Átta sækjast eftir þremur efstu sætunum á lista VG í Reykjavík

Vinstri græn munu velja sér for­ystu­fólk í Reykja­vík í raf­rænu for­vali flokks­ins sem fram fer dag­ana 2.-5. mars. Þrjár konur kepp­ast um að leiða list­ann til borg­ar­stjórn­ar­kosn­inga.

Frambjóðendur VG til forvals flokksins í Reykjavík.
Fram­bjóð­endur VG til for­vals flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Aðsend

Alls verða átta manns í fram­boði í raf­rænu for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík, sem fram fer dag­ana 2.-5. mars. Í for­val­inu verður kosið í efstu þrjú sætin á lista hreyf­ing­ar­innar til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur.

Þrjár sækj­ast eftir því að leiða list­ann, þær Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi, Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir vara­borg­ar­full­trúi og Elín Björk Jón­as­dóttir veð­ur­fræð­ingur, sem einnig er for­maður Vinstri grænna í Reykja­vík.

Fimm manns gefa svo kost á sér í 2. sæti eða 2.-3. sæti, þrír karlar og tvær konur. Andrés Skúlason verk­efna­stjóri og fyrr­ver­andi odd­viti á Djúpa­vogi og Stefán Pálsson sagn­fræð­ingur gefa kost á sér í annað sætið.

Eftir 2.-3. sæt­inu sækj­ast svo þau Elínrós Birta Jóns- og Val­borg­ar­dóttir sjúkra­liði, Bryngeir Arnar Bryn­geirs­son tóm­stunda- og félags­mála­fræð­ingur og göngu­leið­sögu­maður og Íris Andr­és­dóttir grunn­skóla­kenn­ari.

Kjörskrá lokar 10 dögum fyrir kosningar

Kosn­inga­rétt í for­val­inu hafa þeir félagar í Vinstri grænum í Reykja­vík sem eru skráðir félagar tíu dögum fyrir upp­haf kosn­ingar, og því þurfa nýir félagar að skrá sig í síð­asta lagi fyrir lok sunnu­dags­ins 20. febr­úar til að geta kosið.

[adspot]

Þegar nið­ur­stöður for­vals­ins liggja fyrir mun kjör­stjórn vinna til­lögu að full­skip­uðum fram­boðs­lista sem lögð verður fram til sam­þykkis á félags­fundi Vinstri grænna í Reykja­vík.

Vinstri græn eiga einn borg­ar­full­trúa í dag, en flokk­ur­inn fékk 4,6 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018 og tap­aði þá hátt í fjórum pró­sentu­stigum frá sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2014. Fjöldi borg­ar­full­trúa VG hélst þannig óbreyttur, þrátt fyrir að verið væri að fjölga borg­ar­full­trúum úr 15 í 23.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár