Aftur fjölgar dauðsföllum vestanhafs – „Vinsamlega hlustið á mig“

Fram­kvæmda­stjóri banda­rísku smit­sjúk­dóma­stofn­un­ar­innar er ugg­andi yfir stöð­unni á far­aldr­inum í land­inu. Smitum og dauðs­föllum hefur fjölgað á ný. Nýtt bólu­efni, sem aðeins þarf að gefa einn skammt af, er rétt ókomið á markað.

Bóluefni Johnson & Johnson hefur fengið neyðarleyfi í Bandaríkjunum.
Bóluefni Johnson & Johnson hefur fengið neyð­ar­leyfi í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Bólu­efnis Johnson & Johnson, sem nú fengið hefur mark­aðs­leyfi í Banda­ríkj­unum, er beðið með mik­illi óþreyju, ekki síst í ljósi þess að vís­bend­ingar um að far­ald­ur­inn væri loks í rénun hafa dvínað eftir að greindum smitum og dauðs­föllum fjölg­aði enn á ný í síð­ustu viku. „Vin­sam­lega hlustið á mig: Þegar við erum með svo mörg til­felli og ný afbrigði að breið­ast út þá gætum við algjör­lega glatað öllum þeim árangri sem við lögðum svo mikið á okkur að ná,“ sagði Rochelle Walensky, fram­kvæmda­stjóri banda­rísku smit­sjúk­dóma­stofn­un­ar­innar (CDC), í gær. Smitum hafði fækkað nokkrar vikur í röð en nú fer þeim aftur fjölg­andi og voru um 2 pró­sent fleiri í síð­ustu viku en í vik­unni á undan. Það sama má segja um dauðs­föll af völdum COVID-19. Þeim hefur aftur fjölgað og eru í kringum 2.000 á dag.

[adspot]

Mörg ríki Banda­ríkj­anna hafa slakað á sótt­varna­að­gerðum þrátt fyrir að bólu­setn­ingar séu ekki nógu vel á veg komnar til að vísir að hjarð­ó­næmi sé í aug­sýn. Af þessu hefur Walensky miklar áhyggjur og hvetur hún almenn­ing til að nota grímur og beita öðrum per­sónu­bundnum sótt­vörnum. „Það er svo mik­il­vægt að við höldum vöku okkar [...] á meðan við erum að ná útbreiddri bólu­setn­ingu.“

Í þessu ástandi er ekki að undra að fregnum af því að mark­aðs­leyfi bólu­efnis Johnson & Johnson (Janssen) hafi verið fagnað gríð­ar­lega. Bólu­efnið þarf aðeins að gefa í einum skammti og því er hægt að bólu­setja mun fleiri á skemmri tíma.

Fyr­ir­tækið stefnir að því að hefja dreif­ingu á „millj­ónum skammta“ þegar í þess­ari viku. Dreif­ing­ar­á­ætlun gerir svo ráð fyrir afhend­ingu 100 milljón skammta í Banda­ríkj­unum fyrir júní­lok.

Tvö bólu­efni hafa þegar fengið neyð­ar­leyfi banda­rísku Lyfja- og mat­væla­stofn­un­ar­innar (FDA), frá fyr­ir­tækj­unum Pfizer og Moderna. Bæði hafa þau þegar fengið skil­yrt mark­aðs­leyfi í Evrópu og þar með á Íslandi og sömu sögu má segja um þriðja bólu­efnið, frá fyr­ir­tæk­inu AstraZeneca.

Á vef Lyfja­stofn­unar Evrópu kemur fram að reiknað sé með að skoðun hennar á bólu­efni Johnson & Johnson verði lokið um miðjan mars. For­stjóri Lyfja­stofn­unar Íslands sagði í sam­tali við RÚV í gær­kvöldi að óvíst væri hvenær bólu­efnið færi að ber­ast til lands­ins í kjöl­farið en það gæti þó mögu­lega gerst í apríl. Það mun skýr­ast um leið og mark­aðs­leyfið verður klárt.

Fyrir utan að aðeins þarf að gefa einn skammt af bólu­efni Johnson & Johnson hefur það fleiri eft­ir­sókn­ar­verða eig­in­leika. Það þarf t.d. ekki að geyma í miklu frosti. Það má geyma í venju­legum kæli­skáp í þrjá mán­uði án þess að það spillist.

Það veitir góða vörn gegn alvar­legum veik­indum og dauðs­föllum af völdum COVID-19, rétt eins og þau bólu­efni sem þegar eru komin á markað á Íslandi, sem og dregur það veru­lega úr hættu á minni veik­indum. Að auki benda rann­sóknir til þess að það veiti vörn gegn hinu bráðsmit­andi suð­ur­a­fríska afbrigði veirunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár