Virði háspennulína og tengivirkja Landsnets eykst um 23 milljarða króna

Landsnet hagn­að­ist um rúm­lega fjóra millj­arða króna í fyrra. Eig­in­fjár­hlut­fall fyr­ir­tæk­is­ins fór úr 23,5 pró­sentum í rúm­lega 40 pró­sent.

Verðmæti eigna Lands­nets jóks mikið milli áranna 2014 og 2015, en virði tengi­virkja og háspennu­lína, sem eru hluti af eigna­safni fyr­ir­tæk­is­ins, jókst um 23 millj­arða króna. Þetta má lesa út úr árs­reikn­ingi Lands­nets, en end­ur­mat á eignum félags­ins skil­aði sér í þessum miklu breyt­ingum. Háspennu­línur eru metnar á 49,5 millj­arða, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið í fyrra, en á árinu 2014 voru lín­urnar metnar á 37,5 millj­arða. Þá eru tengi­virki metin á 34 millj­arða, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið í fyrra, en sömu eignir voru metnar á 23,2 millj­arða í lok árs 2014.

Ástæðan fyrir end­ur­mat­inu á þessu eignum má rekja til end­ur­mats til sam­ræmis við alþjóð­lega reikn­ings­skila­staðla. Við end­ur­matið var beitt tvenns konar aðferðum, sam­kvæmt skýr­ingum í árs­reikn­ingi. Annars vegar var litið til áætl­aðs end­ur­bygg­ing­ar­kostn­aðar flutn­ings­kerf­is­ins, sem var met­inn af óháðum sér­fræð­ingum í árs­byrjun 2015 og fram­reikn­aður til árs­loka 2015. Hins vegar var lagt mat á rekstr­ar­virði með sjóð­streym­is­grein­ingu, fram­reiknað. Mats­tíma­bilið var frá 2016 til 2025 og eftir það reiknað fram­tíð­ar­virði rekstrar.

Endurmat árs­ins var byggt á rekstr­ar­virði núver­andi eigna félags­ins og gert ráð fyrir að fjár­fest­ingar myndu jafn­gilda afskriftum núver­andi eigna­stofns. „Núvirð­ing fram­tíð­ar­sjóð­streymis var byggð á veg­inni með­alarð­semi (WACC) sem félag­inu er úthlutað fyrir stórnot­endur og dreifi­veitur. End­ur­matið fellur undir stig 3 í stig­veldi gang­virðis,“ segir í skýr­ing­unum.

Þetta end­ur­mat á eignum Lands­nets stór­bætir fjár­hags­lega stöðu félags­ins, eins og gefur að skila. Rekst­ur­inn hefur staðið traustum fótum en ekki síst vegna end­ur­mats­ins á eign­unum hækkar eig­in­fjár­hlut­fallið úr rúm­lega 23 pró­sent í rúm­lega 40 pró­sent.

Rekstr­ar­tekjur námu 16,1 millj­arði króna árið 2015 á móti 14,3 millj­örðum króna árið áður sem er tæp­lega 13 pró­sent hækkun og skýrist meðal ann­ars af hag­stæðri geng­is­þróun.

Rekstr­ar­hagn­aður fyrir fjár­magnsliði (EBIT) nam 7,5 millj­örðum króna sam­an­borið 6,2 millj­arða króna árið áður. Hækkunin er um 1,3 millj­arðar króna á milli ára og skýrist einnig af hag­stæðri geng­is­þróun.

Lausa­fjár­staða félags­ins var traust í árs­lok, en hand­bært fé í lok árs nam rúm­lega átta millj­örðum króna og hand­bært fé frá rekstri á árinu nam 8,1 millj­arði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár