb­ætti.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti er á meðal þeirra sem hafa sagt að Cuomo eigi að stíga til hliðar og það sama hefur Nancy Pelosi, for­seti full­trúa­deildar Banda­ríkja­þings, gert. Biden hefur hingað til verið hik­andi í að taka svo skýra afstöðu.

Þegar fyrstu ásak­an­irnar á hendur Cuomo litu dags­ins ljós seint á síð­asta ári sagði fjöld­inn allur af Demókrötum að Cuomo ætti að stíga til hliðar. Hans helstu banda­menn voru þó ekki í þeim hópi, þeirra á meðal Joe Biden. Þegar Biden var spurður um málið í mars síð­ast­liðnum sagði hann að Cuomo ætti að stíga til hliðar ef rann­sókn á atferli hans myndi leiða í ljós að hann hefði gerst sekur um áreitni. Nú liggur nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar fyrir og Biden hefur því tekið afstöðu gegn veru Cuomo í emb­ætti.

„Mér leið mjög óþægilega og ég var hrædd“

Ásakanir á hendur Cuomo litu dags­ins ljós í des­em­ber í fyrra. Þá sak­aði Lindsey Boylan Cuomo um kyn­ferð­is­lega áreitni en hún starf­aði á skrif­stofu rík­is­stjór­ans. Hún sagði Cuoma hafa ítrekað talað um lík­ams­vöxt Boylan á vinnu­staðnum og hefði gert það um ára­bil. „Ég vissi aldrei við hverju ég mátti búast: yrði ég gagn­rýnd fyrir árangur minn í starfi (sem var mjög góður) eða yrði ég áreitt vegna útlits míns,“ sagði Boylan í færslu sem hún birti á Twitter. „Eða yrði það jafn­vel bæði í einu?“

Á blaða­manna­fundi sem hald­inn var sama dag og Boylan birti færslu sína sagði tals­kona rík­is­stjór­ans þessar ásak­anir ekki vera sannar. Cuomo gerði slíkt hið sama degi síðar. „Ég hef barist fyrir því og það er mín skoðun að kona eigi að geta stigið fram og lýst skoðun sinni og þeim áhyggjum sem hún kann að hafa,“ sagði Cuomo á blaða­manna­fundi. „En þetta er hrein­lega ekki satt.“

Í febr­úar á þessu ári steig fram önnur kona sem unnið hafði með Cuomo og sak­aði hann um kyn­ferð­is­lega áreitni. Charlotte Bennett sem unnið hafði sem ráð­gjafi á sviði heil­brigð­is­mála á skrif­stofu Cuomo sagði hann hafa spurt hana út í hennar einka­líf, hvort hún væri í opnu sam­bandi og hvort hún hefði ein­hvern tím­ann sofið hjá eldri mönnum. Eitt sinn þegar hún var ein á skrif­stof­unni ásamt Cuomo hafi hann sagt henni að hann væri sjálfur opinn fyrir ást­ar­sam­böndum með konum á þrí­tugs­aldri en Bennett er 25 ára. Með þessum ummælum fannst Bennet sem Cuomo væri að ýja að því að þau tvö ættu að eiga í ást­ar­sam­bandi.

„Ég skildi það sem svo að rík­is­stjór­inn vildi sofa hjá mér og mér leið mjög óþægi­lega og ég var hrædd,“ sagði Bennett í við­tali við New York Times. „Ég hug­leiddi hvernig ég kæm­ist út úr þessum aðstæðum og gerði ráð fyrir að störfum mínum þarna væri lokið.“

Gæti verið kosið um embættismissi

Þrátt fyrir nið­ur­stöður rann­sókn­ar­skýrsl­unnar hefur Cuomo sagt að hann ætli ekki að segja af sér. Stuðn­ingur við rík­is­stjór­ann er hins vegar í algjöru lág­marki innan Demókra­ta­flokks­ins og svo gæti farið að kosið verði um emb­ætt­is­missi hans. Slík kosn­ing hefur ekki farið fram í New York ríki í rúma öld.

Forseti neðri deildar lög­gjaf­ar­þings­ins í New York ríki, Carl E. Heastie, getur hrundið því ferli af stað en hann hefur sjálfur sagst vilja koma slíkri kosn­ingu af stað, auk þess sem hann hefur fundað með öðrum þing­mönnum sem eru sama sinnis.

Samkvæmt umfjöllun New York Times er þó talið að rann­sókn, sem er nauð­syn­legur und­an­fari kosn­ingar um emb­ætt­is­missi, geti tekið allt að mánuð í fram­kvæmd. Á þeim tíma gæti áhrifa­máttur nýút­kom­innar skýrslu verið á far­inn og vilji stjórn­mála­manna til þess að víkja Cuomo úr emb­ætti einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár