Glitnir vill ekki svara af hverju það er ekki farið fram á lögbann á alla

Glitnir HoldCo vill ekki tjá sig um ástæður þess að ein­ungis hafi verið fram á lög­bann á frétta­flutn­ing tveggja miðla sem byggir á gögnum úr Glitni, en ekki ann­arra fjöl­miðla sem sagt hafa fréttir byggðar úr gögnum frá sama aðila.

Forsíða Stundarinnar 20. október, eftir að lögbann var sett á fréttaflutning blaðsins.
Forsíða Stund­ar­innar 20. októ­ber, eftir að lög­bann var sett á frétta­flutn­ing blaðs­ins. Mynd: Skjáskot

Glitnir Holdco vill ekki upp­lýsa um hvað valdi því að ekki hefur verið farið fram á lög­bann á umfjöllun ann­arra fjöl­miðla en Stund­ar­innar og Reykja­vík Media sem unnið hafa fréttir úr gögnum sem fjalla um við­skipta- og einka­mál­efni Glitnis.

[links]Ólafur Eiríks­son, lög­maður Glitnis HoldCo, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið að umbjóð­andi sinn muni ekki tjá sig í fjöl­miðlum um „dóms­mál gegn Stund­inni Reykja­vík Media eða tengd atriði á meðan málið er rekið fyrir dóm­stólum.“

Þrír aðrir fjöl­miðlar hafa birt fréttir um við­skipti við­skipta­vina Glitnis sem byggja á gögnum innan úr Glitni um mál­efni við­skipta­vina bank­ans á meðan hann var starf­andi eða um rann­sóknir og grein­ingar sem gerðar voru á við­skipta­háttum bank­ans eftir að hann féll.

Í des­em­ber 2016 birtu miðlar 365 miðla og Kastljós RÚV fréttir um fjár­mál hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem voru í við­skiptum við Glitni. Þá var gagna­leki kærður til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem vís­aði því máli síðan til hér­að­sak­sókn­ara. Það mál var fellt niður í jan­úar 2018, m.a. eftir að á þriðja tug manns, meðal ann­ars blaða- og frétta­menn, voru kall­aðir til skýrslu­töku. Þær skýrslu­tökur skil­uðu engum upp­lýs­ingum um hver hefði dreift upp­lýs­ing­unum úr Glitni sem frétt­irnar byggð­ust á.

Fleiri miðlar hafa sagt fréttir úr gögnum frá Glitni

Í byrjun októ­ber 2017 hóf Stundin, í sam­starfi við Reykja­vík Media, umfjöllun um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar, þá for­sæt­is­ráð­herra en nú fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, fyr­ir­tæki sem hans tengd­ist, fjöl­skyldu hans og við­skipta­fé­laga sem byggði á gögnum innan úr Glitni.

Glitnir HoldCo til­kynnti um gagna­leka vegna þeirrar umfjöll­unar til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins 13. októ­ber 2017. Í kjöl­farið var farið fram á lög­bann á frétta­flutn­ing miðl­anna sem var sam­þykkt af sýslu­manni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Síðan það gerð­ist hafa miðl­arnir tveir ekki mátt flytja fréttir upp úr gögn­unum.

[adspot]Eftir að lög­bannið var lagt á fluttu tveir aðrir fjöl­miðlar, RÚV og Kjarninn, fréttir sem unnar voru upp úr gögnum innan úr Glitni.

Glitnir HoldCo höfð­aði stað­fest­ing­ar­mál fyrir hér­aðs­dómi gegn Stund­inni og Reykja­vik Media þar sem farið var fram á að lög­bannið á frétta­flutn­ing­inn yrði stað­fest og að miðl­arnir yrðu að afhenda öll þau gögn sem þeir hefðu í fórum sínum sem kæmu innan úr Glitni. Hér­aðs­dómur hafn­aði þeirri kröfu með afger­andi hætti í byrjun febr­úar en nið­ur­stöðu hans var áfrýjað til Lands­réttar.

Fengu upplýsingar um umfang gagna

Í dómi hér­aðs­dóms í stað­fest­ing­ar­mál­inu koma fram upp­lýs­ingar sem eiga að rök­styðja það að Glitnir HoldCo hafi farið fram með þessum hætti gagn­vart Stund­inni og Reykja­vik Media, en ekki farið fram á lög­bann á RÚV og miðla 365 þegar þeir fluttu fréttir úr gögnum Glitnis í des­em­ber 2016.

Þar segir að Glitnir HoldCo hafi fengið „það stað­fest að upp­lýs­ing­arnar ein­skorð­uð­ust ekki við þá ein­stak­linga sem þegar hefði verið fjallað um heldur væru þetta upp­lýs­ingar um þús­undir fyrr­ver­andi og núver­andi við­skipta­manna stefn­anda, þar með talið upp­lýs­ingar um við­skipti aðila í einka­banka­þjón­ustu, við­skipti aðila með hluta­bréf í Glitni á árunum 2003 til 2008 og upp­lýs­ingar um við­skipti ein­stak­linga og lög­að­ila í sjóðum sem stefn­andi hafi rekið. Stefn­andi kveður upp­lýs­ing­arnar ná yfir nokk­urra ára tíma­bil og að þær séu veru­lega ítar­legar. Þetta séu meðal ann­ars hreyf­inga­listar, útprent­anir, vinnu­skjöl, við­skipta­yf­ir­lit og tölvu­skeyti fjölda starfs­manna. Vegna þessa hafi stefn­andi talið nauð­syn­legt að grípa strax til aðgerða.“

Óskuðu eftir ritstjórnarvaldi

Þrátt fyrir að Glitnir HoldCo taki fram að nýjar upp­lýs­ingar um umfang gagna hafi ráðið því að farið var fram á lög­bann á frétta­flutn­ing Stund­ar­innar og Reykja­vik Media þá var ekki farið fram á lög­bann á frétta­flutn­ing RÚV og Kjarnans, sem fluttu fréttir byggðar á gögnum úr Glitni HoldCo, eftir að lög­bannið var sam­þykkt. Báðir miðl­arnir gátu, og geta, því flutt áfram­hald­andi fréttir upp úr þeim gögnum sem þeir hafa undir höndum kjósi þeir svo. Það hefur hvor­ugur þeirra gert.

Kjarn­anum barst þess í stað bréf frá lög­manni Glitnis þar sem farið var fram á að Kjarninn myndi veita „Í fyrsta lagi upp­lýs­ingar um hvort frek­ari birt­ing úr umræddum gögnum sé fyr­ir­hug­uð. Hér átt við allar fréttir sem byggja á upp­lýs­ingum og/eða gögnum frá Glitni eða úr kerfum þess.[...]Í öðru lagi er þess farið á leit við Kjarn­ann að ef frek­ari birt­ing úr fram­an­greindum gögnum er fyr­ir­huguð að umbjóð­anda okk­ar, Glitni, verði til­kynnt fyrir fram með tveggja sól­ar­hringa fyr­ir­vara að slík birt­ing standi til.“

Í nið­ur­lagi bréfs­ins sagði að Glitnir HoldCo áskildi sér rétt til að grípa til allra lög­mæta aðgerða vegna birt­ingar Kjarn­ans á umræddum trún­að­ar­upp­lýs­ing­um. Það hefur félagið ekki gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár