Þingi ASÍ frestað um sex mánuði

Eftir við­burð­ar­ríkan gær­dag á 45. þingi ASÍ hefur til­laga breiðs hóps þing­full­trúa þess efnis að fresta þing­inu um sex mán­uði verið sam­þykkt.

45. þing ASÍ fer fram á Hótel Nordica. Tillaga þess efnis að þinginu verði frestað um sex mánuði verður mögulega lögð fram á þinginu í dag.
45. þing ASÍ fer fram á Hótel Nordica. Tillaga þess efnis að þing­inu verði frestað um sex mán­uði verður mögu­lega lögð fram á þing­inu í dag. Mynd: Arnar Þór

Tillaga breiðs hóps þing­full­trúa sem situr þing Alþýðu­sam­bands Íslands þess efnis að fresta þing­inu um sex mán­uði hefur verið sam­þykkt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Þing ASÍ hófst að nýju klukkan tíu í morgun eftir við­burð­ar­ríkan gær­dag þar sem Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, dró fram­boð sitt til for­seta til baka.

[links]Við upp­haf ann­ars dags 45. þings ASÍ í gær dag þótti næsta víst að Ragnar Þór yrði næsti for­seti Alþýðu­sam­bands­ins, en svo verður ekki. Í hópi þeirra tuga full­trúa sem skyndi­lega gengu af þing­inu á fjórða tím­anum í gær voru auk Ragnar Þórs þau Sól­veig Anna Jóns­dóttir for­maður Efl­ingar og Vil­hjálmur Birg­is­son for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og VLFA, sem fyrir gær­dag­inn þóttu lík­leg­ust til þess að verða 2. og 3. vara­for­seta sam­bands­ins.

Samkvæmt dag­skrá þings­ins átti stjórn­ar­kjör að fara fram eftir hádegi, en svo verður ekki.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans vann hópur fólks, úr ýmsum félögum, sem sitja þingið, til­lögu þess efnis að þingi ASÍ yrði frestað um sex mán­uði. Sú til­laga hefur nú verið sam­þykkt, sam­kvæmt sömu heim­ildum.

Stjórnarkjör getur farið fram þó vanti helming þingfulltrúa

Eftir að fjöldi félags­manna VR og Eflingar gekk út af þing­inu í gær var nokkur óvissa um hvort kosn­ingar í mið­stjórn og emb­ætti for­seta ASÍ gætu farið fram.

Samkvæmt þing­sköpum ASÍ er það grunn­reglan að atkvæða­greiðslur geti ekki farið fram um til­lögur nema minnst helm­ingur þing­full­trúa sé á staðnum. Atkvæða­greiðsla getur þó talist gild ef þing­for­seti til­kynnir sér­stakan tíma fyrir atkvæða­greiðslu, með minnst 30 mín­útna fyr­ir­vara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár