Námslánaskuldir Bandaríkjamanna þrefaldast á áratug - Hitamál í kosningum

Náms­lána­skuldir Banda­ríkja­manna hafa þre­fald­ast á und­an­förnum ára­tug og eru nú 1.200 millj­arðar Banda­ríkja­dala (1,2 trillion), eða sem nemur tæp­lega 160 þús­und millj­örðum króna. Upphæðin er ógn­arhá, hvernig sem á hana er horft, og hafa stjórn­völd í Banda­ríkj­unum miklar áhyggjur af því hvernig þær hafa þró­ast.

Það sem setti þær í mið­punkt umræð­unnar um það bil sem árlegar útskriftir úr banda­rískum háskólum fóru fram, í maí og júní, var sú mikla athygli sem málið fékk hjá Hillary Clinton, sem berst nú fyrir því að fá útnefn­ingu Demókrata sem for­seta­fram­bjóð­andi flokks­ins. Hún kynnti þá áætlun sína um minnka skuld­irnar um 350 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða tæp­lega þrjá­tíu pró­sent. Með því vildi hún aug­ljós­lega, að mati frétt­skýrenda hér í Banda­ríkj­unum, ná vel til ungra kjós­enda og háskóla­nema.

Niðurgreiða lánin með sköttum á ríkasta fólkið


„Enginn ætti að þurfa að taka lán fyrir námi sínu í háskóla á vegum hins opin­bera [...] Og öll þau sem skulda náms­lán ættu að geta fjár­magnað þau á lægri vöxtum,“ sagði Hillary Clinton þegar hún ræddi um áætlun sína við nem­endur í Exeter High School í New Hamps­hire í síð­ustu viku. Samkvæmt áætl­un­inni sem hún hefur kynnt verður horft til þess að fólk geti end­ur­fjár­magnað náms­lánin með nýjum lána­flokki sem er með nið­ur­greiddum vöxtum frá rík­inu. Sú nið­ur­greiðsla verður fjár­mögnuð með sér­stökum sköttum sem lagðir verða á rík­asta fólkið í Banda­ríkj­unum og fyr­ir­tæki með sterkasta efna­hag­inn. Hug­myndir eins og þessar eru nú þegar til umræðu í banda­ríska þing­inu og hafa bæði Demókratar og Repúblikanar lagt til lausnir eins og þær sem Hillary Clinton horfir til, það er að ríkið nálgist mála­flokk­inn í gegnum nið­ur­greidda vexti, end­ur­fjár­mögnun á lánum og síðan að búa þannig um hnút­ana að opin­berir skólar séu þannig upp­byggðir að ekki þurfi að koma til þess að nem­endur takir him­inhá lán fyrir kostn­aði.

[caption id="attachment_36733" align="alignnone" width="598"] Hér má sjá mynd sem birt­ist í fag­tíma­rit­inu The Economist í síð­ustu viku. Hún sýnir þróun náms­lána­skulda í Banda­ríkj­unum, en þær hafa þre­fald­ast á árunum 2005 til dags­ins í dag. Mynd: The Economist.[/caption]

Minna er meira


Eitt af því sem komið hefur í ljós þegar þróun náms­lána­skuld­anna hefur verið greind, er að líkur á van­skilum aukast eftir því sem láns­upp­hæðin er lægri. Í umfjöllun The Economist í gær, segir að ástæðan fyrir þessu séu almennt sú að þau sem taki hæstu náms­lánin séu yfir­leitt með stöðugri og betri tekjur og ráði því betur við lánin. Þau sem lægri lán taki lendi oft fyrr í vand­ræðum, vegna vand­ræða við að afla tekna að námi loknu.

Námslánaskuldir einnig stórt mál hér á landi


Líkt og í Banda­ríkj­unum hafa náms­lána­skuldir vaxið hratt hér á landi þó hlut­falls­lega sé aukn­ingin tölu­vert meiri í Banda­ríkj­unum. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem fram koma í árs­skýrslu LÍN fyrir síð­asta ár, þá hefur vöxt­ur­inn á heild­ar­lánum verið frá því að vera 135 millj­arðar árið 2009 í 213 millj­arðar í lok árs í fyrra. Bókfært virði útlána er hins vegar 171,4 millj­arðar króna og núvirði 132,9 millj­arðar króna eða 62 pró­sent af nafn­virði lána­safns­ins. Útlán á nafn­virði hafa því auk­ist um 82 pró­sent frá árinu 2008 til 2014 eða úr 116,9 millj­örðum í 213,1 millj­arð.

Hér má sjá mynd sem birtist í fagtímaritinu The Economist í síðustu viku. Hún sýnir þróun námslánaskulda í Bandaríkjunum, en þær hafa þrefaldast á árunum 2005 til dagsins í dag. Mynd: The Economist.
Hér má sjá mynd sem birt­ist í fag­tíma­rit­inu The Economist í síð­ustu viku. Hún sýnir þróun náms­lána­skulda í Banda­ríkj­unum, en þær hafa þre­fald­ast á árunum 2005 til dags­ins í dag. Mynd: The Economist.

Þessi mikli vöxtur skýrist ekki síst af því að mikil fjölgun varð á náms­mönnum við háskóla lands­ins eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins haustið 2008 og þreng­inga í efna­hags­líf­inu. Illugi Gunn­ars­son mennta­mála­ráð­herra hefur talað fyrir því að nauð­syn­legt sé end­ur­skoða hlut­verk LÍN.

Náms­mönnum á lánum hjá LÍN hefur fjölgað um 21 pró­sent síð­ast­liðin tíu ár og þó meira á Íslandi en erlendis. Veruleg aukn­ing varð á skóla­ár­unum 2008-2010 í kjöl­far krepp­unnar en frá árinu 2012 hefur náms­mönnum hins vegar farið fækk­andi, að því er fram kemur í árs­skýrslu LÍN. Á skóla­ár­inu 2013-2014 voru 11.768 náms­menn á náms­lánum. Mesta fækk­unin er í Danmörku en á hinum Norð­ur­lönd­unum er fjölgun, einkum í Svíþjóð. Ein ástæðan fyrir fækkun íslenskra nem­enda á náms­lánum hjá LÍN í Danmörku er vegna SU-styrkja frá danska rík­inu. Á síð­asta skóla­ári voru um 900 íslenskir náms­menn á slíkum styrkjum.

Ólík staða en vaxandi áhyggjur


Þó staðan hvað náms­manna­skuldir í Banda­ríkj­unum og Íslandi sé ólík þá er hún lík að því leyti að stjórn­mála­menn eru ugg­andi yfir því hvernig best sé að haga náms­lána­hlut­verk­inu til fram­tíðar litið, og stuðla að skyn­sömum fjár­hags­legum stuðn­ingi við háskóla­nám fólks. Það segir sitt um hversu ofar­lega þetta mál er í for­gangs­röð­inni í Banda­ríkj­unum að Hillary Clinton skuli setja það á odd­inn í kosn­inga­bar­átt­unni, en það verður að koma í ljós hvort hið sama ger­ist hér á landi fyrir kosn­ing­arnar 2017.

✔️ Lower inter­est rates ✔️ Never pay more than you can afford Hillary’s plan will reli­eve the burden of stu­dent debt: http://t.co/A4pWb3fOf4


— Hillary Clinton (@HillaryClinton) August 15, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár