Slær Bjarna mjög illa að lífeyrissjóðir tali sig saman um að kaupa Arion banka

Mestu áhrifa­menn íslensks atvinnu­lífs hitt­ust á umræðu­fundi til að ræða stöðu sam­keppn­innar í end­ur­reistu hag­kerfi þar sem líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eigi 45 pró­sent hluta­bréfa og hluti í fjöl­mörgum fyr­ir­tækjum sem eru í beinni sam­keppni við hvort annað.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að það slái sig mjög illa að stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins séu að tala sig saman um að kaupa banka, þ.e. Arion banka. „Þá yrði þetta orðið dálítið skrýtið. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru með um 45 pró­sent af skráðum hluta­bréfum og eru svo farnir að tala sig saman um að kaupa fjár­mála­fyr­ir­tæki sem eru að þjón­usta fyr­ir­tækin sem þeir eru aðal­eig­endur að.“ Þetta kom fram á umræðu­fundi um eign­ar­hald á atvinnu­fyr­ir­tækjum, hlut­verki líf­eyr­is­sjóða og áhrif á sam­keppni sem haldnar voru á Hilton Reykja­vik Nordica í morgun. Yfir­skrift fund­ar­ins var „Samtal um sam­keppni“ og Sam­keppn­is­eft­ir­litið stóð fyrir honum.

Við­staddir voru flestir áhrifa­menn íslensks atvinnu­lífs. Þ.e. for­ystu­menn stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins, stjórn­endur skráðra fyr­ir­tækja, stórir einka­fjár­festar, for­stjórar eft­ir­lits­stofn­ana, stjórn­endur sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækja, for­stjóri Kaup­hall­ar­innar og margir fleiri.

Staða samkeppninnar eftir endurskipulagningu

Sam­keppn­is­eft­ir­litið boð­aði til fund­ar­ins vegna þess að það fannst til­efni til að horfa yfir hvernig staða sam­keppn­innar væri nú þegar að tals­verðar breyt­ingar hefðu orðið á eign­ar­haldi fyr­ir­tækja frá hruni. Þetta við­fangs­efni væri ekki síður aðkallandi vegna þess að til stendur að losa um fjár­magnas­höft og selja við­skipta­banka sem nú eru í eigu íslenska rík­is­ins eða kröfu­hafa.

Eft­ir­litið hefur bent á að í kjöl­far banka­hruns­ins hafi stofn­ana­fjár­festar orðið mjög áber­andi á meðal stærri eig­enda atvinnu­fyr­ir­tækja. Þar sé einkum um að ræða líf­eyr­is­sjóði og þeir eiga í vax­andi mæli eign­ar­hluti í fleiri en einu fyr­ir­tæki á sama mark­aði. Dæmi um þetta sé eign­ar­hald á vátrygg­inga­fé­lög­unum þremur sem skráð eru í kaup­höll­inni, þar sem sex slíkir fjár­festar eiga í þeim öllum og þrír til við­bótar eigi í tveimur. Svipaða sögu sé að segja af fast­eigna­fé­lög­unum sem skráð eru á markað. Af 15 stærstu eig­endum þeirra eru fimm stofn­ana­fjár­festar eig­endur í öllum félög­unum. Sam­an­lagt eigi þeir 35-44 pró­sent í hverju félagi. Þá má einnig benda á að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru eig­endur dag­vöruris­ans Haga að mestu. Þeir eiga líka stóra hluti í Festi, sem á og rekur Kaupás, næst stærsta dag­vöru­fyr­ir­tæki lands­ins.

Starfs­menn eft­ir­lits­ins bentu á rann­sóknir á mörk­uðum í Banda­ríkj­unum þar sem vís­bend­ingar séu um að eigna­tengsl milli sam­keppn­is­að­ila geti leitt til hærra verðs til við­skipta­vina. Í máli Páls Gunnars Páls­sonar, for­stjóra Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, kom fram að ekk­ert benti til ann­ars en að þær rann­sóknir hefðu þýð­ingu hér­lendis og lík­legt væri að skað­leg áhrif eign­ar­halds af þessum toga gætu verið enn meiri á mörk­uðum þar sem mikil sam­þjöppun og fákeppni ríki.

Lífeyrissjóðirnir verða farnir að kaupa sjónvörp og þvottavélar bráðum

Páll Harð­ar­son, for­stjóri Kaup­hallar Íslands, stýrði umræðum á fund­inum. Þar var meðal ann­ars rætt um hvort eign­ar­hald á atvinnu­fyr­ir­tækjum hafi þró­ast til hins betra eða verra eftir hrun, hvaða áhrif losun fjár­magns­hafta muni hafa á þróun eign­ar­halds á atvinnu­fyr­ir­tækjum, hvort sporna eigi við því að sami fjár­festir eigi í fleiri en einum keppi­naut á sama mark­aði og hvort líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem, eru lang­sam­lega fyr­ir­ferð­ar­mestu fjár­festar á Íslandi í dag, ættu að vera virkir eða óvirkir eig­endur?

Guð­mundur Þór­halls­son, fram­kvæmda­stjóri Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna, benti í umræð­unum á að mark­aðsvirði íslensks hluta­bréfa­mark­aðar fyrir hrun hafi verið, þegar best lét, um þrjú þús­und millj­arðar króna. Virði hans nú sé á bil­inu 1.300-1.400 millj­arðar króna en á sama tíma hafi eignir líf­eyr­is­sjóða vaxið mikið og séu nú um 3.300 millj­arðar króna. Svo séu höft sem geri líf­eyr­is­sjóðum ekki kleift að fjár­festa utan Íslands og því hafi þeir eign­ast stóran hluta þeirra hluta­bréfa sem í boði eru á Íslandi.

Bjarni Bene­dikts­son tók undir þetta og sagði að hann fyndi nán­ast til með stjórn­endum líf­eyr­is­sjóð­anna sem þurfi að finna sér fjár­fest­inga­mögu­leika í því litla og lok­aða hag­kerfið sem Ísland er. Mjög nauð­syn­legt hafi verið að rýmka heim­ildir líf­eyr­is­sjóð­anna til að fjár­festa hér­lendis eftir banka­hrun, hafta­setn­ingu og þegar kaup­höllin hafði nær þurrkast út. Þannig tóku þeir beinan þátt í því risa­vaxna verk­efni sem fjár­mála­kerfið stóð frammi fyrir við að end­ur­reisa sig.

Hann seg­ist þó velta fyrir sér hvort að eign­ar­hald á atvinnu­fyr­ir­tækjum hafi þró­ast til hins betra eða verra eftir hrun. „Ég velti fyrir mér hvort bank­arnir hefðu átt að gera meira af því að starfa með eig­endum fyr­ir­tækj­anna og minna af því að ryðja þeim út og selja síðan hluta­féð heldur en raunin varð. Það hefði skilið eftir minna svig­rúm fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina til að koma inn.“

Flóki Hall­dórs­son, fram­kvæmda­stjóri sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Stefnis sem er í eigu Arion banka, sagði það mjög ein­falt að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins þyrftu að kom­ast út úr höftum vegna stærðar sinnar. Ef það gerð­ist ekki bráðum þá verði þeir farnir að kaupa „sjón­vörp og þvotta­vélar“ eftir nokkur miss­eri. Allir aðrir fjár­fest­inga­kostir verði upp­urnir.

Þor­steinn Víglunds­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, tók í sama streng og sagði að líf­eyr­is­sjóð­unum þyrfti að bjóð­ast fleiri val­kostir í fjár­fest­ingu. Hann lagði til að í stað þess að þak yrði sett á fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða erlendis yrði sett gólf á fjár­fest­ingar þeirra. Stefna ætti að því að um 50 pró­sent af fjár­fest­ingum þeirra yrði erlendis í fram­tíð­inni.

Útlendingar hafa ekki áhuga á íslenskum hlutabréfum

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent við Háskóla Íslands og fyrrum efna­hags- og við­skipta­ráð­herra, sat einnig í pall­borði. Hann sagði að losun hafta muni búa til leið fyrir líf­eyr­is­sjóði til að kom­ast erlendis. Það myndi hins vegar ekki leysa þau vanda­mál sem íslenskt fjár­fest­inga­um­hverfi stæði frammi fyrir.

Á end­anum þyrfti alltaf ein­hver að eiga hluta­bréfin. Eins og staðan væri í dag á Íslandi, sér­stak­lega þar sem til stendur að hækka iðgjalda­greiðslur almenn­ings inn í líf­eyr­is­sjóða­kerfið, fari nær allur sparn­aður lands­manna inn í það kerfi. Lítið sé eftir til að fjár­festa fyrir. Erlendir aðlar virð­ast ekki hafa mik­inn áhuga á íslenskum hluta­bréfum heldur horfi mun frekar á skulda­bréf. Því til stuðn­ings má benda á að erlendir aðilar keyptu alls eignir fyrir 76,1 millj­arð króna á Íslandi í fyrra. Þar af keyptu þeir rík­is­skulda­bréf fyrir 54 millj­arða króna en hluta­bréf fyrir 5,7 millj­arða króna.

Ef útlend­ingar kaupi ekki íslensku hluta­bréfin séu það eig­in­lega bara líf­eyr­is­sjóð­irnir sem geti gert það. „Það er annað hvort það eða mynstrið sem við höfðum hérna fyrir hrun sem ég held að eng­inn vilji sjá aftur. Þegar eig­endur voru skuld­sett eign­ar­halds­fé­lög sem áttu ekk­ert eigið fé heldur bara lánsfé sem þau not­uðu til að kaupa hlutafé.“

Gylfi sagði þó staðan hér­lendis væri slæm. „Fag­fjár­fest­arnir eru mjög fáir, mjög stórir og eiga nán­ast allt. Það er afleit staða, bæði fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina og skráðu fyr­ir­tækin, að þau séu nán­ast í áskrift að fé líf­eyr­is­sjóð­anna og þurfi eig­in­lega ekk­ert að hafa fyrir því að fá það.“

Fundurinn ekki haldinn degi of seint

Greint hefur verið frá því í fréttum að stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafi hug á því að kaupa Arion banka af kröfu­höfum Kaup­þings og að þeir hafi ráðið menn til að halda sér­stak­lega utan um það ferli. Það gerð­ist í kjöl­far þess að fjár­mála­fyr­ir­tækin Virð­ing og Arct­ica Fin­ance reyndu að setj­a ­saman hóp til að kaupa bank­ann, m.a. með aðkomu líf­eyr­is­sjóð­anna. Þeir ákváðu frekar að sleppa milli­liðnum og ráð­ast sjálfir beint í það verk­efni að reyna að eign­ast bank­ann.

Stærst­u líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LS­R), Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna og Gildi líf­eyr­is­sjóður leiða verk­efnið. Öll­u­m líf­eyr­is­sjóðum lands­ins var boðið að vera með.

Bjarni gerði þessa stöðu að umtals­efni á fund­inum. Hann sagði að staðan hafi verið þannig einn dag­inn að ólík verð­bréfa­fyr­ir­tæki hefðu verið að koma sér fyrir til að keppa um hlut í banka en svo hafi hann lesið einn dag­inn frétt um að líf­eyr­is­sjóð­irnir ætl­uðu ekki að starfa með þeim heldur að taka sig saman og kaupa banka. Þá yrði þetta orðið dálítið skrýtið. Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru með um 45 pró­sent af skráðum hluta­bréfum og eru svo farnir að tala sig saman um að kaupa fjár­mála­fyr­ir­tæki sem eru að þjón­usta fyr­ir­tækin sem þeir eru aðal­eig­endur að[...]Þetta slær mig mjög illa og auð­vitað er ástæða til að staldra við“, sagði Bjarni og bætti við að fund­ur­inn sem fór fram í dag væri því ekki hald­inn degi og seint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár