Ardern vill fresta lokun álvers Rio Tinto með ríkisstuðningi

For­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands er til­búin að nið­ur­greiða raf­magn til Rio Tinto til þess að seinka lokun álvers á þeirra vegum þar í landi, nái hún kjöri í næstu kosn­ingum.

Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands.
Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands. Mynd: EPA

Jacinda Ardern for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands hyggst fresta lokun álvers Rio Tinto á Tiwai Point um þrjú til fimm ár og er til­búin að veita rík­is­stuðn­ing til álfyr­ir­tæk­is­ins til að ná fram lægra raf­orku­verði ef hún nær end­ur­kjöri í næstu þing­kosn­ingum í land­inu.

Samkvæmt frétt Reuters um málið hefur lokun álvers­ins orðið að bit­beini fyrir kom­andi kosn­ingar í Nýja-Sjálandi, sem munu fara fram þann 17. októ­ber. Rio Tinto hefur áður lýst því yfir að fyr­ir­hugað væri að loka álver­inu í Tiwai Point í ágúst á næsta ári vegna hás raf­orku­kostn­aðar og erf­iðra aðstæðna á álmark­aðnum.

Á blaða­manna­fundi Verka­manna­flokks­ins, sem Ardern er í for­svari fyrir, til­kynnti hún svo fyrr í dag að hún hygð­ist sjá til þess að lok­un­inni yrði frestað.

„Við erum að stefna að því að lengja líf álvers­ins um þrjú til fimm ár,“ sagði Ardern á fund­inum, sem fór fram í nágrenni álvers­ins í bænum Inverncargill. „Með því að veita lengri tímara­mma fyrir lokun álvers­ins verndum við störf núna og gefum sam­fé­lag­inu tíma til að meta og skipu­leggja áætlun til fram­tíðar“.

Samkvæmt Ardern myndi rík­is­stjórn hennar vinna með Rio Tinto og opin­bera raf­orku­sal­anum Transpower til þess að ná „sann­gjörnu verði“ á næstu árum, svo að áhrif lok­un­ar­innar á almennt raf­orku­verð verði sem minnst. Í frétta­til­kynn­ingu frá Verka­manna­flokknum í kjöl­far blaða­manna­fund­ar­ins kemur einnig fram að rík­is­stjórnin gæti veitt Transpower stuðn­ing til þess að lækka raf­orku­verð Rio Tinto.

Stórkaupandi á orkumarkaði

Rio Tinto er stór­kaup­andi á orku­mark­aði Nýja-Sjálands og nemur árleg notkun álvers­ins um fimm þús­und gíga­vatt­stundum, sem eru tólf pró­sent af allri orku­notkun lands­ins. Um þús­und manns vinna í álver­inu, en sam­kvæmt umfjöllun Reuters um málið skapar starf­semi þess um 1600 afleidd störf til við­bótar í kjör­dæm­inu.

Að sögn Kellie Parker, starf­andi for­stjóra Rio Tinto á Kyrra­hafs­svæð­inu, er álfyr­ir­tækið opið fyrir sam­ræður við nýsjá­lensk stjórn­völd ef þær gætu leitt til „sann­gjarn­ari verðs“ fyrir álverið.

Kunnuglegt stef

Rio Tinto er móð­ur­fé­lag ÍSAL sem rekur álverið í Straums­vík. Í febr­úar síð­ast­liðnum til­kynnti álfyr­ir­tækið að það íhug­aði lokun álvers­ins vegna hás raf­orku­verðs og krefj­andi mark­aðs­að­stæðna. Í júlí hót­aði Rio Tinto einnig því að loka álver­inu í Straums­vík vegna „sam­keppn­is­hamlandi hátt­semi“ Lands­virkj­unar, sem selur þeim ork­una hér á landi. Mánuði seinna sótti álfyr­ir­tækið svo um nýtt starfs­leyfi fyrir álverið.

Um 400 manns starfa hjá álver­inu í Straums­vík, en sam­kvæmt Samtökum iðn­að­ar­ins eru um 800 störf til við­bótar háð starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins á óbeinan hátt. Orku­notkun ÍSAL nam tæp­lega þrjú þús­und gíga­vatt­stundum í fyrra, en það jafn­gildir um 15 pró­sentum af heild­ar­raforku­notkun Íslands árið 2019.

Hörður Árnason for­stjóri Lands­virkj­unar hefur sagt að fleiri þættir en raf­orku­verð hafi áhrif á stöðu álver­anna og vill meina að núvernadi raf­orku­samn­ingur þeirra við Rio Tinto sé sann­gjarn. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra hafa bæði sagst ekki ætla að skipta sér að verð­lagn­ingu Lands­virkj­unar, þar sem það væri fyr­ir­tæki á sam­keppn­is­mark­aði með sjálf­stæða stjórn.

[links]Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um eru hót­anir Rio Tinto um að loka álver­inu í Straums­vík ekki nýjar af nál­inni, en verk­falli var aflýst þar árið 2015 eftir að tals­menn álvers­ins sögðu það vera óvíst hvort álverið hæfi aftur starf­semi sína ef starfs­menn þess legðu tíma­bundið niður störf.

Samkvæmt Reuters hefur Rio Tinto einnig hótað lokun álvers­ins á Nýja-Sjálandi oft á síð­ustu árum, sam­hliða því að fyr­ir­tækið krefj­ist auk­ins stuðn­ings frá hinu opin­bera. Jacinda Ardern bætti þó við á blaða­manna­fund­inum í morgun að engra frek­ari opin­berra nið­ur­greiðslna sé að vænta til álfyr­ir­tæk­is­ins, er frá er tal­inn fyr­ir­hug­aður samn­ingur um lægra raf­orku­verð.

Keppinauturinn sama sinnis

Samkvæmt nið­ur­stöðum skoð­ana­kann­ana hefur flokkur Ardern verið í öruggri for­ystu síð­ustu mán­uð­ina. Helsti keppi­nautur þess er Þjóð­ar­flokkur Nýsjá­lend­inga með Judith Collins í far­ar­broddi. Collins virð­ist þó vera nokkuð sam­stíga Ardern í málum sem varða álverið og lofar einnig að efna til samn­inga­við­ræðna við Rio Tinto nái hún kjöri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

straumsvík

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár