Strokufanginn handtekinn í nótt ásamt fimm öðrum

Gabríel Douane Boama var hand­tek­inn í nótt í umfangs­miklum aðgerðum lög­reglu sem fólu meðal ann­ars í sér hús­leitir og að öku­tæki voru stöðvuð.

Stroku­fang­inn Gabríel Douane Boama, sem strauk úr haldi lög­regl­unnar við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur fyrir þremur dögum, var hand­tek­inn í nótt.

[links]Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segir að lög­reglan hafi ráð­ist í umfangs­miklar aðgerðir í gær­kvöldi og í nótt þar sem hús­leitir voru gerðar og öku­tæki stöðvuð. Þær aðgerðir leiddu til þess að Gabríel var hand­tek­inn undir morgun og er nú vistaður í fanga­geymslu lög­reglu. Fimm önnur voru hand­tekin í aðgerðum lög­reglu sem rann­sakar hvort stroku­fang­anum hafi verið veitt aðstoð við að losna undan hand­töku. Þau eru einnig í fanga­geymslu lög­reglu. Í til­kynn­ing­unni segir að þessar aðgerðir séu afrakstur mik­illar rann­sókn­ar­vinnu og vinnslu á upp­lýs­ingum sem lög­reglu hafi borist frá almenn­ingi.

Leit af Gabríel hefur staðið yfir síðan á þriðju­dags­kvöld þegar hann strauk úr haldi. Lögreglu bár­ust fjöl­margar ábend­ingar frá fólki sem taldi sig hafa séð Gabríel. Kjarninn greindi frá því í gær að 16 ára drengur hafi tví­vegis verið stöðv­aður af lög­reglu á tveimur dögum vegna ábend­inga um að hann væri Gabríel. Í annað skipti var h ann í stræt­is­vagni og hitt skiptið að kaupa bakk­elsi í fylgd með móður sinni.

[adspot]Lög­reglan hefur sætt harðri gagn­rýni fyrir þessi vinnu­brögð og sendi frá sér til­kynn­ingu í gær þar sem hún hvatti til „var­kárni í sam­skiptum um þetta mál og önnur mál sem tengj­ast minni­hluta­hópum. Fordómar eiga aldrei rétt á sér. Leit að hættu­legu fólki má ekki verða til þess að minni­hluta­hópar í okkar sam­fé­lagi upp­lifi óör­yggi eða ótta. Að því sögðu er mik­il­vægt að lög­regla fylgi ábend­ingum sem ber­ast að gættu með­al­hófi og virð­ingu fyrir öllum.“

Í umfjöllun Kjarnans sem birt­ist í gær má meðal ann­ars lesa lýs­ingu af mynd­bandi sem tekið var þegar lög­reglu­menn höfðu afskipti af unga drengnum í bak­arí­inu í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár