Bandaríkin virðast stefna í að verða sérstaklega illa útleikin af veirunni

Fjöldi stað­festra COVID-19 smita í Banda­ríkj­unum nálg­ast nú þrjú hund­ruð þús­und. Tæplega átta þús­und manns hafa þegar látið lífið, flestir í New York-ríki. Banda­ríkin virð­ast stefna í að fara að ein­stak­lega illa út úr heims­far­aldr­inum.

Spítalaskip bandaríska sjóhersins, USNS Comfort, hefur verið sent til New York til þess að létta undir með yfirfullum spítölum borgarinnar.
Spít­ala­skip banda­ríska sjó­hers­ins, USNS Comfort, hefur verið sent til New York til þess að létta undir með yfir­fullum spít­ölum borg­ar­innar. Mynd: EPA

Samkvæmt spá banda­rískra yfir­valda um kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn er talið lík­legt að á bil­inu 100-240 þús­und manns láti lífið vegna COVID-19 sýk­ingar þar í landi. Staðfest smit eru hvergi fleiri en í Banda­ríkj­unum, en þar hafa tæp­lega 300 þús­und smit þegar verið stað­fest og hart­nær 8 þús­und manns eru látin.

Lang­verst er staðan orðin í New York-ríki. Þar lét­ust 630 síð­asta sól­ar­hring, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem rík­is­stjór­inn Andrew Cuomo sendi frá sér fyrr í dag.

Sér­fræð­ing­arnir sem standa í stafni fyrir banda­rísk heil­brigð­is­yf­ir­völd í þess­ari bar­áttu telja að það gæti farið enn verr, ef Banda­ríkja­menn virða ekki þau til­mæli sem gefin hafa verið út í því skyni að hefta útbreiðsl­una.

Það nýjasta í þeim efnum er að mælst er til þess að allir Banda­ríkja­menn gangi um með grímur eða aðrar hlífar fyrir vit­unum ef þeir eru úti á almanna­færi. Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur þó gefið það út, eig­in­lega þvert á til­mæli heil­brigð­is­yf­ir­valda, að hann ætli sér ekki að ganga með grímu.

Anthony Fauci, yfir­maður smit­sjúk­dóma­stofn­unar Banda­ríkj­anna, hefur hvatt öll ríki lands­ins til þess að fyr­ir­skipa íbúum að halda sig heima, en ríkj­unum hefur verið í sjálfs­vald sett hvort þau beina ströngum til­mælum til fólks um að halda sig heima eða ekki. Lang­flest, eða yfir fjöru­tíu ríki, hafa sagt fólki að vera heima nema brýna nauð­syn beri til.

Breyttur tónn forsetans

Donald Trump var­aði við því á þriðju­dag að framundan væru „erf­iðir dagar“ og næstu tvær vikur yrðu þungar. Í fyrsta sinn frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn fór að geisa virt­ist for­set­inn átta sig að fullu á alvar­leika máls­ins og tala opin­ber­lega í sam­ræmi við það, en fjöl­margar yfir­lýs­ingar hans um far­ald­ur­inn til þessa hafa ekki stað­ist nokkra skoðun.

Ekki er nema rúm vika síðan for­set­inn sagð­ist helst vilja aflétta öllum til­mælum til fólks um sam­skipta­fjar­lægð strax um pásk­ana vegna þeirra geig­væn­legu áhrifa sem aðgerð­irnar eru að hafa á efna­hags­lífið í Banda­ríkj­unum.

„Lækn­ingin má ekki verða verri en sjúk­dóm­ur­inn,“ varð hálf­gerð mantra for­set­ans á tíma­bili, á milli þess sem hann lét fjöl­miðla­fólk heyra það fyrir „ósann­gjarnar spurn­ingar“ og það sem að hans mati voru til­raunir til þess að hræða almenn­ing að óþörfu.

Anthony Fauci, sem hefur gjarnan birst við hlið Trump á blaða­manna­fundum þar sem farið er yfir útbreiðslu veirunnar og aðgerðir stjórn­valda, sagði í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Daily frá New York Times í vik­unni að þó væri það svo að for­set­inn hefði alla tíð, frá því að hann og aðrir sér­fræð­ingar byrj­uðu að miðla upp­lýs­ingum, tekið ógn­inni af veirunni alvar­lega. Þrátt fyrir allt sem hann hefur sagt.

[links]

Trump hefur bara „ákveð­inn stíl“, sem erfitt er fyrir emb­ætt­is­mann að ætla sér reyna að hemja, sagði Fauci, sem per­sónu­lega hefur í nokkrum til­fellum þurft að leið­rétta eða draga úr yfir­lýs­ingum for­set­ans um far­ald­ur­inn. Í kjöl­farið hefur hann svo þurft að fá aukna örygg­is­gæslu vegna hót­ana sem honum hafa borist fyrir að vara við hætt­unni sem stafar af far­aldr­inum og hvetja til harðra aðgerða. Sam­sær­is­kenn­inga­smiðir telja vís­inda­mann­inn vera að reyna að grafa undan Trump á kosn­inga­ári.

Far­ald­ur­inn er enn í hröðum vexti í Banda­ríkj­unum og ekki er útséð með hvernig hann mun fara með þjóð­ina, en bæði staðan og horf­urnar eru slæmar, sér­stak­lega í New York og fleiri stór­borgum þar sem mann­mergðin er mikil og smit­leiðir hafa verið greiðar.

Þungt högg fyrir neysludrifinn efnahag

Ljóst er að efna­hags­höggið í Banda­ríkj­unum verður gríð­ar­legt, þrátt fyrir þann tveggja billj­arða dala björg­un­ar­pakka sem sam­þykktur hefur verið til þess að reyna að halda stærsta efna­hags­kerfi heims á floti.

Um tíu millj­ónir manna hafa sótt um atvinnu­leys­is­bætur und­an­farnar tvær vikur og sér­fræð­ingar telja margir að það sé bara byrj­unin, millj­ónir eigi enn eftir að bæt­ast við. Áður höfðu mest innan við sjöhund­ruð þús­und manns sótt um atvinnu­leys­is­bætur á einni viku í Banda­ríkj­unum.

Efna­hags­á­fallið sem fylgir veirunni á án efa eftir að hafa mikil áhrif á líf og heilsu fjölda Banda­ríkja­manna, enda þýðir atvinnu­leysi þar í landi í mörgum til­fellum að fátækt fólk missir sjúkra­trygg­ingar sínar og það öryggi sem þær veita. Það veit ekki á gott þegar heilsuvá steðjar að, en þó hafa banda­rísk yfir­völd gefið út að allir geti fengi með­ferð vegna kór­ónu­veirusmits sér að kostn­að­ar­lausu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár