Seðlabankinn búinn að samþykkja tillögur slitabúa um stöðugleikaframlag

Seðla­banki Íslands er búinn að sam­þykkja til­ögur Glitnis, Kaup­þings og gamla Lands­bank­ans um stöð­ug­leika­fram­lag. Það þýðir að nauða­samn­ingar þeirra ógna ekki greiðslu­jöfn­uði og fjár­mála­stöð­ug­leika að mati bank­ans og því ættu slita­búin að fá und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að ljúka slitum sínum. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu.

Mikill spenna hefur verið í loft­inu und­an­farnar vikur eftir að ljóst var að upp­gjör slita­bú­anna var ekki að ganga jafn smurt og lagt var upp með. Upp­haf­lega höfðu stjórn­völd, með fyr­ir­vara, sam­þykkt til­boð allra þeirra um stöð­ug­leika­fram­lög og talið að þau mættu svoköll­uðum stöð­ug­leika­skil­yrðum, sem vernda eiga greiðslu­jöfnuð og fjár­mála­stöð­ug­leika. Í afhend­ingu stöð­ug­leika­fram­laga felst, í ein­földu máli, að slitabú föllnu bank­anna afhenda íslenskum stjórn­völdum tölu­vert magn eigna til að mega greiða það sem eftir er út til kröfu­hafa sinna. Virði þeirra fram­laga, umreiknuð í krónur, eru mörg hund­ruð millj­arðar króna.

Ljóst hefur verið í nokkurn tíma að Seðla­bank­inn var langt kom­inn með grein­ingu sína. Upp­haf­lega ætl­aði hann að birta hana opin­ber­lega snemma í októ­ber, en hætti skyndi­lega við það. Á þeim tíma hermdu heim­ildir Kjarnans að Seðla­bank­inn teldi að bæði Kaupþing og gamli Lands­bank­inn væru að upp­fylla stöð­ug­leika­skil­yrðin með til­lögum sínum, en að Glitnir þyrfti að breyta sínu fram­lagi.

Það kom á dag­inn í síð­ustu viku þegar fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi frá sér til­kynn­ingu um miðja nótt. Í henni stóð að Glitnir hefði breytt fram­lagi sínu til að stand­ast skil­yrðin. Stærsta breyt­ingin var sú að slita­búið færir íslenska rík­inu allt hlutafé í Íslands­banka, einum af þremur stærstu við­skipta­bönkum lands­ins.

Lengri frestur kemur til greina

Seðla­bank­inn virð­ist loks hafa lokið við mat sitt á áhrifum slita búanna á greiðslu­jöfnuð á síð­ustu dögum. Matið var kynnt fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í byrjun viku og hann kynnti nið­ur­stöð­urnar síðan á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær. Í dag verður matið kynnt efna­hags- og við­skipta­nefnd, þing­flokkum og loks almenn­ingi á blaða­manna­fundi.

Bjarni Bene­dikts­son lét hafa eftir sér í gær að hann hafi rætt þann mögu­leika við efna­hags- og við­skipta­nefnd að veita slita­bú­unum lengri frest en þeir hafa nú sam­kvæmt lögum til að ljúka slit­unum. Samkvæmt áætlun sem kynnt var í byrjun júní áttu búin að ljúka slitum sínum með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags og sam­þykkt nauða­samn­ings fyrir árs­lok. Tækist það ekki myndi falla á 39 pró­sent stöð­ug­leika­skattur á allar eignir þeirra. Hann átti að geta skilað allt að 850 millj­örðum króna til rík­is­ins, sam­kvæmt kynn­ing­unni.

Ljóst er að slita­búin eru að brenna inni á tíma. Bæði Kaupþing og gamli Lands­bank­inn hafa boðað kröfu­hafa sína á fundi síð­ari hluta nóv­em­ber­mán­aðar til að greiða atkvæði um nauða­samn­ing­inn og búist er við því að Glitnis geri slíkt hið sama strax í dag. Þegar slíkt sam­þykki kröfu­hafa liggur fyrir ,en það er búist við því að það fáist, verður að leggja nauða­samn­ing­inn fyrir dóm­stóla til sam­þykktar.

Titringur í stjórnmálunum

Það hefur ekki bara gætt titr­ings í her­búðum kröfu­hafa und­an­farnar vikur. Sá titr­ingur hefur einnig náð inn í íslensk stjórn­mál og íslenskt sam­fé­lag. Margir hafa lýst efa­semd­ar­röddum um hvort ætluð stöð­ug­leika­fram­lög nái því mark­miði sínu að verja íslenskan almenn­ing fyrir áhrifum slit­ana. Þar hafa farið fremst í flokki InDefence-hóp­ur­inn sem hefur sagt tals­verða áhættu á því að svig­rúm til að aflétta höftum á almenn­ing verði lítið næstu árin, að stöð­ug­leika­skil­yrðin séu ódýr leið fyrir kröfu­hafa slita­búa föllnu bank­anna úr gjald­eyr­is­höftum og að greiðsla stöð­ug­leika­skil­yrða muni skerða lífs­kjör almenn­ings. Þessi skoðun hefur einnig náð inn í raðir stjórn­mála­flokk­anna, bæði þeirra sem sitja í stjórn og þeirra sem sitja í stjórn­ar­and­stöðu.

Seðla­bank­inn hefur hafnað þess­ari grein­ingu InDefence til þessa en ekki viljað birta mat sitt á greiðslu­jöfn­uði því til stuðn­ings. Auk þess hefur komið fram í máli Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra og Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að sam­komu­lag tryggi skað­leysi rík­is­ins gagn­vart kröfu­höfum og komi í veg fyrir að þeir láti reyna á álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts fyrir dóm­stólum. Skiptar skoð­anir eru um her nið­ur­staða slíkra dóms­mála yrðu en þau myndu hið minnsta tefja áætlun um losun hafta á almenn­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár