Kafbáturinn reyndist 100 ára gamall og rússneskur

Kaf­bát­ur­inn sem sjáv­ar­könn­un­ar­hóp­ur­inn Ocean Explor­ers fundu á hafs­botni í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm í gær er af meira en 100 ára gam­alli rúss­neskri gerð og fórst að öllum lík­indum á fyrri­hluta 20. ald­ar­innar.

Frá þessu er meðal ann­ars greint á vef Expressen en leiddar hafa veirð líkur að því að bát­ur­inn hafi farist með 18 manns um borð 10. maí 1916 eftir árekstur við sænskan gufu­bát. Per And­ers­son, fyrr­ver­andi yfir­maður í sjó­her Svía, greindi myndir af flak­inu fyrir Expressen í gær­kvöldi og bar kennsl á kýril­ískt letur á skrokki báts­ins, auk þess sem hann taldi hönn­un­ina vera meira en 100 ára gamla.

[caption id="attachment_35140" align="alignnone" width="951"] Kafbátur af sömu gerð og sá sem fannst í skerja­garð­inum í gær.[/caption]

Þess vegna er ómögu­legt að þetta sé kaf­bát­ur­inn sem Svíar leit­uðu log­andi ljósi að síð­asta haust. Þá höfðu meira en 100 vitni látið vita af furðu­legum hlut í skerja­garð­inum utan við Stokk­hólm sem sjó­her­inn bar síðan kennsl á sem kaf­bát, að öllum lík­indum rúss­neskan. Leitin skil­aði ekki árangri og var hætt rúmri viku eftir að bát­ur­inn sást.

Rússar báru af sér allar sakir og sögðu bát­inn hugs­an­lega belgískan. Vís­bend­ing­arnar bentu hins vegar allar að rússsum enda hafði borist dul­koðað neyð­ar­kall yfir neyð­ar­rás Rússa auk þess sem að rúss­neskt olíu­skip sil­gdi í hringi fyrir utan skerja­garð­inn á meðan rann­sóknin stóð. Annað rúss­neskt skip búið kaf­báta­kví var í nágren­inu og hafði slökkt á stað­setn­ing­ar­tækjum sínum.

Eftir að sænskir fjöl­miðlar höfuð sagt fréttir af flaki kaf­báts­ins í gær­kvöldi sagði rúss­neska frétta­stofan Sputnik, sem er að öllu leyti í eigu rúss­neska rík­is­ins, frá því að Rússar hefðu engum kaf­bát tapað á þessu svæði.


#Kremlin denies #Russia has lost a small submar­ine near Sweden, says it's probably somet­hing the Pro-Russian locals of Aland have built


— Sputnik (@Sputnik_Intl) July 27, 2015

Kafbáturinn hvarf undir skipið

Kaf­bát­ur­inn sem fannst á hafs­botni nú er tal­inn vera af Som-gerð kaf­báta sem smíð­aðir voru árið 1904 til 1907 í Vla­di­vostok og þjón­uðu allir á Eystra­salti. Ástæður þess að talið er að kaf­bát­ur­inn þessi hafa verið listaðar víða á vefnum, til dæmis á Reddit. Þar er bent á að kaf­bát­ur­inn líti út fyrir að vera í góðu ásig­komu­lagi, þó hann sé gam­all, en sjór­inn í Eystra­salti er súr­efn­is­lít­ill á meira en 40 metra dýpi og því ekki skrýtið að sjáv­ar­líf­verur hafi ekki gert bát­inn að heim­ili sínu. Á skrokki báts­ins má einnig sjá bók­staf­inn „ъ“ sem ekki er lengur not­aður í rúss­nesku eftir mál­breyt­ingar í rúss­nesku árið 1918. Nútíma kaf­bátar væru jafn­framt svartir og bæru engar áletr­anir á skrokki sínum.

Verkar vara ubåten Сом/Catfish från 1905.Obser­vera texten i fören. cc @Expressen @Aftonbladet pic.twitter.com/xk1Rx2IIwk — Peter Krantz (@peterkz_swe) July 27, 2015

Skip­stjóri gufu­skips­ins sem lenti í árekstri við kaf­bát­inn árið 1916 lýsti því þannig að hann hafi séð sjón­pípu kaf­báts­ins upp úr sjáv­ar­yf­ir­borð­inu í um 150 metra fjar­lægð og sigla í sömu átt. Skyndi­lega hafi kaf­bát­ur­inn svo breytt um stefnu og stefnt í átt að gufu­skip­inu. Sjón­pípan hafi svo horfið undir gufu­skipið og aldrei sést aftur.

Notendur Reddit hafa kom­ist að því að Peter Lindberg, annar for­svars­manna Ocean Explor­ers sem fundu rúss­neska kaf­bát­inn, hafi spurst fyrir um slysið 1916 á vefnum uboat.net og fengið þessa lýs­ingu af atburð­inum, auk grófar stað­setn­ingar hans.

Ocean Explor­ers hefur áður nýtt sér fjöl­miðla til að vekja athygli á fundum sínum og á Reddit og þess vegna lík­legt að þeir hafi notað atvikið í fyrra til að fá umfjöllun um kaf­báta­fund­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár