Mest launaskrið hjá fjármálastjórnendum, karlar einoka stjórnendastörfin

Meðaltal heild­ar­launa á Íslandi voru tæpar 571 þús­und krónur í lok síð­asta árs og hafa hækkað um 2,5 pró­sent á milli ára. Frá árinu 2010 hafa þau hækkað um rúm­lega 15 pró­sent. Mesta hlut­falls­lega launa­skriðið milli ára er hjá yfir­mönnum fjár­mála- og stjórn­un­ar­deilda, en lan þeirra hækk­uðu um 11,5 pró­sent á síð­asta ári. Þau eru nú að með­al­tali 1.117 þús­und krónur á mán­uði. Mikill kynja­munur er á stjórn­enda­störfum. Fleiri karlar en konur sinna slíkum í 17 af 20 teg­undum stjórn­enda­starfa.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í launa­grein­ingu PwC fyrir árið 2014.

Launa­grein­ingin er unnin úr gögnum 16.137 laun­þega frá 83 fyr­ir­tækjum. Það sam­svarar tæp­lega tíu pró­sent alls launa­fólks á Íslandi. Skýrslan um nið­ur­stöður hennar, sem var gerð opin­ber í dag, birtir upp­lýs­ingar um 131 teg­und starfa á íslenskum atvinnu­mark­aði.

Dreifing heild­ar­launa árið 2014

|

Create infographics

Föst laun hækka meira en heildarlaun

Í skýrsl­unni segir að með­al­tal heild­ar­launa þátt­tak­enda í könn­un­inni hafi verið 465.565 krónur árið 2010. Launin hafi vaxið jafnt og þétt und­an­farin ár og heild­ar­launin standi nú í 570.719 krónum. Sú hækkun launa sem átti sér stað á árinu 2014 er umtals­vert umfram verð­bólgu sem þýðir raun­veru­lega kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Helm­ingur launa­manna eru með 500 þús­und krónur eða meira í heild­ar­laun á mán­uði og 7,1 pró­sent eru með meira en eina milljón króna í laun á mán­uði. Í fyrra voru um 9,3 pró­sent heild­ar­launa til­komin vegna auka­greiðslna í launa­umslag­inu. Það er mjög sam­bæri­legt hlut­fall og árin á undan. Hlutfall auka­greiðslna af heild­ar­launum er hærra hjá fyr­ir­tækjum sem greiða lág grunn­laun.


Föstu launin, það sem fólk fær greitt utan auka­greiðslna, hafa hækkað hraðar en heild­ar­laun und­an­farin ár. Árið 2010 voru með­al­tals föst laun 443.632 krónur. Í fyrra voru þau 517.571 krónur og höfðu hækkað um 16,6 pró­sent frá árinu 2010. Á síð­asta árin einu saman hækk­uðu þau um3,1 pró­sent.

Launa­hækk­anir virð­ast heilt yfir hafa verið mjög í takt við verð­bólgu þegar litið er á tíma­bil sem nær yfir nokkur ár. Frá árinu 2010 er árlegt með­al­tal breyt­inga á föstum launum 3,9 pró­sent, sem er sama tala og árleg með­al­tals verð­bólga var á sama tíma­bili. Árleg breyt­ing heild­ar­launa er hins vegar 3,6 pró­sent að með­al­tali, eða 0,3 pró­sentu­stígi undir árlegu verð­bólgu­með­al­tali.


Hallar mjög á konur


Í skýrsl­unni er einnig farið yfir kynja­hlut­föll í stjórn­enda­stöðum fyr­ir­tækja. Nið­ur­staðan er sú að karlar eru fjöl­menn­ari í 17 starfs­heitum af 20 sem skoðuð voru. Einu þrjár stjórn­enda­stöðu­stétt­irnar sem konur voru fjöl­menn­ari en karlar í voru yfir­menn þjón­ustu­deilda, yfir­menn starfs­manna­halds og í stétt skrif­stofu­stjóra, aðal­bók­ara og aðal­gjald­kera.

Tæplega 80 pró­sent for­stjóra og aðal­fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja og stofn­ana eru karlar.

Mest launaskrið hjá yfirmönnum í fjármála- og stjórnunardeildum


Sá starfa­flokkur sem hækkar mest í launum á milli ára eru yfir­menn fjár­mála- og stjórn­un­ar­deilda. Miðgildi launa þar hækk­aði um 11,5 pró­sent á árinu 2014, úr einni milljón króna í 1.117 þús­und krónur á mán­uði. Sér­fræði­störf í stærð­fræði og trygg­inga­fræði komu þar á eftir, en mið­gildi laun þeirra sem starfa í þeim geira hækk­uðu að með­al­tali um 10,4 pró­sent.

Minnsta launa­skriðið, hjá þeim flokkum sem kann­aðir voru, er hjá bil­stjórum vöru- og flutn­inga­bif­reiða. Laun þar hækk­uðu að með­al­tali um tvö pró­sent í fyrra og mið­gildi þeirra stóð í 478 þús­und krónum í lok árs.

Starfa­flokkur 2013 2014 breyt­ing
For­stjórar og aðal­fram­kvæmda­stjórar fyr­ir­tækja og stofn­ana 1.800 þús­und 1.859 þús­und 3,30 pró­sent
Yfirmenn fjár­mála- og stjórn­un­ar­deilda 1.003 þús­und 1.117 þús­und 11,50 pró­sent
Sér­fræði­störf í stærð­fræði og trygg­inga­fræði 701 þús­und 774 þús­und 10,40 pró­sent
Sér­fræði­störf í véla­verk­fræði 776 þús­und 801 þús­und 3,30 pró­sent
Sér­fræði­störf við end­ur­skoðun og upp­gjör 734 þús­und 782 þús­und 6,50 pró­sent
Tækni- og rann­sókn­ar­störf við öryggis-, holl­ustu- og gæða­eft­ir­lit 568 þús­und 604 þús­und 6,40 pró­sent
Störf þjón­ustu­full­trúa og sér­hæfð störf í banka­stofn­unum 429 þús­und 452 þús­und 5,30 pró­sent
Störf bók­ara 438 þús­und 456 þús­und 4,10 pró­sent
Afgreiðslu- og sölu­störf í sér­vöru­versl­unum og heild­sölum 335 þús­und 354 þús­und 5,40 pró­sent
Störf málm­smiða, logsuðu­manna, blikk­smiða og stál­smiða 553 þús­und 590 þús­und 6,70 pró­sent
Störf iðn- og land­bún­að­ar­vél­virkja 548 þús­und 601 þús­und 9,60 pró­sent
Sérhæfð störf við mat­væla­iðnað 412 þús­und 442 þús­und 7,30 pró­sent
Bíl­stjórar vöru- og flutn­inga­bif­reiða 468 þús­und 478 þús­und 2,00 pró­sent
Störf verka­fólks við flutn­inga og vöru­geymslu 336 þús­und 359 þús­und 6,90 pró­sent

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár