Skoski þjóðarflokkurinn með 57 af 59 þingsætum - tíu dagar í kosningar

Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn (SNP) nýtur stuðn­ings 54 pró­senta skoskra kjós­enda og mun fá 57 þing­sæti í bresku þing­kosn­ing­unum sem fram fara eftir tíu daga, sam­kvæmt nýrri skoð­ana­könnun. Þingsæti Skota í Westminster, þing­inu í London, eru 59 tals­ins.

Það verða því aðeins tvö þing­sæti til skipt­anna fyrir hina flokk­anna, og Verka­manna­flokk­ur­inn og Frjáls­lyndir demókratar munu fá sitt­hvort sætið, sam­kvæmt könn­un­inni. Aðrir flokkar kom­ast ekki á blað, en í Bret­landi eru ein­menn­ings­kjör­dæmi. Allt útlit er fyrir að Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn verði því mjög áhrifa­mik­ill í breska þing­inu eftir kosn­ingar, enda virð­ist ekki lík­legt að neinn flokkur nái meiri­hluta þing­sæta. Samkvæmt nýj­ustu könn­unum sem Guardian hefur látið gera á lands­vísu fengi Íhalds­flokk­ur­inn 274 sæti og Verka­manna­flokk­ur­inn 270. 326 sæti þarf til að ná meiri­hluta í þing­inu.

[caption id="attachment_25034" align="align­right" width="300"] Nicola Sturgeon, leið­togi Skoska þjóð­ar­flokks­ins. MYND: EPA[/caption]

Samkvæmt könn­un­inni, sem fyr­ir­tækið TNS gerði og skoska sjón­varps­stöðin STV greinir frá, var stuðn­ingur við Verka­manna­flokk­inn 22 pró­sent, við Íhalds­menn 13 pró­sent og stuðn­ingur við Frjáls­lynda demókrata 6 pró­sent. UKIP, breskir þjóð­ern­iss­inar, og græn­ingjar, fengju tvö pró­sent hvor.

67 pró­sent aðspurðra sögð­ust vissir um að þeir myndu kjósa í kosn­ing­unum þann 7. maí næst­kom­andi. Það er hærra hlut­fall en mælist að með­al­tali í Bret­landi, þar sem 62 pró­sent eru viss um að nýta kosn­inga­rétt­inn.

„Fleiri og fleiri ein­stak­lingar setja traust sitt á SNP til að láta rödd Skotlands heyr­ast í Westminster,“ segir Angus Roberts­son, fram­bjóð­andi SNP. „Þessi könnun bendir einnig til þess að stuðn­ingur við SNP komi frá fólki sem kaus gegn sjálf­stæði í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sem og þeim sem kusu með sjálf­stæði - þar sem fólk gerir sér grein fyrir því að hópur þing­manna frá SNP mun gera Skotland sterkara í þing­inu.“ Hann sagði jafn­framt að könn­unum sem þessum væru tekið fagn­andi, en að ekk­ert væri sjálf­gefið og áfram yrði unnið að því að vinna traust kjós­enda um allt landið.

Tom Costley, for­stjóri kann­ana­fyr­ir­tæk­is­ins TNS Scotland, segir við STV að Nicola Sturgeon og Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn virð­ist bara verða sterk­ari og sterk­ari. Fólk í Skotlandi virð­ist vera áhuga­sam­ara um stjórn­mál eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um sjálf­stæði síð­ast­liðið haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár