Eigið fé Íslendinga 5.635 milljarðar í lok árs 2020 – Jókst um 65 prósent á fimm árum

Á árunum 2015 til 2020 jókst eigið fé Íslend­ingar um 2.227 millj­arða króna. Þorri eigna þeirra er bundið í fast­eignum, eða um 73 pró­sent. Á árinu 2020 voru það þó, í fyrsta sinn, aðrar eignir en hækkun á virði fast­eigna sem hækk­uðu mest í virði.

Alls áttu þeir eignir umfram skuldir upp á 5.635 millj­arða króna í lok þess árs, en frá byrjun árs 2015 til loka árs 2020 juk­ust eignir lands­manna um 2.598 millj­arða króna, eða um 47,2 pró­sent, og eigið fé þeirra um 2.227 millj­arða króna, eða um 65,3 pró­sent.

Alls áttu lands­menn um 8.104 millj­arða króna í lok árs 2020. Eignir þeirra juk­ust um 275 millj­arða króna á því ári, sem var mun minni eigna­aukn­ing en átt hafði sér stað árin á undan. Árið 2017 juk­ust eignir lands­manna til að mynda um 817 millj­arða króna, þær juk­ust um 627 millj­arða króna árið 2018 og um 466 millj­arða króna árið 2019.

Þetta kemur fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­l­inga á árinu 2021 í Tíund, frétta­­blaði Skatts­ins, sem Páll Kol­beins rekstr­­ar­hag­fræð­ingur skrif­­ar.

Þar segir að á árunum 2015 til 2020 hafi fram­taldar eignir lands­manna auk­ist sam­tals um 2.598 millj­arð króna, eða 47,2 pró­sent, sem jafn­gildir átta pró­senta árlegri ávöxtun. „Mikla hækkun eigna á und­an­förnum árum má að mestu rekja til hækk­unar fast­eigna­mats en nú bregður svo við að aðrar eignir en fast­eignir aukast um 154,9 millj­arða saman borið við 119,7 millj­arða hækkun fast­eigna.

[adspot]Í umfjöll­un­inni í Tíund er bent á að ein­ungis 43,6 pró­sent eigna­aukn­ing­ar­innar á árinu 2020 hafi verið vegna hækk­unar á fast­eigna­mats, sam­an­borið við 81 pró­sent á árinu 2019, en fast­eignir voru 73,3 pró­sent eigna lands­manna í lok árs 2020. Á árunum 1992 til 2001 var þetta hlut­fall 66,9 pró­sent að jafn­aði.

Lands­menn eiga ekki bara, þeir skulda líka. Heild­ar­skuldir þeirra voru 2.468 millj­arðar króna í lok árs 2020 og höfðu þá auk­ist um 121 millj­arða á króna á einu ári, eða um 5,2 pró­sent. Eignir juk­ust á sama tíma um 3,5 pró­sent sem þýðir að eigið fé lands­manna jókst um 153 millj­arða króna á árinu 2020. Alls áttu þeir eignir umfram skuldir upp á 5.635 millj­arða króna í lok þess árs, en frá byrjun árs 2015 til loka árs 2020 juk­ust eignir lands­manna um 2.598 millj­arða króna, eða um 47,2 pró­sent, og eigið fé þeirra um 2.227 millj­arða króna, eða um 65,3 pró­sent.

Í Tíund er greint frá því að um 30,5 pró­sent eigna lands­manna hafi verið í skuld sem er hálfu pró­sentu­stigi meira en í árs­lok 2019. „Í botni krepp­unnar árið 2010 var þetta skulda­hlut­fall komið í 55,2 pró­sent en síðan hefur það lækkað ár frá ári og ef litið er fram hjá hækk­un­inni 2020 hefur það ekki verið lægra síðan í árs­lok árið 1994 en þá voru skuldir 22,4 pró­sent af eignum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár