Allir stóru bankarnir búnir að hækka vexti á húsnæðislánum

Stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands hefur leitt til þess að allir stóru bank­arnir hafa til­kynnt um hækkun á vöxtum á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum. Breyti­legu vext­irnir eru þó enn umtals­vert undir föstum vöxtum. Samt flykkj­ast heim­ilin í fasta vexti.

Einn stærsti útgjaldaliður flestra landsmanna um hver mánaðarmót er húsnæðislánið. Því skipta vaxtabreytingar heimilin í landinu miklu máli.
Einn stærsti útgjalda­liður flestra lands­manna um hver mán­að­ar­mót er hús­næð­is­lánið. Því skipta vaxta­breyt­ingar heim­ilin í land­inu miklu máli. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Allir kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír hafa nú hækkað óverð­tryggða hús­næð­is­lána­vexti sína í kjöl­far stýri­vaxta­hækk­unar Seðla­banka Íslands í lok ágúst. Íslands­banki var síð­astur til að gera það, en hann til­kynnti að breyti­legur óverð­tryggðir vextir myndu hækka um 0,15 pró­sentu­stig frá og með deg­inum í dag, 7. sept­em­ber, og vera eftir það 3,8 pró­sent. Fastir vextir á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum héld­ust óbreyttir en til þriggja ára eru þeir 4,65 pró­sent hjá Íslands­banka.

Lands­bank­inn til­kynnti um vaxta­hækkun í byrjun síð­ustu viku og hækk­aði breyti­lega óverð­tryggða vexti um 0,2 pró­sentu­stig en fastir vextir hald­ast óbreyttir (4,2 pró­sent á láni upp að 50 pró­sent af kaup­verði og 4,4 pró­sent af 20 pró­sent við­bót­ar­láni). Við það fóru breyti­legu óverð­tryggðu vext­irnir á 70 pró­sent grunn­láni í 3,65 pró­sent.

Arion banki fylgdi í kjöl­farið og hækk­aði og hækk­aði breyti­legu vext­ina um 0,20 pró­sentu­stig í 3,74 pró­sent og fasta vexti til þriggja ára um 0,14 pró­sentu­stig í 4,49 pró­sent.

Því eru breyti­legir vextir í öllum til­vikum enn umtals­vert undir föstum vöxtum sem bank­arnir buðu fyrir stýri­vaxta­hækkun og bjóða eftir hana.

Flestir í breytilegu þegar vextir voru að lækka

Stýri­vextir lækk­uðu um 3,75 pró­sentu­stig á tveimur árum og í fyrra­vor voru þeir 0,75 pró­sent. Þeir höfðu aldrei verið lægri í Íslands­sög­unni og þar af leið­andi aldrei hag­kvæmara að skuld­setja sig til t.d. hús­næð­is­kaupa. Sú staða leiddi til bólu­mynd­unar á hús­næð­is­mark­aði þar sem eft­ir­spurn var langt umfram fram­boð og verð hækk­aði skarpt. Frá byrjun árs í fyrra hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 19 pró­sent. Á síð­ustu tíu árum hefur það hækkað um 136 pró­sent.

[adspot]Allt árið í fyrra voru ný hús­næð­is­lán veitt af bönkum með fasta vexti 7,5 millj­arðar króna, umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur. Framan af því ári var flótti úr fast­vaxta­lánum yfir í lán með breyti­lega vexti, en heild­ar­um­fang nýrra útlána með breyti­lega vexti sem veitt voru með veði í hús­næði af Lands­bank­anum, Íslands­banka og Arion banka var á sama tíma 298,3 millj­arðar króna.

Ásókn í lán með föstum vöxtum jókst framan af ári, og ný slík útlán voru upp á 32 millj­arða króna á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2021. Svo til­kynnti Seðla­banki Íslands í maí að hann myndi hækka stýri­vexti í fyrsta sinn síðan í nóv­em­ber 2018, úr 0,75 pró­sentum í eitt pró­sent.

Flótti í fasta vexti eftir stýrivaxtahækkun

Eftir að nýtt vaxta­hækk­un­ar­ferli hófst í maí brast á flótti heim­ila í fasta vexti, þar sem hægt er að festa vexti í þrjú til fimm ár gegn því að borga meira í vaxta­greiðslur. Veðmálið þar snýst um að stýri­vextir muni hækka nægi­lega skarpt á tíma­bil­inu sem vext­irnir eru fastir svo að það borgi sig umfram þá hækkun sem verður á kostn­aði vegna breyti­legu vaxt­anna.

Mörg íslensk heim­ili virð­ast reiðu­búin til að taka þessu veð­máli og í júní og júlí voru ný útlán með föstum vöxtum sam­tals 42,8 millj­arðar króna. Til sam­an­burðar má nefna að frá byrjun árs 2019 og út maí­mánuð 2021, í alls 29 mán­uði, voru ný útlán með fasta vexti umfram upp­greiðslur og umfram­greiðslur, 49,3 millj­arðar króna.

Á sama tíma dróg­ust ný útlán kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna á breyti­legum vöxtum veru­lega saman. Í júlí voru þau 6,4 millj­arðar króna og hafa ekki verið minni frá því í apríl 2019. Ný útlán á föstum vöxtum voru næstum þrefalt meiri en ný útlán á breyti­legum vöxtum í síð­asta mán­uði.

Ásóknin enn öll í óvertryggðu lánin

Heimilin í land­inu eru þó ekk­ert að færa sig úr óverð­tryggðum lánum og aftur yfir í verð­tryggða umhverfið, enda raun­vextir á óver­tryggðum hús­næð­is­lánum í mörgum til­vikum enn nei­kvæðir. Það þýðir að verð­bólga, sem er 4,3 pró­sent, sé hærri en nafn­vextir lána.

Seðla­bank­inn hækk­aði stýri­vexti svo í annað sinn á árinu í lok ágúst, aftur um 0,25 pró­sentu­stig, og standa þeir nú í 1,25 pró­sentum.

Frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér­lendis í mars í fyrra, þegar vextir tóku að hríð­lækka sem leiddu til stór­auk­innar lán­töku til hús­næð­is­kaupa, hafa heim­ili lands­ins tekið 616,6 millj­arða króna í ný óverð­tryggð lán hjá Lands­banka, Íslands­banka og Arion banka að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum.

Það er 219,4 millj­örðum krónum meira en heim­ili lands­ins tóku í óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá bönk­unum þremur frá byrjun árs 2013 og til loka febr­úar 2020, eða á sjö árum og tveimur mán­uðum. Á þeim tíma tóku heim­ilin alls 397,2 millj­arða króna í óverð­tryggð lán til að kaupa sér hús­næði.

Frá mars í fyrra og út júlí í ár hafa útlán verð­tryggðra hús­næð­is­lána, að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum, verið nei­kvæð um næstum 100 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár