Eins og að hafa ömmu sem lífvörð

Ofan­greind orð eru höfð eftir yfir­lög­fræð­ingi mann­rétt­inda­sam­taka í til­efni þess að ráð­herra í Danmörku telur danska sendi­ráðs­menn á Indlandi geta gætt öryggis Danans Niels Holck sem Ind­verjar vilja fá fram­seldan. Saga Niels Holck er reyfara­kennd.

Niels Holck er umdeildur maður.
Niels Holck er umdeildur maður.

Hinn 17. des­em­ber árið 1995 var fimm hund­ruð rifflum og ýmis konar öðrum vopna­bún­aði, sam­tals tæpum fimm tonnum kastað, í fall­hlífum, úr rúss­nesk/úkra­ínskri flutn­inga­vél yfir Vestur- Bengal á Indlandi. Vopnin voru ætluð upp­reisn­ar­mönnum. Í flug­vél­inni var breskur vopna­sali, Peter Bleach að nafni, ásamt fimm Lettum (sem síðar urðu rúss­neskir rík­is­borg­arar) og einum manni til við­bótar. Eftir að vopn­unum hafði verið varpað niður hélt flug­vélin áfram til Taílands en ind­verskar her­þotur neyddu vél­ina síðar til að lenda á ind­verskum flug­velli. Breski vopna­sal­inn og Lettarnir fimm voru hand­teknir en sjö­unda mann­inum tókst að kom­ast undan. Þessi sjö­undi maður var Daninn Niels Holck.

Holck tókst með ein­hverjum hætti að kom­ast til Nepal og, nokkrum vikum síðar, áfram til Dan­merkur. Breski vopna­sal­inn og Lettarnir fimm voru dæmdir í ævi­langt fang­elsi á Indlandi, en voru átta árum síðar náð­aðir, eftir mik­inn þrýst­ing rúss­neskra og breskra stjórn­valda. Lengi vel vissu ind­versk stjórn­völd ekki hver sjö­undi mað­ur­inn um borð í flug­vél­inni var, vissu ein­ungis að hann gekk undir nafn­inu Kim Davy.

Það að Kim Davy héti í raun­inni Niels Holck kom ekki ljós fyrr en árið 2002 þegar sjón­varps­stöðin TV2 sendi út sjón­varps­þátt, sem rakti sögu hans. Þá hafði Niels Holck búið í Danmörku, undir fölsku nafni, frá árinu 1996. Þótt ind­versk stjórn­völd hefðu kom­ist að því að mað­ur­inn Kim Davy, sem gekk þeim úr greipum í des­em­ber 1995 væri Dani, héti Niels Holck og byggi í Danmörku, gátu þau lítið aðhafst, eng­inn samn­ingur um fram­sal var í gildi milli Dan­merkur og Indlands.

[adspot]

Berfætti ræninginn

Niels Holck er fæddur árið 1961 í Aars á Jótlandi en ólst upp á Norður-Sjálandi. Hann fékk ungur mik­inn áhuga á Indlandi og dvalist þar lang­dvölum frá árinu 1981. En fleira kom til. Niels Holck var hand­tek­inn í Danmörku árið 1980, grun­aður um að hafa tekið þátt í að ræna tveimur pen­inga­flutn­inga­bílum í Nivå, norðan við Kaup­manna­höfn. Hann hélt því síðar fram að félagi sinn hefði logið þessu upp á sig.

Eftir að Niels Holck var hand­tek­inn gaf hann við yfir­heyrslur í skyn að hann vissi hvar pen­ing­arnir úr rán­inu væru faldir. Þeir væru grafnir í Rungsted-skógi fyrir norðan Kaup­manna­höfn. Lög­reglan fór með hann þangað og til að tryggja að Niels Holck reyndi ekki að stinga af var honum skipað að fara úr skóm og sokkum. Sú fyr­ir­byggj­andi aðgerð reynd­ist ekki full­nægj­andi og Niels Holck komst undan á hlaupum. Fjöl­miðlar gáfu honum nafnið „ber­fætti ræn­ing­inn“ og lög­reglan varð að athlægi. Niels Holck varð sér úti um falsað vega­bréf og fimm þús­und danskar krónur (og vænt­an­lega sokka og skó) og flýði land.

Breytt löggjöf, beiðni um framsal

Í kjöl­far hryðju­verk­anna 11. sept­em­ber 2001 var danskri lög­gjöf um fram­sal danskra rík­is­borg­ara til landa utan Evr­ópu­sam­bands­ins breytt. Samkvæmt þeim varð heim­ilt að fram­selja danska rík­is­borg­ara væru þeir grun­aðir um hryðju­verk eða afbrot. Það var þó ekki fyrr en árið 2007 að Ind­verjar fóru fram á að Niels Holck yrði hand­tek­inn og sendur til Indlands þar sem hægt yrði að rétta í „vopna­mál­inu“ eins og það var nefnt. Niels Holck fór í felur en var hand­tek­inn árið 2010, eftir að dönsk stjórn­völd höfðu samið um fram­salið við stjórn­völd á Indlandi.

Tveimur árum fyrr, árið 2008 hafði þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra Dana, Anders Fogh Rasmus­sen, sagt í við­tali við ind­verska sjón­varpið að dönsk stjórn­völd væru til­búin að fram­selja Niels Holck, með ákveðnum skil­yrðum. Í nóv­em­ber 2010 úrskurð­aði Bæj­ar­réttur í Hilleröd (þar sem Niels Holck bjó) að ekki bæri að fram­selja hann. Dönsk stjórn­völd áfrýj­uðu til Eystri-Lands­réttar og meðan málið var þar til með­ferðar varð Niels Holck að gefa sig fram við lög­reglu tvisvar í viku og vega­bréf hans var gert upp­tækt. Eystri-Lands­réttur stað­festi í júní 2011 dóm Bæj­ar­rétt­ar­ins í Hilleröd og rík­is­sak­sókn­ari ákvað að málið færi ekki fyrir Hæsta­rétt. Niels Holck fékk vega­bréfið og var frjáls maður. Meginrök dóm­stól­anna voru þau að ekki væri hægt að ábyrgj­ast öryggi Niels Holck á Indlandi og að mál hans fengi rétt­láta með­ferð í ind­versku dóms­kerfi.

Indverjar hótuðu öllu illu

Ind­verjar urðu æfir þegar þeir fréttu af nið­ur­stöðum danskra dóm­stóla. Til­kynntu um alls kyns hót­anir, við­skipta­samn­ingum yrði rift, vega­bréfaum­sóknum Dana yrði hafnað og fyr­ir­hug­aðri heim­sókn for­seta Indlands til Dan­merkur var aflýst. Niels Holck til­kynnti árið 2012 að hann væri til­bú­inn að mæta til yfir­heyrslu ind­verskra stjórn­valda ef slíkar yfir­heyrslur færu fram utan Indlands. Dönsk stjórn­völd reyndu að semja um þessa leið við stjórn­völd á Indlandi, án árang­urs. Yfir­heyrslur og hugs­an­leg rétt­ar­höld yfir Niels Holck skyldu fara fram á Indlandi. Punktur og basta.

Ný framsalsbeiðni 2016

Í des­em­ber 2016 sendu Ind­verjar dönskum stjórn­völdum enn á ný kröfu um fram­sal Niels Holck. Søren Pape Poulsen dóms­mála­ráð­herra og for­maður danska íhalds­flokks­ins fyr­ir­skip­aði rík­is­lög­manni að leita leiða til að taka málið upp að nýju og kanna mögu­leika á að verða við kröfum Indverja. Þegar fjöl­miðlar gengu á ráð­herr­ann og vildu fá að vita hverju þetta sætti var fátt um svör. Frétta­menn sök­uðu ráð­herr­ann um und­ir­lægju­hátt og að hann væri fyrst og fremst að hugsa um við­skipta­hags­muni. Danskir fjöl­miðlar hafa einnig rann­sakað hvort Holck málið, eins og það er kallað, hafi haft áhrif á við­skipti Dan­merkur og Indlands. Nið­ur­staðan er sú að áhrifin séu lítil sem engin.

Að hafa ömmu sem lífvörð

Niels Holck hefur neitað að láta yfir­heyra sig í tengslum við þessa nýju kröfu Indverja. Hann og lög­fræð­ingur hans segja það með ólík­indum að ráð­herr­ann skuli láta sér detta í hug að reyna að ganga gegn nið­ur­stöðum dóm­stóla.

Yfir­lög­fræð­ingur mann­rétt­inda­sam­tak­anna Amnesy International segir yfir­lýs­ingar ráð­herr­ans um breytt og bætt mann­rétt­indi á Indlandi lýsa barna­skap og kunn­áttu­leysi manns sem greini­lega þekki lítið til mála.

Við vitum mörg dæmi þess að menn sem verið er að flytja í hand­járnum milli staða hafi „dottið“ út úr lög­reglu­bílum beint á and­litið niður í göt­una. „Að trúa því, sem ráð­herr­ann heldur fram, að danska sendi­ráðið geti gætt öryggis Niels Holck er álíka gáfu­legt og að hafa ömmu sem líf­vörð“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár