Framsókn tilbúin í viðræður - Þing hugsanlega kallað saman

Er stjórn­ar­kreppa í land­inu? Of snemmt er að full­yrða það, í nú hafa tvær stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður siglt í strand.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er til­bú­inn til að þess að taka þátt í að mynda rík­is­stjórn með Vinstri grænum ef eftir því verður kallað, sagði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður flokks­ins, í við­tali við RÚV. Svo gæti farið að hann kalli saman þing, þrátt fyrir að ekki hafi náðst að mynda rík­is­stjórn á þeim tæpa mán­uði sem lið­inn er frá því að kosið var til Alþingis. Afgreiða þarf fjár­lög fyrir næsta ár og skammur tími er til stefnu, eins og aug­ljóst er.

Í gær varð ljóst að ekki tæk­ist að mynda rík­is­stjórn fimm flokka undir for­ystu Katrínar Jak­obs­dóttur, for­manns Vinstri grænna. Yfir 30 manns höfðu tekið þátt í mál­efna­vinnu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum Vinstri grænna, Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar, Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar. Upp úr við­ræð­unum slitn­aði að lokum, meðal ann­ars þar sem of langt var á milli í áherslum flokk­anna, einkum Vinstri grænna og Við­reisnar. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, nefndi í við­tali við Kast­ljósið í gær helst land­bún­aðar-, sjáv­ar­út­vegs-, og skatta­mál sem helstu deilu­mál. Hann hafði sam­band við Katrínu og sagð­ist ekki hafa góða sann­fær­ingu fyrir því að þetta gæti gengið upp, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Það mun skýr­ast í dag hvort Katrín reynir til þrautar að mynda rík­is­stjórn, og þá með öðru mynstri en þeim fimm flokkum sem ekki náðu að mynda rík­is­stjórn. Samstarf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn kemur til greina, og einnig fleiri sam­starfs­mögu­leikar.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur ekki ennþá veitt neinum öðrum umboðið en Katrínu. Eins og kunn­ugt er hafa nú tvær til­raunir til að mynda rík­is­stjórn runnið út í sand­inn. Fyrst fékk Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, umboð til að mynda rík­is­stjórn og reyndu for­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar að ná saman, en allt kom fyrir ekki. Þá fékk Katrín mögu­leika á að leiða við­ræður sem nú eru sigldar í strand, eins og áður sagði.

Líklegt er að það skýrist í dag, hvaða stefnu málin taka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár