Fjárfestingaheimildir lífeyrissjóða rýmkaðar - Fá að eiga 20 prósent í félögum

Hámarks­heim­ild líf­eyr­is­sjóða til að eiga í félögum, fyr­ir­tækjum og sjóðum verður hækkuð úr 15 í 20 pró­sent verði breyt­ing­ar­til­laga nefndar að lögum. Fyrri til­laga um að meina sjóð­unum að fjár­festa beint í fast­eignum verður felld út.

Lífeyrissjóðir landsins eiga 3.319 milljarða króna í hreinni eign. Sjóðirnir eru langumsvifamesti fjárfestir íslensks atvinnulífs og eru í eigu sjóðsfélaga sinna, almennings í landinu.
Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga 3.319 millj­arða króna í hreinni eign. Sjóð­irnir eru lang­um­svifa­mesti fjár­festir íslensks atvinnu­lífs og eru í eigu sjóðs­fé­laga sinna, almenn­ings í land­inu. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Efnahags- og við­skipta­nefnd leggur til að heim­ild líf­eyr­is­sjóða til að eiga í félögum, fyr­ir­tækjum, hlut­deild­ar­skír­teinum eða sjóðum verði hækkuð úr 15 í 20 pró­sent. Nefndin leggur til þessa hækkun þótt hún telji rétt­mætt að vinna gegn óhóf­legri sam­þjöppun áhrifa­valds í íslensku við­skipta­lífi, en líf­eyr­is­sjóðir eru lang­um­svifa­mestu fjár­fest­arnir innan þess. Þetta kemur fram í áliti nefnd­ar­innar og í breyt­ing­ar­til­lögu frum­varps um breyt­ingu á lögum um starf­semi líf­eyr­is­sjóða.

Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eiga með beinum hætti yfir 40 pró­sent af heild­ar­hlutafé á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Sé eign­ar­að­ild þeirra í ýmsum sjóðum sem fjár­festa í skráðum hluta­bréfum talin með fer það hlut­fall yfir 50 pró­sent. Þeir eiga auk þess, beint og óbeint, mikið af eignum í óskráðum hluta­bréfum.

Verða farnir að kaupa „sjónvörp og þvottavélar“

Hrein eign líf­eyr­is­sjóða lands­ins nam 3.319 millj­örðum króna í lok júlí síð­ast­lið­ins. Það jafn­ast á við eina og hálfa lands­fram­leiðslu. Sjóð­irnir hafa að mestu verið bundnir við að kaupa eignir innan fjár­magns­hafta frá banka­hruni, þótt að þeir hafi fengið und­an­þágur til að fjár­festa erlendis. Frá miðju ári í fyrra og fram til loka júní­mán­aðar 2016 fengu þeir heim­ild til að fjár­festa sam­tals fyrir 40 millj­arða króna erlendis, í þremur skrefum. Frá 1. júlí síð­ast­liðnum og út sept­em­ber fengu þeir und­an­þágu frá Seðla­bank­anum til að versla fyrir 40 millj­arða króna til við­bótar. 80 millj­arðar á rúmu einu ári er þó ekki stór fjár­hæð í ljósi heild­ar­eigna sjóð­anna og ljóst að stjórn­endur þeirra horfa mjög til frek­ari til­slak­ana sam­hliða skrefum í átt að losun hafta, en frum­varp þess efnis er nú til með­ferðar hjá Alþingi.

Á umræðu­fundi um eign­ar­hald á atvinnu­fyr­ir­tækjum, hlut­verki líf­eyr­is­sjóða og áhrif á sam­keppni sem hald­inn var í lok maí sú staða sem líf­eyr­is­sjóð­irnir eru í vegna haft­anna mikið rædd. Þar sagði Flóki Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri ­sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Stefnis sem er í eigu Arion banka, það mjög ein­falt að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins þyrftu að kom­ast út úr höftum vegna stærð­ar­ ­sinn­ar. Ef það myndi ekki ger­ast bráðum þá verði þeir farnir að kaupa „sjón­vörp og þvotta­vél­ar“ eftir nokkur miss­eri. Allir aðrir fjár­fest­inga­kostir verð­i ­upp­urn­ir.

Takmörkun sætti gagnrýni

Við þess­ari stöðu er verið að bregð­ast með því að rýmka fjár­fest­ing­ar­heim­ildir líf­eyr­is­sjóð­anna. Þar skiptir mestu að þeir munu fá, verði breyt­ing­ar­til­laga efna­hags- og við­skipta­nefndar að lögum, fá að eiga 20 pró­sent í fyr­ir­tækjum í stað þess að hámarks­eign­ar­hluti sé 15 pró­sent líkt og áður var. Í áliti nefnd­ar­innar segir að gild­andi tak­mörkun hafi sætt tölu­verðri gagn­rýni. „Bent var á að svo lágt hlut­fall tor­veld­aði fjár­mögnun líf­eyr­is­sjóða á verk­efnum, einkum í ljósi við­var­andi fækk­unar líf­eyr­is­sjóða. Þannig þyrftu að minnsta kosti sjö líf­eyr­is­sjóðir að fjár­magna verk­efni ef ekki kæmi til önnur fjár­mögnun.

Þótt tak­mörk­unin sé felld undir ákvæði frum­varps­ins um mót­að­ila­á­hættu snýr hún í reynd fremur að því að vinna gegn sam­þjöppun valds í íslensku efna­hags­lífi með því að koma í veg fyrir að ráð­andi hlutir í félögum safn­ist á of fáar hendur. Líf­eyr­is­sjóðir eru umsvifa­mestu fjár­festar í íslensku við­skipta­lífi. Ef stakir líf­eyr­is­sjóðir héldu utan um ráð­andi hluti í mörg­um félögum er hætt við því að það kæmi niður á eðli­legri sam­keppni milli atvinnu­fyr­ir­tækja. Þótt nefndin telji rétt­mætt að vinna gegn óhóf­legri sam­þjöppun áhrifa­valds í íslensku við­skipta­lífi telur nefndin það ekki girða fyrir að hlut­fallið verði hærra en 15 pró­sent, enda fjarri því að vera ráð­andi hlutur.“

Mega kaupa fasteignir

Fjár­fest­ing­ar­heim­ildir líf­eyr­is­sjóða í ýmsum öðrum fjár­mála­gjörn­ingum og eignum verða líka víkk­aðar sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lög­unni. Svigrúm sjóð­anna til að fjár­festa í sér­tryggðum skulda­bréfum aukið og til að lána út verð­bréf.

Í upp­haf­lega frum­varp­inu var heim­ild líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa í íbúð­ar­hús­næði fellt á brott og þess í stað lagt til að þeir gætu fjár­fest í félögum um rekstur fast­eigna. Í nefnd­ar­á­liti efna­hags- og við­skipta­nefndar segir að fjár­fest­ingar í fast­eignum hafi ýmsa kosti fyrir líf­eyr­is­sjóði. „Fjölgun fjár­fest­ing­ar­kosta auð­veldar áhættu­dreif­ingu. Fast­eignir gefa gjarnan af sér fyr­ir­sjá­an­legan tekju­straum til langs tíma sem hentar vel fyrir líf­eyr­is­sjóði sem þurfa að mæta lang­tíma­skuld­bind­ingum um greiðslu líf­eyris. Þá geta fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða í fast­eignum þjónað því sam­fé­lags­lega hlut­verki að ýta undir upp­bygg­ingu íbúðar- og atvinnu­hús­næðis og inn­viða. Nefndin telur því æski­legt að heim­ila líf­eyr­is­sjóðum að fjár­festa í fast­eignum og telur ónauð­syn­legt að áskilja aðkomu milli­göngu­að­ila.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár