Bjarni Ben: Engin ákvörðun verið tekin um útgönguskatt

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um útgöngu­skatt á erlenda kröfu­hafa sem vilja fara með eignir sínar úr landi. „Þaðan af síður hef ég boðað ein­hverja til­tekna pró­sentu, sem menn eru farnir að vísa til,“ sagði Bjarni á þingi fyrir skemmstu.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, spurði Bjarna um grein fjög­urra InDefence manna í Kjarn­anum í gær, þar sem þeir viðr­uðu hug­myndir um 60 pró­senta útgöngu­skatt á kröfu­hafa sem vilja fara með eignir sínar frá Íslandi.

Katrín spurði Bjarna einnig um afstöðu hans til þess að áætlun um losun hafta sé leyni­leg, eins og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra sagði síð­ast á mánu­dag að væri nauð­syn­legt. Katrín spurði hvort það væri ekki einmitt mik­il­vægt að almenn­ingur í land­inu sé upp­lýstur um losun hafta, vegna þess að málið geti haft mjög mikil áhrif á almenn­ing.

Bjarni að menn yrðu „að fara var­lega í að úttala sig um allar sínar hugs­anir og val­kosti sem eru til staðar.“ Það þjóni ekki hags­munum Íslands að opin­bera alla mögu­lega sem séu til skoð­unar sam­stundis. Þá sé ekki hægt að hafa mjög opin­skáa umræðu meðal ann­ars vegna þess að „sér­hvert orð í þeirri umræðu getur til dæmis haft áhrif á mark­að­ina.“ Hann sagð­ist hins vegar fylgj­andi því að pen­inga­mála­stjórn og það sem við­kemur því að tryggja stöð­ug­leika eigi að vera í opin­berri umræðu.

„Ég tek undir með hátt­virtum þing­manni þegar kemur að því að við þurfum að kynna öll skref sem við hyggj­umst taka mjög ræki­lega en við getum ekki gert það fyrr en það hefur verið tekin ákvörðun um hvað við ætlum nákvæm­lega að gera.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár