ESB gæti krafið UKIP um endurgreiðslu tuga milljóna

Breski sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn UKIP verður að öllum lík­indum beð­inn um að end­ur­greiða Evr­ópu­sam­band­inu 173 þús­und evrur, sem sam­svarar tæp­lega 21 milljón króna, sem flokk­ur­inn fékk í styrki frá sam­band­inu. Til við­bótar við það mun flokk­ur­inn ekki fá ríf­lega 500 þús­und evra styrk sem hann átti von á. Ástæðan er sú að flokk­ur­inn er sak­aður um að hafa mis­notað almannafé. Guardian greinir frá þessu.

Bandalag um beint lýð­ræði í Evrópu (e. Alliance for Direct Democracy in Europe) er banda­lag undir stjórn UKIP og það fékk þessa fjár­muni í styrki. Evr­ópu­þing­menn frá Þýska­landi og Frakk­landi til­heyra líka banda­lag­inu. Ný skýrsla frá end­ur­skoðun Evr­ópu­þings­ins leiðir í ljós að UKIP hafi varið fjár­munum frá Evr­ópu­sam­band­inu í skoð­ana­kann­anir og grein­ingar á kjör­dæmum í Bret­landi þar sem flokk­ur­inn von­að­ist til að fá sæti í þing­kosn­ing­unum þar í landi. Meðal kjör­dæmanna var Thanet South, kjör­dæmið þar sem for­mað­ur­inn Nigel Farage reyndi að ná þing­sæti.

Féð var einnig notað til að gera skoð­ana­kann­anir á við­horfi almenn­ings til þess að yfir­gefa Evr­ópu­sam­bandið, mán­uðum áður en kosn­inga­bar­áttan í Brexit hófst.

„Þetta var ekki í þágu Evr­ópu­flokks­ins, sem má hvorki taka þátt í lands­kosn­ingum né þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu,“ segir í skýrsl­unni. Kjör­dæmin sem skoð­ana­kann­anir hafi verið gerðar í sýni að kann­an­irnar voru í þágu UKIP í þing­kosn­ing­unum í Bret­landi. Kjör­dæmin hafi mörg verið talin nauð­syn­leg fyrir góða nið­ur­stöðu flokks­ins í kosn­ingum og fyrir útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Breski sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn neitar því að hafa mis­notað féð og seg­ist hafa farið eftir reglum. Banda­lagið um beint lýð­ræði mun að öllum lík­indum verða gjald­þrota án styrkj­anna sem nú á að taka af því. Það bætir á fjár­hags­vand­ræði UKIP, sem eru tals­verð. Það mun líka koma niður á öðrum flokkum sem eiga aðild að banda­lag­inu.

Á mánu­dag­inn fer skýrslan fyrir leið­toga á Evr­ópu­þing­inu. Ef þeir sam­þykkja hana fær banda­lagið mánuð til að gera áætlun um bætta fjár­hags­stjórn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár