Lögregla má nú leita hjá þeim sem aðstoða útlendinga

Ný útlend­inga­lög festa í sessi vald inn­an­rík­is­ráð­herra til að skylda útlend­inga til að vera alltaf með vega­bréf eða annað kenni­vott­orð með­ferðis við dvöl hér á landi.

Inn­an­rík­is­ráð­herra hefur vald til að skylda útlend­inga, aðra en nor­ræna rík­is­borg­ara, til að vera alltaf með vega­bréf eða annað kenni­vott­orð með­ferðis við dvöl hér á landi. Þessi heim­ild ráð­herra er fest í sessi í nýjum útlend­inga­lögum sem tóku gildi um ára­mótin, en lögin skylda útlend­inga til að sýna skil­ríki að kröfu lög­reglu og veita upp­lýs­ingar sem sanna að dvöl þeirra á Íslandi sé lög­mæt. Óhlýðn­ist útlend­ingar þess­ari kröfu er lög­reglu heim­ilt að gera hús­leit hjá þeim. Samkvæmt nýju lög­unum, sem sam­þykkt voru með stuðn­ingi allra flokka á Alþingi þann 2. júní síð­ast­lið­inn, ein­skorð­ast slíkar heim­ildir lög­reglu hins vegar ekki við heim­ili útlend­ing­anna sjálfra heldur taka einnig til heim­ila fólks sem grunað er um að hjálpa útlend­ing­unum að leyna upp­lýs­ingum. Þar má gera hús­leit án dóms­úr­skurðar ef lög­regla metur kring­um­stæður þannig að brýn hætta sé á að bið eftir slíkum úrskurði valdi sak­ar­spjöllum.

14. gr. nýrra útlend­inga­laga fjallar um upp­lýs­inga- …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár