Tíu staðreyndir um Black Lives Matter

  1. Hreyf­ingin Black Lives Matter varð til í kjöl­far morðs­ins á Trayvon Martin, sem var sautján ára drengur sem var myrtur af nágranna sínum, George Zimmerman árið 2012. Zimmerman var ekki dæmdur fyrir morðið, sem hann sagði hafa verið í sjálfs­vörn. Martin var óvopn­aður. Stofn­end­unum þótti sem Martin hefði verið sak­aður um glæpi eftir dauða sinn, í rétt­ar­höld­unum yfir Zimmerman.
  2. Hreyf­ingin var stofnuð árið 2013, eftir að Zimmerman var sýkn­aður, af þremur ungum konum, Aliciu Garza, Patrisse Cullors og Opal Tometi. Alicia Garza skrif­aði skila­boð á Facebook-síðu sína í kjöl­far sýknu­dóms­ins þar sem hún sagði m.a. Black Lives Matter. Vinkona hennar, Patrisse Cullors, svar­aði póst­inum og gerði myllu­merkið #BlackLivesMatter. Stuttu síðar fengu þær Opal Tometi til liðs við sig og hreyf­ingin varð til.
  3. Hreyf­ingin fékk meiri byr í seglin eftir að Michael Brown, annar óvopn­aður ung­lingur, var myrtur af lög­reglu­manni í Ferguson, Missouri árið 2014. Lög­reglu­mað­ur­inn Darren Wilson skaut Brown til bana, en Wilson er hvítur. Í kjöl­farið urðu mikil mót­mæli og óeirðir í Ferguson og svo um öll Banda­ríkin. Black Lives Matter hvatti fólk til að keyra til Ferguson og hreyf­ingin var þátt­tak­andi í mót­mæl­unum.
  4. Hreyf­ingin hefur mót­mælt fjölda­mörgum morðum lög­reglu­manna á svörtu fólki, aðal­lega svörtum ungum körlum, síðan þá. Það er þó ekki eina áherslu­at­riðið hjá hreyf­ing­unni, langt því frá.
  5. Stofn­endur hreyf­ing­ar­innar segja að með því að nota Black Lives Matter (í. líf svartra skipta máli) sé umræðan um ofbeldi stjórn­valda víkkuð út þannig að hún nái yfir allar þær leiðir sem not­aðar séu til að úti­loka svart fólk kerf­is­bundið og svipta það völdum. „Við erum að tala um það hvernig svartir ein­stak­lingar eru sviptir grund­vall­ar­mann­rétt­indum og reisn.“ Hreyf­ingin sé hug­mynda­fræði­legt og póli­tískt inn­grip í heimi þar sem kerf­is­bundið sé brotið gegn svörtu fólki.
  6. Sam­kyn­hneigt og trans­fólk leikur lyk­il­hlut­verk í hreyf­ing­unni, að sögn stofn­end­anna. Bæði Garza og Cullors eru sam­kyn­hneigðar, og áhersla hefur alltaf verið lögð á að Black Lives Matter umfaðmi alla. Konur, hinsegin fólk og fatl­aðir ein­stak­lingar hafi verið jað­ar­sett í bar­átt­unni og í Black Lives Matter sé þessu snúið á haus.
  7. Vel yfir þús­und við­burðir, mót­mæli og kröfu­göngur hafa verið haldnar á vegum Black Lives Matter.
  8. Nú eru að minnsta kosti 38 hreyf­ingar starf­ræktar í Banda­ríkj­unum og víðar, meðal ann­ars í Bret­landi, Kanada og Gana.
  9. Stofn­end­urnir þrír voru valdir meðal bestu leið­toga heims­ins í Fortune fyrr á þessu ári. Black Lives Matter hafi nefni­lega tek­ist að vaxa sífellt, öfugt við margar hreyf­ingar sem verða til í gegnum sam­fé­lags­miðla. Þær voru líka á Politico 50 list­anum yfir þá sem helst eru að breyta banda­rískum stjórn­málum.
  10. Hreyf­ingin hefur í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum opin­ber­lega skorað á fram­bjóð­endur að lýsa opin­ber­lega afstöðu sinni gagn­vart bar­áttu­málum BLM. Demókra­ta­flokk­ur­inn hefur form­lega lýst yfir stuðn­ingi við hreyf­ing­una.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár