67% pírata myndu kjósa með aðild að ESB - mest andstaða hjá sjálfstæðismönnum

Meiri­hluti kjós­enda Pírata, eða 67%, myndu senni­lega eða örugg­lega greiða atkvæði með aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu ef gengið yrði til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið nú. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir sam­tökin Já Ísland.

Mestur stuðn­ingur við aðild er hjá kjós­endum Sam­fylk­ing­ar­innar, þar sem 92% segj­ast myndu senni­lega eða örugg­lega greiða atkvæði með aðild að ESB. Píratar koma þar á eftir með 67%, og 63% kjós­enda Bjartrar fram­tíðar. 35% stuðn­ings­manna Vinstri Grænna myndu greiða atkvæði með aðild að ESB.

22% kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins myndu greiða atkvæði með aðild að ESB, en minnsti stuðn­ing­ur­inn við aðild er meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 10%.

39% þeirra sem myndu kjósa aðra flokka en þá sem nú eru á þingi segj­ast myndu greiða atkvæði með aðild, og 34% þeirra sem hyggj­ast annað hvort skila auðu eða ekki kjósa.

Fleiri vilja taka upp viðræður á ný

Eins og Kjarninn greindi frá í morgun segj­ast tæp­lega 60% aðspurðra í könn­un­inni myndu senni­lega eða örugg­lega greiða atkvæði gegn aðild að Evr­ópu­sam­band­inu ef kosið yrði í dag. Engu að síður segj­ast fleiri vera hlynntir því að aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið verði teknar upp á nýjan leik en eru því and­vígir.

45,4 pró­sent aðspurðra segj­ast vera fylgj­andi því að aðild­ar­við­ræður við ESB verði teknar upp á ný, en 40,3% segj­ast vera á móti því að það verði gert. 14,3% segj­ast hvorki mót­fallin né fylgj­andi því að við­ræður verði teknar upp á nýjan leik.

Fæstir sjálfstæðismenn vilja viðræður á ný

Þegar stuðn­ingur við upp­töku við­ræðna á nýjan leik kemur í ljós að 90% stuðn­ings­manna Sam­fylk­ing­ar­innar eru fylgj­andi því að aðild­ar­við­ræður við ESB verði hafnar á ný. 81% kjós­enda Bjartrar fram­tíðar eru fylgj­andi aðild­ar­við­ræðum og 66% kjós­enda Pírata. 55% Vinstri grænna vilja að við­ræður verði teknar upp á ný, og 25% kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins. Aðeins 12% kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins vilja að aðild­ar­við­ræður verði teknar upp á ný.

Af þeim sem myndu kjósa annan flokk en þá sem nú eiga sæti á þingi myndu 39% vilja að við­ræður við ESB yrðu teknar upp á ný. 37% þeirra sem ætla að skila auðu eða kjósa ekki eru hlynntir því að við­ræður verði teknar upp á ný.

Athygli vekur að 17 pró­sent þeirra sem segj­ast senni­lega myndu kjósa á móti aðild að ESB vilja samt að aðild­ar­við­ræð­urnar verði teknar upp á nýjan leik. 33% í þessum hópi eru hvorki fylgj­andi né and­víg því að taka við­ræð­urnar upp á ný.

Könnunin var sem fyrr segir gerð af Gallup fyrir Já Ísland. 888 manns svör­uðu könn­un­inni, þar af tóku 812 afstöðu til spurn­ing­ar­innar um það að taka upp aðild­ar­við­ræður á nýjan leik. Vik­mörkin í spurn­ing­unni eru á bil­inu 2,1 til 3,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár