Maðurinn með Borsalino hattinn er látinn

Honum var ekki spáð miklum frama á tón­list­ar­braut­inni, til þess væri röddin alltof sér­kenni­leg. En þeir spá­dómar rætt­ust ekki og hann varð „sam­eign“ dönsku þjóð­ar­innar. Povl Dissing er lát­inn.

Hattar voru eins konar einkennistákn danska tónlistarmannsins Povl Dissing, einkum ítalskir Borsalino hattar í seinni tíð.
Hattar voru eins konar ein­kenn­is­tákn danska tón­list­ar­manns­ins Povl Dissing, einkum ítalskir Bor­sal­ino hattar í seinni tíð. Mynd: Skjáskot/DR

Síðla vetrar árið 1950 voru tveir 12 ára strákar á skautum á tjörn­inni í smá­þorp­inu Stavns­holt á Norður-Sjálandi. Þetta höfðu þeir margoft gert áður og vissu fátt skemmti­legra. Skyndi­lega datt annar þeirra beint á and­litið á svellið, með þeim afleið­ingum að tvær fram­tennur brotn­uðu. Dreng­ur­inn sem varð fyrir þessu óhappi hét Povl Dissing-Rasmus­sen. Auk brotnu tann­anna hafði Povl fengið högg á nefið og afleið­ingar þess sáust alla ævi.

Povl fædd­ist í Stavns­holt 27. jan­úar 1938. Stavns­holt, sem nú til­heyrir sveit­ar­fé­lag­inu Farum, var fámennt, flestir íbú­anna smá­bændur. For­eldrar Povl, Karl Rasmus­sen og Huldfred Ochmann Dissing lifðu af búskapnum, sem var ekki stór í sniðum. Höfðu fáeinar skepnur og rækt­uðu græn­meti. Hjónin voru söng­elsk og höfðu yndi af að syngja, tóku meðal ann­ars þátt í kór­a­starfi. Povl hafði ekki mik­inn áhuga fyrir búskapnum en var þó lát­inn taka þátt í bústör­f­unum. Hann var iðu­lega lát­inn passa yngri bróður sinn og sagði í við­tölum að þeir bræður hefðu unað sér vel saman.

Byrjaði ungur í tónlistinni

Povl hafði allt frá barn­æsku mik­inn áhuga á tón­list. Ungur stofn­aði hann ásamt félaga sínum tveggja manna hljóm­sveit, The hot dogs. Þeir spil­uðu fyrir for­eldra, systk­ini og leik­fé­laga. Povl spil­aði á heima­gerða trommu, úr köku­dós, en félag­inn á gít­ar­g­arm eða á píanó sem for­eldrar Povl áttu en hvor­ugt þeirra not­aði. Povl sagði ein­hverju sinni frá því í við­tali að sumum félag­anna hefði þótt lítið til koma og upp­nefnt hljóm­sveit­ina, köll­uðu hana Dødens pølse. Seinna fjölg­aði í hljóm­sveit­inni, þriðji félag­inn bætt­ist við. Þeir fengu smá­aura fyrir að spila fyrir vini og kunn­ingja og Povl keypti trommu­skinn sem hann negldi á hring­laga tré­kassa undan sápu, mikil fram­för frá köku­dósinni sagði hann síðar.

Litblindur

Povl Dissing lét sig ekki dreyma um að geta gert tón­list að lifi­brauði, hann yrði að hafa ein­hverja fasta vinnu. Hann fékk vinnu í máln­ing­ar­vöru­verslun og ætl­aði sér að fá, með tíð og tíma, atvinnu­leyfi sem máln­ing­ar­sali (far­vehandler). Í ljós kom að Povl var lit­blindur og þar með var sá draumur á enda.

Savanna Ramblers og bílaverkstæðið

Eftir að endi var bund­inn á námið í máln­ing­ar­fræð­unum flutti Povl Dissing að heiman. Fór þó ekki langt, til Farum. Þar fékk hann, gegnum kunn­ings­skap, vinnu á bíla­verk­stæði en sinnti tón­list­inni í frí­stundum. Fyr­ir­mynd hans á því sviði var þá, og alla tíð, Louis Arm­strong.

Í Farum stofn­aði Povl ásamt félögum sem hann kynnt­ist þar hljóm­sveit­ina Savannah Ramplers. Povl varð sér úti um flygil­horn en komst fljót­lega að því að óhappið, þegar hann braut fram­tenn­urnar á skaut­unum forðum, kom í veg fyrir að hann gæti náð almenni­legum tökum á blást­urs­hljóð­færum. Hann keypti not­aðan gítar og lærði þrjú grip, sem að hans eigin sögn, dugðu vel allar götur síðan. Hann reyndi að syngja eins og fyr­ir­myndin Louis Arm­strong, útkoman líkt­ist ekki rödd átrún­að­ar­goðs­ins en þegar pabbi hans, sem hafði verið ósáttur við söngstíl­inn, sagði að þetta væri ekki líkt Louis, „en þetta er þín rödd Povl.“ Það var þessi sér­kenni­legi söngstíll sem síðan fylgdi Povl ævina á enda. Mamman sagði Povl af hverju hann syngi ekki gömul og þekkt dönsk lög „með sínu lagi“.

Hjónin á rauða bílnum

Á bíla­verk­stæð­inu í Farum var ekki bara gert við bíla. Þar var líka hægt að fá þvegið og bónað. Meðal við­skipta­vina voru hjón sem áttu rauðan MG sport­bíl sem þau komu reglu­lega með í þvott. Povl þótti bíll­inn flottur og lagði sig fram um að þvo og bóna bíl­inn. Hann varð vinur hjón­anna sem buðu honum heim, þar sá Povl teikn­ingar sem mað­ur­inn hafði gert en hann var aug­lýs­inga­teikn­ari og list­mál­ari.

Ein­hverju sinni sagði hann við Povl að hann ætti ekki að verða ein­hver eilífðar augna­karl þarna á verk­stæð­inu. „Þú átt að sækja um í Kun­sthånd­vær­kerskolen og læra aug­lýs­inga­teiknun.“ Povl þótti þetta góð hug­mynd, sótti um og komst inn. Að námi loknu fékk hann starf á aug­lýs­inga­stofu en það var eftir sem áður tón­listin sem átti hug hans allan.

Folkeklubben og Vise vers hus

Meðfram vinn­unni fór Povl að koma fram á börum og litlum klúbbum. Þetta vatt upp á sig og um miðjan sjö­unda ára­tug­inn bauðst honum að koma fram í Fol­keklubben, nýjum stað sem lagði áherslu á lítt þekkt tón­list­ar­fólk og þjóð­lagatón­list. Þetta voru, sagði Povl, fyrstu alvöru­tón­leik­arnir. Hann átti ekki gítar en eig­andi klúbbs­ins fékk lán­aðan gítar, sá var tólf strengja. Slíkt hljóð­færi hafði Povl aldrei séð og þótt hann kynni ennþá bara þrjú grip tókst honum að krafla sig í gegnum tón­leik­ana. Söng dönsk lög, með sínum hætti. Viðbrögð tón­leika­gest­anna voru mis­jöfn, flestir skemmtu sér kon­ung­lega en sumir ruku á dyr, hneyksl­aðir.

Povl hefur sagt að þarna hafi dyrnar opn­ast, eins og hann komst að orði. Hann fékk nú í auknum mæli til­boð um að koma fram, meðal ann­ars í hinu þekkta Vice vers hus í Tívolí, sem Thøger Olesen hafði sett á lagg­irnar 1965. Thøger var afkasta­mik­ill texta­höf­undur og hann hafði jafn­framt þýtt fjöld­ann allan af banda­rískum laga­textum við lög þar­lendra, t.d eftir Shel Sil­ver­stein. Mörg lög hans, með dönskum texta Thøger, tók Povl Dissing á sína efn­is­skrá. Hann var ekki far­inn að semja lög þegar þarna var komið.

Beefeaters og Nøgne øjne

Undir lok sjö­unda ára­tug­ar­ins gaf Povl út plöt­una Dissing, oft­ast kölluð Nøgne øjne, sem margir tón­list­ar­sér­fræð­ingar telja að markað hafi tíma­mót í danskri tón­list­ar­sögu. Á þess­ari plötu lék hljóm­sveitin Beefeaters undir hjá Povl. Hann hætti að mestu á aug­lýs­inga­stof­unni og sneri sér í auknum mæli að tón­list­inni. Tekj­urnar voru þó ekki tryggar.

Benny Andersen og Svante Svendsen

Snemma árs 1973 barst Povl Dissing bréf. Send­and­inn var Benny Andersen, þekktur rit­höf­undur. Í umslag­inu var hand­rit lít­illar bókar, skáld­sögu, sem Benny hafði skrifað, Svantes viser hét hún. Aftast voru 13 lög, skrifuð á nótur, sem Benny hafði samið við ljóð sem hann hafði skrifað í Svantes stað. Svante þessi Svendsen bjó í Danmörku en lang­aði alla tíð heim til Sví­þjóðar. Hræðsla við sjó­veiki kom hins vegar í veg fyrir að hann kæm­ist nokkurn tíma til baka. Í bók­inni hefur Svante beðið Benny Andersen að gera lög við ljóð sem hann (Svante) hefur samið. Þetta er í mjög stuttu máli efn­is­þráður sög­unnar.

Povl Dissing þótti bæði lögin og ljóðin góð en tíma­setn­ingin afleit. Hann var á kafi í vinnu og sagði Benny það. „Allt í lagi,“ sagði Benny. „Við látum þetta bíða aðeins.“ Nokkru eftir þetta kom bókin um Svante út hjá for­lag­inu Borges. Benny var, eins og áður sagði, þekktur höf­undur og nú bár­ust honum beiðnir frá bóka­söfnum um að lesa upp úr bók­inni. Þá hafði Benny sam­band við Povl og gat talað hann inná að syngja nokkur lög úr bók­inni um Svante. „Ég get ekk­ert verið þessi Svante,“ sagði Povl. „Ég er ekki að biðja þig að vera Svante, bara að syngja lögin með þínum hætti,“ svar­aði Benny.

Povl lét til leið­ast og þeir komu fram á nokkrum bóka­söfnum. Benny spil­aði á píanó og Povl á gítar. Við­tök­urnar voru góðar og í fram­hald­inu var ákveðið að setja efnið á plötu. Tón­list­ar­mað­ur­inn Peter Abra­ham­sen átti lítið útgáfu­fyr­ir­tæki, Abra Cadabra, og hann gaf plöt­una út. Fyr­ir­tækið var ekki stöndugt og til að fjár­magna útgáf­una seldi Peter Abra­ham­sen bíl­inn sinn, með lof­orði kaup­and­ans um að Peter gæti keypt bíl­inn til baka ef platan seld­ist. Fimm þús­und ein­tök þurfti Peter að selja til að fá bíl­inn aftur. Það tókst, og gott betur reyndar. Nú, tæpum fimm­tíu árum síðar, hafa selst hátt á annað hund­rað þús­und ein­tök, fyrir utan nið­ur­hal og hlustun af net­inu.

Þeir Povl Dissing, Benny Andersen og Svante Svendsen urðu nán­ast á svip­stundu þjóð­þekktir í Danmörku og víð­ast hvar á Norð­ur­löndum. Beiðnir um að koma fram streymdu til þeirra Benny og Povl sem sagði í við­tali fyrir nokkrum árum að hann hefði ekki hug­mynd um hve mörg þús­und sinnum hann hefði sungið vin­sælasta lagið á plöt­unni um Svante, lagið um kaffið sem er rétt að verða til­búið, á meðan Nina er í sturt­unni. Heitir reyndar Svantes lykk­elige dag.

Eftir Svante

Samstarf þeirra Benny og Povl hélt áfram eftir Svante tíma­bilið, eins og þeir kalla það og þeir gáfu út fjórar plötur til við­bótar, þeirra þekkt­ust er Oven visse vande sem kom út árið 1982. Þeir fóru jafn­framt í margar tón­leika­ferðir, innan lands og utan.

Eins og nefnt hefur verið var Benny Andersen orð­inn þekkt skáld þegar leiðir hans og Povl Dissing lágu saman. Hann er meðal þekkt­ustu rit­höf­unda Dana og hefur skrifað tugi bóka. Ljóð og skáld­sögur fyrir börn og full­orðna, leik­rit og hand­rit fyrir sjón­varps­þætti. Fyrir utan auð­vitað öll lögin!

Þegar Benny Andersen varð sjö­tugur var blys­för honum til heið­urs við Thor­vald­sen safnið í Kaup­manna­höfn. Einungis tveimur öðrum dönskum skáldum hefur hlotn­ast slíkur heiður, þeim H.C. Andersen og Adam Oehlenschläger. Benny Andersen var fæddur 7. nóv­em­ber 1929 og lést 16. ágúst 2018.

Povl Dissing sat ekki heldur auðum höndum eftir Svante ævin­týrið, eins og hann kallar það iðu­lega. Á ferl­inum gaf hann út 25 plötur og kom að auki fram á tugum ann­arra platna. Hann starf­aði á fyrsta ára­tug ald­ar­innar með tveimur sonum sínum af fyrra hjóna­bandi, en Povl var tví­giftur.

Hattarnir

Fyrir utan rödd­ina sér­stæðu og leik­ræna fram­komu á sviði var hattur eins konar ein­kenn­is­tákn Povl Dissing. Framan af voru hatt­arnir venju­legir búð­ar­hattar, eins og Povl kall­aði það, en á síð­ari árum ætíð ítalskir Bor­sal­ino hattar. Hatt­ur­inn sat þó ekki alltaf fastur á höfði söngv­ar­ans því til áherslu­auka í söngnum tók hann hatt­inn ofan, oft í hverju lagi.

Spánarferðin örlagaríka og ævilok

Veturinn 2017 fór Povl Dissing til Spánar. Þar ætl­aði hann, með þar­lendum tón­list­ar­mönnum, að taka upp plötu með fla­menkó tón­list sem hann hafði mikið dálæti á. Rétt áður en upp­tök­urnar áttu að hefj­ast fékk Povl vægt heila­blóð­fall, féll niður á hart gólfið og fékk þungt höf­uð­högg. Hann var í skyndi fluttur á spít­ala þar sem hann lá þungt hald­inn í rúman mánuð. Missti meðal ann­ars heyrn­ina. Heyrnina end­ur­heimti hann með hjálp lækna­vís­ind­anna en tón­list­ar­fer­ill­inn var á enda. Hann náði sér aldrei að fullu eftir slysið á Spáni og glímdi við erfið veik­indi síð­ustu árin.

Mánu­dag­inn 18. júlí sl. voru syn­irnir Jonas og Rasmus á heim­ili föður þeirra og eig­in­kon­unnar Piu Jacobæus við Hund­e­sted á Sjálandi. Pia hafði hringt til þeirra um morg­un­inn og sagt að kveðju­stundin nálg­að­ist. Povl Dissing lést síðar þann sama dag. Merki­legum kafla í danskri tón­list­ar­sögu var lokið.

Hér í lokin má bæta því við að skrif­ari þessa pistils sótti tón­leika sem þeir Benny og Povl héldu árið 2013 í til­efni þess að 40 ár voru liðin frá útgáfu Svantes viser. Þótt Povl setti annað slagið upp gler­augun og Benny ögn lengur að fikra sig að hljóð­nem­anum, til að segja frá, var allt á sínum stað. Þeir höfðu engu gleymt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár