Samherji hefur ekki enn svarað spurningum um Namibíuskipin þrjú

Ekki hafa enn borist svör frá Samherja við fyr­ir­spurn Kjarnans frá 25. júlí um breytta skrán­ingu og nafna­breyt­ingar tog­ara sem not­aðir voru í útgerð Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í Namibíu. Tvö skip­anna sigldu þaðan fyrr á árinu, en eitt er enn kyrr­sett.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji hefur ekki enn svarað spurn­ingum Kjarnans sem lúta að breyttri skrán­ingu þriggja tog­ara fyr­ir­tæk­is­ins sem not­aðir voru í starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu, þrátt fyrir að blaða­maður hafi í tvígang ítrekað fyr­ir­spurn­ina sína síðan þá. Spurn­ing­arnar voru sendar 25. júlí.

Kjarninn sagði frá því þann sama dag að ýmist nöfnum eða skrán­ingu togar­anna Sögu, Geysis og Heinaste hefði verið breytt, sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingum sem finna má í gagna­grunni vef­síð­unnar Marine Traffic.[links]

Er fyr­ir­spurnin var ítrekuð í fyrra skiptið 28. júlí feng­ust þau svör frá Samherja að fyr­ir­spurnin væri mót­tekin og væri til skoð­unar þar inn­an­húss. Aftur var fyr­ir­spurnin ítrekuð þann 6. ágúst en engin svör hafa borist síðan.

Tvö sigldu frá Namibíu fyrr á árinu

Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóra Samherja, fjall­aði um stöðu Sögu og Geysis í færslu á vef Samherja 6. febr­úar. Þá sagði hann að Saga væri á leið í slipp vegna tíma­bærs við­halds og að Geysir væri við veiðar við strendur Márit­aníu þar sem ekk­ert af dótt­ur­fyr­ir­tækjum Samherja hefði fengið kvóta fyrir skipið í Namibíu.

[adspot]

Dagana á undan höfðu namibískir fjöl­miðlar greint frá því að namibíska spill­ing­ar­lög­reglan hefði lagt til við þar­lend stjórn­völd að tog­ur­unum yrði ekki leyft að sigla úr landi án þess að lög­reglu yrði gert við­vart, og því að skip­verjar hefðu fengið boð um að sækja eigur sínar í tog­ar­ana með litlum fyr­ir­vara.

Í sömu færslu sagði for­stjór­inn einnig að allar ákvarð­anir, sem tengd­ust því að Samherji væri að hætta rekstri í Namibíu, yrðu teknar í nánu sam­ráði við þar til bær stjórn­völd. „Greint verður opin­ber­lega frá fram­vindu máls­ins jafn­óðum,“ sagði Björgólfur.

Samkvæmt vef Marine Traffic hefur ekki feng­ist stað­setn­ing­ar­merki á Sögu, sem nú virð­ist heita Vasiliy Filippov, síðan 24. júlí þegar skipið var statt í Las Palmas á Kanarí­eyjum, en Geysir, sem nú heitir Galleon, er enn við veiðar í lög­sögu Márit­aníu.

Nokkrar spurningar

Spurn­ingar Kjarnans, sem Samherji hefur enn ekki svarað, lúta að því hvort ein­hverjar breyt­ingar hafi orðið á eign­ar­haldi skip­anna og af hverju ýmist nöfnum þeirra eða skrán­ing­ar­landi hefði verið breytt, en öll skipin þrjú eru nú skráð undir bel­ísku flaggi sam­kvæmt vef Marine Traffic.

Þá spurði blaða­maður einnig hvort útlit væri fyrir að þessi skip myndu halda aftur til veiða í namibískri lög­sögu, en það verður þó að telj­ast afar ólík­legt þar sem Samherji segir nú að félög tengd sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­inu hafi hætt starf­semi í Namibíu á árinu 2019.

Einnig spurði blaða­maður fyr­ir­tækið tíð­inda af kyrr­setn­ing­ar­máli Heinaste og hvort eitt­hvað hefði gengið að fá þeirri ákvörðun namibískra yfir­valda hnekkt, en 7. febr­úar var tog­ar­inn kyrr­settur á grund­velli ákvæða namibískra laga um skipu­lagða glæp­a­starf­semi, ein­ungis tveimur sól­ar­hringum eftir að fyrri kyrr­setn­ingu skips­ins vegna brota á fisk­veiði­lög­gjöf­inni hafði verið aflétt.

„Við teljum að end­ur­nýjuð kyrr­setn­ing skips­ins stand­ist ekki namibísk lög og við munum grípa til ráð­staf­ana til að hnekkja henni fyrir namibískum dóm­stólum ef nauð­syn kref­ur,“ sagði for­stjóri Sam­herja í yfir­lýs­ingu á vef sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins 10. febr­úar, en síðan hefur lítið heyrst af stöðu máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár