Píratar flykkjast í framboð í Reykjavík

Rúmlega tutt­ugu manns taka þátt í próf­kjöri Pírata í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Núver­andi odd­viti sæk­ist eftir því að leiða list­ann áfram, en er ekki ein um að sækj­ast eftir efsta sæt­inu.

Prófkjöri Pírata í Reykjavík lýkur þann 26. febrúar.
Próf­kjöri Pírata í Reykja­vík lýkur þann 26. febr­úar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls 23 ein­stak­lingar sækj­ast eftir því að taka sæti á lista Pírata fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík. Flokk­ur­inn, sem á tvo borg­ar­full­trúa í dag og myndar meiri­hluta ásamt Sam­fylk­ingu, Viðreisn og Vinstri grænum, heldur raf­rænt próf­kjör sem hefst á laug­ar­dag, 19. febr­úar, og lýkur 26. febr­úar.

Fram­boðs­frestur rann út á þriðju­dag­inn. Báðir sitj­andi borg­ar­full­trúar flokks­ins gefa kost á sér til end­ur­kjörs, þær Dóra Björt Guð­jóns­dóttir og Alex­andra Briem. Sú síð­ar­nefnda var vara­borg­ar­full­trúi framan af kjör­tíma­bili, en tók sæti í borg­ar­stjórn er Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir sagði skilið við borg­ar­málin og flutt­ist til Húsa­víkur. Alex­andra, sem er for­seti borg­ar­stjórnar í dag, sæk­ist eftir öðru sæt­inu í próf­kjör­inu.

En fleiri eru til kall­aðir. Nokkrir fram­bjóð­endur hafa sér­stak­lega gefið það út í til­kynn­ingum að und­an­förnu að þau sæk­ist eftir efstu sæt­unum á lista flokks­ins. Á meðal þeirra eru Rannveig Ernu­dóttir og Atli Stefán Yngvason, sem bæði gefa kost á sér til þess að leiða list­ann. Þá hafa þeir Kristinn Jón Ólafsson og Magnús Davíð Norðdahl einnig boðað að þeir sæk­ist eftir sætum ofar­lega á lista.

Óljóst er hvort fleiri af þeim 23 sem bjóða sig fram vilja bít­ast um efstu sætin á list­anum, en í Píratar standa í vik­unni fyrir opnum kynn­ing­ar­fundum á net­inu þar sem fram­bjóð­endur kynna sig fyrir flokks­fólki. Fyrri slíki fund­ur­inn var í gær og sá síð­ari verður í kvöld.

Skoðanakönnun sýndi Pírata á siglingu í Reykjavík

Nýjasta skoð­ana­könn­unin um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Maskína fram­kvæmdi nýlega, sýndi Pírata með tæp­lega 15 pró­senta fylgi, sem myndi skila flokknum fjórum borg­ar­full­trúum af 23 ef það yrði nið­ur­staðan í kosn­ing­unum í maí.

[adspot]

Samkvæmt reglum próf­kjörs­ins hjá Pírötum er kjör­skráin þegar lokuð, en ein­ungis þeir sem voru orðnir félagar Pírata í Reykja­vík þann 27. jan­úar sl. hafa atkvæð­is­rétt í próf­kjör­inu.

Samkvæmt svari sem Kjarninn fékk frá flokknum fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar síð­ast­liðið haust voru skráðir félagar í flokknum í Reykja­vík þá um 1.800 tals­ins.

Frambjóðendur í prófkjöri Pírata í Reykjavík

  • Alex­andra Briem
  • Vignir Árnason
  • Unnar Þór Sæmunds­son
  • Tinna Helga­dóttir
  • Sævar Ólafsson
  • Stefán Örvar Sig­munds­son
  • Rannveig Ernu­dóttir
  • Olga Margrét Cilia
  • Oktavía Hrund Jóns
  • Magnús Davíð Norðdahl
  • Kristján Thors
  • Kristinn Jón Ólafsson
  • Kjartan Jónsson
  • Jón Arnar Magn­ús­son
  • Huginn Þór Jóhanns­son
  • Haraldur Tristan Gunn­ars­son
  • Halldor Emil­i­u­son
  • Eyþór Möller Árnason
  • Elsa Nore
  • Elísabet Guðrúnar- og Jóns­dóttir
  • Dóra Björt Guð­jóns­dóttir
  • Atli Stefán Yngvason
  • Alex­andra Ford

Fréttin hefur verið upp­færð..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár