Sigmundur Davíð segir mikilvægt að leynd ríki um losun hafta

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra er enn þeirrar skoð­unar að áætlun um losun fjár­magns­hafta eigi að vera leyni­leg svo hún verði ekki skemmd. Erlendir kröfu­hafar hafi mikla hags­muni af því að nálg­ast upp­lýs­ingar um afstöðu stjórn­valda til að geta hámarkað end­ur­heimtir sínar. Þetta kom fram í svari hans við óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn frá Katrínu Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna, um málið á Alþingi í dag.

„Þegar menn spila sókn­ar­bolta þá byrja þeir ekki á að kynna sókn­ar­á­ætl­un­ina fyrir gagn­að­il­anum,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra. Hann spurði síðan sjálfan sig um hvort að það væri raun­veru­lega um keppni að ræða í þessu máli, hvort erlendir kröfu­hafar væru gagn­að­ilar í því. Sig­mundur Davíð svar­aði spurn­ing­unni síðan svona: „Því verð ég að svara ját­andi“. Að minnsta kosti hluti kröfu­hafa væru eðli­lega að gæta þeirra miklu hags­muna sem þeir ættu undir og væru aðrir hags­munir en íslensku þjóð­ar­innar.

Opnun gæti skemmt stöðuna


Katrín spurði hvort ekki væri mik­il­vægt að áætlun um losun hafta og áætlun um hvað taki við eftir að slík skref verði stigin yrðu opin­ber. Hún rifj­aði upp að Sig­mundur Davíð hefði áður sagt að hann væri þeirrar skoð­unar að þessar áætl­anir ættu að vera leyni­legar.

Sig­mundur Davíð svar­aði því til að „eins og hátt­virtur þing­maður veit eru um gríð­ar­lega hags­muni að ræða“. Erlendir kröfu­hafar hefðu ráðið lög­menn, almanna­tengla og fleiri til að gæta þeirra hags­muna. Meðal þess sem þeir leggi áherslu á sé að fal­ast eftir upp­lýs­ingum um afstöðu stjórn­valda til hafta­los­unar til að geta hámarkað end­ur­heimtir sínar og um leið veikt stöðu Íslands í mál­inu. „Ég er enn sömu skoð­unar og ég var á síð­asta ári [...]að mik­il­vægt sé að þessi vinna verði ekki gerð opin­ber fyrr en hún er komin á það stig að ekki sé hætta á því að hún verði skemmd,“ sagði Sig­mundur Davíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár