Hvað útskýrir vinsældir Rodrigo Duterte?

Áralöng von­brigði gagn­vart mis­spilltum rík­is­stjórnum land­ins ásamt blússandi fíkni­efna­vanda hafa búið til grund­völl fyrir teikni­mynda­lega grimman karakter með mikla per­sónu­töfra á borð við Duterte.

Rodrigo Duterte.
Rodrigo Duterte. Mynd: EPA

Þótt hún sé stutt á veg komin er ólík­legt að mörgum hafi látið for­seta­tíð Rodrigo Duterte fram hjá sér fara. Eftir að hafa verið svar­inn í emb­ætti for­seta Fil­ipps­eyja þann 30. júní síð­ast­lið­inn hefur hann látið til sín taka en ríf­lega 3.000 manns hafa látið lífið enn sem komið er í stríði hans gegn fíkni­efnum - 2000 af þeim myrtir af óþekktum árás­ar­mönnum utan lög­regl­unnar. Hann hefur verið gagn­rýndur fyrir að styðja á bak við svo­kall­aðar „dauða­sveitir“ líkt og hann hefur verið ásak­aður um að gera í tíð sinni sem borg­ar­stjóri Davao, þriðju stærstu borg lands­ins. 

Nú á dög­unum bað hann engu að síður um sex mán­aða fram­leng­ingu; umfang fíkni­efna­starf­sem­innar var mun stærri en hann bjóst við, útskýrði Duterte, og við­ur­kenndi að hann gæti lík­lega ekki drepið alla þótt að hann að vildi, jafn­vel þó hann eigi langt í land með að efna kosn­inga­lof­orð sitt um að henda líkum hund­rað þús­und glæpa­manna í Manila-flóa.

Þá hefur hann látið til sín taka í utan­rík­is­málum og sóst eftir nán­ari tengslum við Kína meðal ann­ars í þeim til­gangi að auka flæði inn­viða­fjár­fest­inga til lands­ins ásamt því að styrkja sjálf­stæði Fil­ips­eyja frá Banda­ríkj­unum í stefnu­mótun í utan­rík­is­málum. Þessi stefna hefur vakið sér­staka athygli í ljósi sigri Fil­ipps­eyja gegn Kína í Alþjóð­lega gerð­ar­dóms­ins í Haag um yfir­ráð á stórum hluta Suður-Kínahafs. Samhliða því hefur hann hreytt blóts­yrðum og sví­virð­ingum í átt að Banda­ríkja­for­seta Barack Obama, Ban Ki-moon, og nú síð­ast ESB.

Duterte var kos­inn for­seti með 39% atkvæða og vin­sældir hans meðal Fil­ipsey­inga virð­ast hafa farið vax­andi síðan. Samkvæmt skoð­ana­könnun Pulse Asia þann 20. júlí síð­ast­lið­inn treysta 91% Fil­ipsey­inga Duterte og leið­togi minni­hluta­flokka á þingi, Danilo Suarez, sagði í vik­unni að hann bygg­ist ekki við því að vin­sældir Duterte myndu minnka í kjöl­far fjölg­andi ásak­ana um tengsl Duterte við dauða­sveitir. Hvað liggur á bak við stuðn­ingin við hin grimma Duterte?

Spillingardans

Ójöfn­uður í Fil­ipps­eyjum er með því mesta sem ger­ist í heim­inum. Fjörutíu rík­ustu fjöl­skyldur lands­ins réðu yfir um þrjá fjórðu af vergri lands­fram­leiðslu en 37.6% Fil­ippsey­inga þén­uðu undir 3,1 Banda­ríkja­dal á dag sam­kvæmt könn­unum frá árinu 2012. Ítök efna­mik­illa fjöl­skyldna lands­ins í stjórn­málum hefur verið stað­reynd allt frá sjálf­stæði lands­ins frá Banda­ríkj­unum 1946 og er að sjálf­sögðu ekk­ert eins­dæmi á heims­vísu. Hin gríð­ar­lega spill­ing sem hefur fylgt þessum ítökum er hins vegar vart trú­andi.

Þá rúma tvo ára­tugi sem Ferdin­and Marcos stjórn­aði land­inu með harðri hendi stal hann um tíu millj­arða Banda­ríkja­doll­ara – næst­mest af öllum þjóð­höfð­ingjum eftir seinni heims­styrj­öld – að sögn hæsta­rétti lands­ins eftir að honum var steypt af stóli í bylt­ingu árið 1986. Imelda Marcos, ekkja Ferdin­and eftir að hann lést í útlegð á Hawaii 1989 og tákn spill­ingar Marcos-stjórn­ar­innar, var fyrst sýknuð í spill­ing­ar­máli 1990 (hún hefur síðan þá verið sýknuð í mörg hund­ruð spill­ing­ar­mála í fil­ipseyska rétt­ar­kerf­inu) og sneri aftur til Fil­ips­eyja í kjöl­farið, bauð sig fram og sætti ósigri í for­seta­kosn­ingum 1992, en var kjör­inn öld­unga­deild­ar­þing­maður árið 1995. Sonur Marcos-hjón­anna, Ferdin­and „Bongbong“ Marcos Jr., er öld­unga­deild­ar­þing­maður í dag og tap­aði naum­lega vara­for­seta­kosn­ingum sem fram fóru sam­hliða for­seta­kosn­ing­unum í vor. Enn hefur ein­ungis lít­ill hluti pen­ing­anna sem var stolið verið end­ur­heimtur og eng­inn hefur hlotið fang­els­is­dóm vegna hlut­deildar í mál­unum.

Annað gott dæmi er Joseph Estrada sem var for­seti lands­ins milli 1998-2001 og náði á þeim skamma tíma að ávinna sér tíunda sætið yfir spillt­ustu þjóð­ar­höfð­ingjum eftir að hafa stolið um 80 millj­ónum banda­ríkja­dala. Hann hlaut lífs­tíð­ar­dóm fyrir vikið árið 2007 eftir sex ára máls­með­ferð (í milli­tíð­inni varð kona hans, Luisa Pimentel-Ejército kjör­inn öld­unga­deild­ar­þing­maður árið 2001). Skömmu eftir að úrskurður kom í dóms­máli Estrada hlaut hann fulla náðun af þáver­andi for­seta lands­ins, Gloria Macapagal Arroyo og er Joseph Estrada í dag borg­ar­stjóri í Manilla.

Það eru til grát­lega mörg svipuð dæmi úr valda­stéttum Fil­ipps­eyja sem lýsa hringekju spill­ingar þar sem sömu ætt­ar­nöfnin skjóta upp koll­inum aftur og aftur.

Shabu og Sinaloa

Fíkni­efna­vandi Fil­ipps­eyja hefur farið sívax­andi und­an­farin ár. Neysla inn­an­lands hefur stór­auk­ist og sam­kvæmt skýrslu fíkni­efna- og afbrota­mála­skrif­stofu Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNODC)

er landið með hlut­falls­lega hæstu amfetamínn­eyslu í Asíu. Einna helst hefur teg­und af amfetamíni sem kölluð er „shabu“ notið vin­sælda og um 2,1% Fil­ippsey­inga á bil­inu 16-64 ára neyta efn­is­ins.

Þá hefur landið orðið mik­il­væg mið­stöð fyrir fíkni­efna­smygli til og frá Asíu og námu and­virði um 8,4 millj­arða banda­ríkja­dala árið 2013. Mexíkósk glæpa­sam­tök á borð við hið ill­ræmda Sinaloa Cartel hafa bæst í hóp kín­verskra og vest-afrískra glæpa­sam­taka með starf­sem í land­inu en land­fræði­leg lega þess, mikil eft­ir­spurn inn­an­lands, ásamt spilltri og óskil­virkri lög­gæslu gera landið að til­völdum stað fyrir fíkni­efna­smygl.

Viðbrögð við vonbrigði

í ljósi þess­arar þró­unar hefur aðkoma hins 71 árs gamla Rodrigo Duterte verið ferskur blær í fil­ippseyskum stjórn­málum. Hann stendur fyrir utan valda­klíkur lands­ins og með kosn­ingu hans hefur almenn­ingur í Fil­ipps­eyjum fengið útrás fyrir reiði og óþol­in­mæði gagn­vart hinum hefð­bundnu ráð­andi stéttum. Áralöng von­brigði gagn­vart mis­spilltum rík­is­stjórnum lands­ins ásamt blússandi fíkni­efna­vanda hafa búið til grund­völl fyrir teikni­mynda­lega grimman karakter með mikla per­sónu­töfra eins og Duterte.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár