Úkraínski herinn hörfar frá Debaltseve, sigur fyrir uppreisnarmenn

Úkra­ínski stjórn­ar­her­inn er nú á leið frá Debaltseve í aust­ur­hluta Úkraínu, þar sem harðir bar­dagar hafa geisað und­an­farið. Þetta er mik­il­vægur sigur fyrir upp­reisn­ar­her­inn, sem hefur þá náð völdum á svæð­inu.

Sex þús­und her­menn stjórn­ar­hers­ins voru í Debaltseve en skipun kom klukkan sex í morgun að stað­ar­tíma um að hörfa skyldi af staðnum. Petro Poros­henko Úkra­ínu­for­seti segir að 80 pró­sent her­manna hans hafi farið í morgun. Upp­reisn­ar­menn hafa und­an­farna viku eða svo nán­ast umkringt Debaltseve og fregnir herma að þeir hafi skotið á öll far­ar­tæki sem reyndu að kom­ast burt. Stjórn­völd í Kíev við­ur­kenna að ein­hverjir her­menn hafi verið teknir til fanga en hefur ekki gefið upp fjölda þeirra. Upp­reisn­ar­menn segja að hund­ruðir her­manna hafi gefið sig fram við þá.

Guardian greinir frá því að að minnsta kosti 90 særðir her­menn hefðu verið fluttir á spít­ala og einn læknir á svæð­inu sagð­ist hafa farið með 20 lík í lík­hús. Flestir hinna látnu hefðu verið drepnir á leið burt frá Debaltseve.

Um 25 þús­und manns bjuggu í Debaltseve áður en bar­dagar hófust þar, en stað­ur­inn er hern­að­ar­lega mik­il­vægur vegna þess að hann tengir Donetsk og Luhansk.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti óskaði eftir því á fundum í síð­ustu viku að vopna­hléinu í Úkraínu yrði seinkað um 10 daga til þess að upp­reisn­ar­menn­irnir gætu náð bænum á sitt vald.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár