Hildur á móti en Eyþór með leiðtogaprófkjöri

Hildur Björns­dóttir von­ast til þess að full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks sam­þykki að halda opið próf­kjör í stað leið­toga­próf­kjörs, líkt og full­trúa­ráð sjálf­stæð­is­fé­laga í Reykja­vík sam­þykkti í gær­kvöldi. Sitjandi odd­viti er á önd­verðu meiði.

Hildur Björns­dóttir, sem lýst hefur því yfir að hún sæk­ist eftir odd­vita­sæti Eyþórs Arnalds á lista Sjálf­stæð­is­flokks fyrir kom­andi kosn­ingar, segir við Morg­un­blaðið í dag að það hafi komið sér á óvart að Vörður, full­­trúa­ráð sjálf­­stæð­is­­fé­laga í Reykja­vík, hafi ákveðið að haldið yrði leið­toga­próf­kjör í aðdrag­anda kosn­ing­anna. Hún seg­ist von­ast til þess að full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafni til­lög­unni, en sam­þykki þess þarf til að hún verði að veru­leika.

Eyþór Arnalds segir hins vegar við Morg­un­blaðið að hann telji nið­ur­stöðu Varðar vera far­sæla. Tillagan sé próf­kjör þótt ein­ungis verði kosið um fyrsta sætið.

Val­gerður Sig­urð­ar­dóttir, sitj­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tekur undir sjón­ar­mið Hildar í stöðu­upp­færslu á Facebook sem birt­ist seint í gær­kvöldi. Þar segir hún: ​​„Verð að játa að þetta kemur mér veru­lega á óvart, ég vona að Full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­manna hafni þessu og við höfum opið próf­kjör líkt og gert var fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar.“

Á meðal þeirra sem líka við þá færslu er Hildur, borg­ar­full­trú­inn Katrín Atla­dóttir og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Á þeim lista má einnig finna Söndru Hlíf Ocares, sem orðuð hafði verið við fram­boð í opnu próf­kjöri, Gísla Frey Val­dórs­son, ráð­gjafa hjá KOM, og Friðjón R. Frið­jóns­son, einn eig­enda KOM og vara­þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Sama leið og síðast

Vörður ákvað í gær­kvöldi að kosið verði um leið­toga lista Sjálf­stæð­is­manna fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í Reykja­vík að óbreyttu. Það er sama leið og flokk­ur­inn fór fyrir kosn­ing­arnar 2018 þegar Eyþór var val­inn til að leiða lista flokks­ins.

Full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins þarf að sam­þykkja leið­ina til að hún verði að veru­leika með 2/3 hluta atkvæða. Gangi það eftir verður kosið í kjör­nefnd til að fylla önnur sæti á list­an­um. Búast má við því að leið­toga­próf­kjörið fari fram í febr­úar, en kosið er til sveit­ar­stjórna í maí.

[adspot]Eyþór hefur gefið það út að hann stefni að end­ur­kjöri og Hildur hefur þegar til­kynnt að hún skori hann á hólm. Eng­inn annar hefur sem stendur til­kynnt fram­boð í leið­toga­sæt­ið.

Ef sama aðferð verður notuð til að manna önnur sæti á list­anum og í fyrir síð­ustu kosn­ingar mun kjör­nefnd svo raða í önnur sæti að loknu leið­toga­kjöri og full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins síðan taka afstöðu til þeirrar til­lögu.

Varð stærsti flokkurinn en náði ekki inn í meirihluta

Árið 2018 sótt­u­st, ásamt Eyþóri þau Kjartan Magn­ús­son og Áslaug Frið­­riks­dótt­ir, þáver­andi borg­­ar­­full­­trú­ar, Vil­hjálmur Bjarna­­son fyrr­ver­andi Alþing­is­­maður og Viðar Guðjohn­sen leig­u­­sali eftir því að leiða list­ann.

Eng­inn þeirra sem lutu í lægra haldi fyrir Eyþóri fékk sæti á lista flokks­ins í kjöl­farið og eini sitj­andi borg­ar­full­trú­inn sem sat í efstu sæt­unum var Marta Guð­jóns­dótt­ir.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 30,8 pró­sent atkvæða í þeim kosn­ingum og átta borg­ar­full­trúa kjörna. Fyrir vikið varð hann stærsti flokk­ur­inn í borg­inni á ný. Það dugði þó ekki til þar sem Sam­fylk­ing­in, Við­reisn, Píratar og Vinstri græn mynd­uðu meiri­hluta og Dagur B. Egg­erts­son hélt áfram sem borg­ar­stjóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár